blaðið - 24.05.2005, Síða 24
þriðjudagur, 24. maí 2005 I blaðið
Rannsóknir á heila
Iris Murdoch
kolbrun@vbl.is
Breski rithöfundurinn Iris Murdoch lést árið
1999 af völdura alzheimer. Eiginmaður hennar,
John Bayley, ánafnaði taugasjúkdómadeild Há-
skólans í Cambridge heila hennar. Allt frá þeim
tíma hefur heilinn verið til rannsóknar ásamt
röntgenmyndum, sjúkraskýrslum og skáldsög-
um Murdoch. Niðurstöðurnar voru nýlega birt-
ar í fagtímaritinu Brain.
Árið 1996 las breskur taugasérfræðingur,
John Hodges, blaðagrein þar sem því var haldið
fram að Iris Murdoch þjáðist af ritstíflu. Hún
hafði nýlega gefið út Jackson’s Dilemma sem
fékk misjafna dóma. Einn gagnrýnandi sagði
bókina minna á verk 13 ára stúlku sem færi
ekki nógu mikið á mannamót.
Hætti að þekkja nöfn
John Hodges tók að velta því fyrir sér hvort
andleg hrörnun væri farin að hijá Murdoch og
átti fund með henni. Þegar hún spurði hvaðan
hann kæmi sagðist hann vera frá Cambridge.
„Cambridge er fallegur staður," sagði hún. Þau
spjölluðu saman stutta stund og þá spurði hún
aftur hvaðan hann væri. „Cambridge," svaraði
hann. Hún endurtók: „Cambridge er fallegur
staður.“
Irís Murdoch. Niðurstöður úr rannsókn á heila henn-
ar voru nýlega birtar.
Hodges rannsakaði Murdoch næsta árið og
tók eftir því að orðaforða hennar fór stöðugt
hnignandi og að hún notaði einungis algeng
og almenn orð. Þegar hann sýndi henni mynd
af kengúru vissi hún ekki nafnið á dýrinu en
sagði: „Fallegt dýr sem stekkur." Hann sýndi
henni mynd af Díönu prinsessu. „Hún er fræg
en ég veit ekki hver hún er,“ sagði Murdoch. Um
mynd af Bill Clinton sagði hún: „Konungur hin-
um megin á hnettinum.“
Á þessum tíma hrakaði Iris Murdoch ört og
lést hún í febrúarmánuði 1999, 79 ára gömul.
Skáldsaga undir áhrifum alzheimer
Peter Garrard taugaskurðlæknir, sem er í for-
svari fyrir hópnum sem rannsakað hefur veik-
indi Irisar Murdoch, hafði einnig umsjón með
rannsókn á texta í þremur bókum hennar. Þær
eru Under the Net, fyrsta skáldsaga hennar,
The Sea, The Sea, sem hún skrifaði á hátindi
frægðar sinnar, og Jackson’s Dilemma, síðasta
skáldsaga hennar. Rannsóknir leiddu í ljós að
alzheimer-sjúkdómurinn var á lokastigi þegar
Iris var að vinna að síðustu bók sinni en þá hafði
hún ekki greinst með sjúkdóminn. Orðaforðinn
var takmarkaður, setningamar voru stuttar og
mikið var um endurtekningar.
Garrard segir að svo geti verið að afburða-
greind manneskj a, eins og Iris Murdoch, sem ein-
beitti sér alla tíð að því að vinna með texta, hafí
átt auðveldara en margir aðrir með að berjast
gegn andlegri hnignun eða fela hana. Hann og
aðrir vísindamenn telja líklegt að sjúkdómurinn
hafi gert vart við sig hjá Murdoch áratugum áð-
ur en læknavísindunum tókst að greina hann.
Margbreytileiki lífsins
Margbreytileiki lífsins og mannkyn-
ið er heiti alþjóðlegrar sýningar sem
haldin er í Oskju, Sturlugötu 7, og
stendur til laugardagsins 28. maí
2005. Á sýningunni eru um 30 verk
eftir 15 ljósmyndara, flesta frá Frakk-
landi, og eru myndimar teknar víða
um heim. Einnig verða sýndar tvær
kvikmyndir.
I verkunum er fjallað um auðlind-
ir jarðar, ferskt vatn og skóga, sem
og áhrif loftslagsins á framtíð jarðar-
innar. Markmið sýningarinnar er að
stuðla að því að fólk verði meðvitað
um evðileggingu auðlinda í heimin-
um. Áhersla er lögð á mikilvægi þess
að beita öllum mögulegum ráðum til
að varðveita margbreytileika lífsins
og tryggja stöðuga og jákvæða þróun
fyrir komandi líf á jörðinni. ísland er
fyrsta landið sem heldur þessa sýn-
ingu en þegar er búið að ákveða fleiri
sýningar víðs vegar um heiminn á
næstu mánuðum.
Lfótspor Erlendar, Sigurðar
Ola og Elínborgar
Á sunnudaginn mátti sjá fjölda fólks
á öllum aldri á gangi við Kleifarvatn,
skimandi í allar áttir, aðallega þó nið-
ur fyrir sig eins og í leit að einhveiju.
Ástæðan var bráðskemmtilegur leik-
ur sem Edda útgáfa efndi til í tilefni
útkomu Kleifarvatns, metsölubókar
Arnaldar Indriðasonar, í kilju. Kleif-
arvatn kom fyrst út um síðustu jól
og er ein mest selda skáldsaga Is-
landssögunnar. Leikurinn fólst í því
að búið var að koma 50 eintökum af
nýju kiljunni fyrir við vatnið og var
fólki boðið að koma að leita. Þeir sem
fundu bók máttu eiga hana.
Blíðskaparveður var á sunnudag-
inn og því margir sem fengu sér bíl-
túr upp að vatninu og settu sig í spor
þeirra Erlendar, Sigurðar Óla og El-
ínborgar í von um að finna bók. Tölu-
verð umferð var að vatninu fram eft-
ir degi og ljóst að mikill spenningur
hefur verið eftir þessari vinsælu bók
í kiljuformi.
Bræðurnir Adam Orri, Páll Grétar og Ax-
el Ingi Jónssynir voru meðal þeirra sem
tóku þátt í leynilögregluleik Eddu útgáfu
og fóru glaðir heim með fundinn.
lan McEwan. Hefur fram að þessu fengið nær einróma lof fyrir síðustu bók sína, Sat-
urday, en írskur rithöfundur segir góðu dómana fáránlega.
Skammir um Saturday
Það er nokkuð almennt álit bók-
menntamanna að Ian McEwan sé
stærsta nafnið í breskum bókmennta-
heimi. Síðasta skáldsagahans, Satur-
day, hefur fengið frábærar viðtökur
gagnrýnenda og ratað á metsölulista.
Nú hefur írski rithöfundurinn og
gagnrýnandinn John Banville siglt
gegn straumnum og lýst því yfir að
bókin sé skelfilega léleg. Hann segir
hið einróma lof sem McEwan hefur
fengið frá gagnrýnendum víða um
heim vera á margan hátt fáránlegt.
Bókmenntamenn hafa margir hveijir
brugðist illa við þessum dómi írska
rithöfundarins og segja hann sekan
um öfund í garð höfundar sem standi
honum svo miklu framar.
Stórsveitin í Hásölum
Stórsveit Tónlistarskóla
Hafnarfjarðar heldur tón-
leika í kvöld, þriðjudags-
kvöld, klukkan 21 í Há-
sölum. Hljómsveitin var
stofnuð fyrir fjórum árum
og er skipuð nemendum
skólans sem hvað lengst
eru komnir í námi. Stór-
sveitin hefur haldið fjöl-
marga tónleika og fengið
til liðs við sig söngdjassd-
ívurnar Margréti Eir og
Kristjönu Stefánsdóttur. Þess má ing dagana 27.-29. maí. Stjómandi
geta að Stórsveitin verður fulltrúi ís- hljómsveitarinnar er Stefán Ómar
lands á hátíð sem haldin er í Jönköp- Jakobsson. Aðgangseyrir er 500 kr.
Metsölulisti New York Times
- innbundnar bækur:
1.4TH OF JULY. James Patterson
and Maxine Paetro.
2. TRUE BELIEVER.
Nícholas Sparks.
3. BROKEN PREY. John Sandford.
4. THE MERMAID CHAIR.
Sue Monk Kidd.
5. THE DA VINCI CODE.
Dan Brown.
Caruso
opinskár
Um 1.000 bréf, sem óperusöngvarinn
Enrico Caruso skrifaði, em komin
í leitimar og em væntanleg til birt-
ingar. Sérfræðingar segja bréfin eina
mest spennandi uppgötvun á tónlist-
arsviðinu í áraraðir. Bréfin varpa
nýju ljósi á 11 ára stormasamt ástar-
ævintýri Carusos og söngkonunnar
Ödu Giachetti. Hún var gift kona og
móðir þegar þau Caruso tóku upp ást-
arsamband. Ada yfirgaf mann sinn
og eignaðist tvö böm með Caruso en
giftist honum ekki. Hún svaf hjá bíl-
stjóra Carusos og stakk loks af með
honum og reyndi parið að beita söngv-
arann fjárkúgun. I hinum nýfundnu
bréfum er að finna afar persónuleg
skrif Carusos um samband þeirra
Ödu en hann elskaði hana afar heitt,
þrátt fyrir ótryggð hennar.
Enrico Caruso. Um 1.000 bréfa hans
eru komin í leitimar og varpa nýju Ijósi á
einkalíf hans.