blaðið - 24.05.2005, Page 30

blaðið - 24.05.2005, Page 30
þriðjudagur, 24. maí 2005 I blaðið Russell Crowe tapar í drykkjukeppni Það er aðeins ein leið til að drekka kappann Russell Crowe undir borðið og það er að svindla. Leikarinn góðkunni hefur lengi haft það orðspor að vera óstöðvandi þegar kemur að drykkju og veislu- höldum og kynntist gamla kempan Burt Reynolds því á dögunum. Leikar- amir tveir vom í Kanada við tökur á myndinni Mystery Alaska þegar eitt kvöldið var haldin drykkjukeppni. Burt, sem orðinn er 69 ára, sá sér leik á borði og mútaði barþjóninum til að gefa sér óáfenga drykki í annað hvert skipti til að geta örugglega haldið í við kappann. „Russell er algjört dýr. Ég gaf barþjóninum 100 dollara og bað um að fá óáfengan drykk í annað hvert skipti," segir Burt Reynolds. Á 14. drykk var Russell orðinn talsvert hífaður og steinhissa á þrekinu hjá Burt og fékk sér sopa af drykknum hans - en í það skiptið hafði barþjónn- inn skenkt honum vodka þannig að Burt slapp með skrekkinn og vann. Kelly Osbourne flytur til Englands „Ég er búin að leigja hús og flyt í lok þessa árs," segir Kelly en söngkonan er að sögn búin að fá nóg af stjörnulífinu í Hollywood. Hún gefur bandarískum karlmönnum ekki heldur háa einkunn og segir breska karlmenn skárri val- kost. „Bandarískir menn eru alltaf að misskilja mann; ef maður kyssir þá einu sinni þá halda þeir að við séum komin á fast," segir Kelly og hlakkar mikið til ekki auðveld- lega keyptir Hljómsveitinni U2 hefur verið boðið gull og grænir skóg- ar fyrir að selja auglýsingafyrirtæki lagið sitt „Where the streets have no name“. Bono, söngvari U2, sagði þá hafa íhugað tilboðið vel því þetta væri há upphæð, eða 12,5 milljónir punda, sem hægt væri að nota í hjálparstarf í Afríku. Eins og kunnugt er hefur Bono í mörg ár verið dyggur talsmaður þróunar- aðstoðar í Afríku. „Hefði þetta verið gott málefni eða ann- að lag hefðum við eflaust selt það,“ sagði Bono sem vill ekki að lagið verði að auglýsingastefi. Vinir í bíó Leikararnir í fyrrum gamanþáttaröðinni „Friends" eru í samningaviðræðum um þessar mundir en til stendur að leika í bíómynd um vinina í New York. Þrátt fyrir að leikararnir hafi allir haldið áfram á leiklistarbrautinni þá hefur enginn þeirra náð eins miklum frama og þegar tökum á þáttunum stóð yfir. Samkvæmt Sunday Express þá mun hver þeirra þéna um það bil 10 milljónir punda fyrir hverja mynd en David Schwimmer og Jennifer Aniston eru sögð vera mjög heit fyrir þessu tilboði og sagt er að ef þau grípa tækifærið þá muni hinir leikararnir allir fylgja í kjölfarið. auglysingar ivbLis blaðiö=

x

blaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.