blaðið - 02.06.2005, Blaðsíða 1

blaðið - 02.06.2005, Blaðsíða 1
STEYPUSTÖÐIN S. 540 6800 www.steypustodin.is lý Ármanns: Stelpan med tarot-stokkinn í skólatöskunni bls.30 Lyktarskyn|| - bls. 10 Birgitta Haukdal: Grillar fyrir steipumar - bls. 13 Ritstjórnar- og auglýsingasími: 510 3700 • bladid@vbl.is 19. TBL. 1. ÁRG FIMMTUDAGUR, 2. JÚNÍ, 2005. ÓKEYPIS Nokkur grömm af einlægni Bæjarlind 14-16, 201 Kópavogur Síjni 510-3700 bladid(g>vbl.is ISSN 1670-5947 FRJÁLST OG ÓHÁÐ Detroit jafnaði metin - bls. 22 Lóðin óhreyfð í 45 ár - bls. 4 Gunnar bæjarstjóri Hestur hjá rakara - bls. 6 Um 90 uppsagnir á tveimur dögum Orkuveitan í sumarbústaðabransann: 600 milljónir I gróða Um 40 missa vinnuna á Akureyri - um 50 á Bíldudal Allar líkur eru á að sútunar- fyrirtækið Skinnaiðnaður ó Akureyri hætti starfsemi innan skamms og að starfsmenn fyrirtækisins - hátt í 40 manns - missi vinnuna. Níu starfs- menn hafa þegar fengið uppsagn- arbréf og aðrir starfsmenn fá þau í þessum mánuði. Að sögn Ormars Ör- lygssonar, framkvæmda- stjóra Skinnaiðnaðar, hef- ur rekstur fyrirtækisins gengið erfiðlega í eitt og hólft ár. „Það hefur verið minni sala en áætlanir okkar gerðu ráð fyrir. Við það bætist að verð í erlendri mynt hefur verið að lækka ofan á óhagstæða gengisþróun." Skinnaiðnaður hefur framleitt mokkaskinn til fatnaðar og um 98% af framleiðslunni hafa verið flutt út. Þorsteinn Arnórsson, starfsmað- ur stéttarfélagsins Einingar-Iðju á Akureyri, sagði í samtali við Blaðið að þetta væri að sjálfsögðu áfall og að mikil óvissa væri fram undan. Haldinn hafi verið fundur með starfs- mönnum þar sem þetta var tilkynnt og stemmningin hafi verið ákaflega dapurleg. Um 50 missa vinnuna á Bíldudal Þessar fréttir koma í kjölfar tilkynningar um að fyrirtækið Bíldælingur hafi sagt öllum starfsmönnum sínum, um 50 að tölu, upp störfum. Ástæða uppsagn- arinnar er að sögn rekstr- arerfiðleikar fyrirtækisins en verið er að endurskoða rekstrarumhverfi þess. Forráðamenn eru þó ekki bjartsýnir á að úr rætist. Að sögn Guðmundar Guðlaugsson- ar, sveitarstjóra Vesturbyggðar, eru þessar fréttir mikið reiðarslag, enda er um að ræða stóran hluta af íbúum þessa um 230 manna bæjarfélags. „Það er að sjólfsögðu alltaf erfitt þegar svona stór hópur missir vinn- una,“ sagði Guðmundur. Fjögur fyrirtæki á sex árum Guðrún Stella Gissurardóttir, for- stöðumaður Svæðisvinnumiðlunar Vestfjarða, tekur í sama streng. „Þetta er að sjólfsögðu hörmulegt ástand. Fyrir eru níu einstaklingar ó atvinnuleysisskrá og atvinnuástand- ið á staðnum hefur ekki verið gott að undanfórnu.“ Á um sex árum hafa nokkur fyrirtæki hætt rekstri eða orðið gjald- þrota, m.a. Trostan, Rauðfeldur og Fiskvinnsla Þórðar Jónssonar. Við það bætist Bíldælingur nú. Að sögn Guðrúnar eru dæmi um að sama fólkið hafi unnið hjá öllum þessum fyrirtækjum og hafi því misst vinn- una fjórum sinnum á tun sex árum. I Þetta er að sjálfsögðu hörmulegt ástand. Blaðið/Gunnar Béndjr? „Hann gaf sig ekki þótt það væri reynt,“ sagði Bjarni Júlíusson, formaður Stangaveiðifélags Reykjavíkur, þegar hann óð í land á Brotinu í Norðurá eftir að hann hafði tekið fyrstu köstin í ánni á þessu sumri. Enginn lax var kominn á land í Norðurá í gærdag en einn hafði sloppið af í Stekknum. Á stjórnarfundi Orkuveitu Reykjavíkur í gær var samþykkt tillaga þess efnis að Orkuveitan selji um 600 sumarhúsalóðir við Úlfljótsvatn. Heimildir Blaðsins segja að hugsanlegt heildarverð- mæti lóðanna sé um 600 millj- ónir króna. Alfreð Þorsteinsson, formaður Orkuveitunnar, sagði í samtali við Blaðið að það væri ekki meiningin að Orkuveitan ætl- aði að standa í byggingu sumarbú- staða, eins og kom fram á forsíðu Fréttablaðsins í gær. Klasi hf., félag í eigu íslandsbanka, er með Orkuveitunni í félaginu Ulfljóts- vatni, frístundabyggð, sem ætlar að undirbúa svæðið með vegagerð og öðru slíku. Síðan ætlar Orku- veitan að selja orkuna inn á það. Eðlilegu markaðsverði fylgt „Við förum í þetta verkefni til þess að þróa sumarbústaðabyggð og ætlum svo að selja lóðir til einstaklinga. Við munum m.a. sjá fyrir heitu og köldu vatni og rafmagni.“ Alfreð vildi ekki segja hvert söluverð lóðanna yrði en sagði að eðlilegu markaðsverði yrði fylgt. Lóðimar era á því svæði sem er hvað hæst í verði um þessar mundir. Samkvæmt heimildum Blaðsins má búast við því að hver hektari landsins, sem fer undir sumarhús, fari á um og yfir tvær milljónir króna, og því er heildarverðmæti svæðisins gífurlegt. í Fréttablaðinu í gær sagði að lágmarksstærð lóðanna yrði hálfur hektari og því er ljóst að heildarsöluverðmæti verði yfir 600 milljónum. Alfreð segir Orku- veituna ekki hafa haft neinn arð af þessum jörðum, utan þess sem kemur frá orkuvinnslunni. „Við erum með þessu að auka arðsemi landsins.“ Það er reiknað með að fyrstu bústaðirair geti risið sum- arið 2007.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.