blaðið - 02.06.2005, Blaðsíða 13

blaðið - 02.06.2005, Blaðsíða 13
blaðið I fimmtudagur, 2. júní 2005 Birgitta grillar fyrir stelpurnar Birgitta Haukdal var hress og kát þegar Blaðið náði af henni tali. „Ég er mikið íyrir léttan mat. Mér finnst mjög gott þegar ég fer út að borða að panta hreinlega tvo forrétti. Ég er í raun algert forrétt- afrík,“ segir Birgitta glöð í bragði. “Það er rosalega gott að grilla hum- ar með hvítlauk og léttu salati, til dæmis. Svo er eitt líka rosalega gott en það er að setja grænmeti og krabbakjöt á spjót og pensla H--------- og þetta má alveg bren- na aðeins. Það á að grilla þetta almennilega vel með hvítlauksolíu. Það má setja hvað sem er - bara það grænmeti sem til er í húsinu - papriku, sveppi - zucchini er mjög gott - og þetta má alveg brenna aðeins. Það á að grilla þetta almennilega." Aðspurð um steikurnar segir Birgitta hlæjandi: „Karlmaðurinn sér um það. Það er fínt að hafa eitt- hvert hlutverk fyrir hann.“ »iO#SONOMA Hamborgari: er ekki bara Með keðjumyndun og skyndi- bitavæðingu hefur hamborgarinn fengið á sig slæman nrðstír, og oft verið bendlaður við ruslfæði. Þetta er hin mesta synd, því rétt grillaður hamborgari er herramannsmatur. Það er alls ekki sama hvemig hamborgararerugrillaðir. Samfélagið verður meira og meira meðvitað um fitu og það er gott og blessað, en ef þú vilt fá alminnilegan, safaríkan, syndugan hamborgara þarftu borgara sem er svolítið rúmlega feitur, og það er ekki galið að búa hann til sjálfur. Ekki er vitlaust að leita aó hakki sem er með 15% fituinnihaldi eða meira - og jafnvel biðja kjötiðnaðarmanninn um að hakka fyrir þig á staðnum. Það munar miklu uppá bragð og ferskleika. Ekki þrýsta Þegar hakkið er kryddað og formað í borgara er ekki nauðsynlegt að miða að alveg kringlóttum og nákvæmum stykkjum eins og fóst út úr búð. Ekki þrýsta og hnoða of mikið saman - mótið kjötið frekar þangað til það tollir saman en ekki mikið meira. Ráð er að bleyta hendumar örh'tið svo kjöthakkið festist ekki við þær. Á þessu stigi málsins er líka hægt að blanda allskonar hlutum í kjötið - þurrkuðum eða ferskum kryddjurtum, hvítlauk, osti, gráðosti, fetaosti, barbecuesósu, salsa, ólívum, sneyddum tómötum eða kurluðu beikoni, svo eitthvað sé nefnt. Veljið hamborgarabrauð af kost- gæfni. Ef leitað er af svolítilli natni eftir brauði - jafnvel í næsta bakarí - þá má finna allskyns rúnnstykki, kjallarabollur og fleira. Hér er hugmyndaflugið það eina sem stöðvar þig. Glóðarsteikt snilld Reynið að standast það þegar borgarinn er svo kominn á grillið að þrýsta ofaná hann með grillspaða - allur safi sem þrýstist úr borgaranum fer einfaldlega til spillis. Blíðlega grillaður borgari er góður borgari. Ef rétt er haldið á grillspöðunum á að verða til glóðarsteikt snilld í brauði sem vætir bragðlaukana með minningunni einni saman í marga daga á eftir. /----------------------------------------------------------------------------------N BAÐSTOFAN 20% AFSLÁ^UR AF DALTECO HORNBAÐKERUM Sérhannað fyrir Norðurlönd www.badstofan.is v

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.