blaðið - 02.06.2005, Side 11

blaðið - 02.06.2005, Side 11
bladið I fimmtudagur, 2. júní 2005 gíLSffi Óskar hafði samband við Blaðið: Yfirvöld eru braskararnir Ég vil bara koma því á framfæri vegna fréttar sem Blaðið birti ó for- síðu með fyrirsögninni „Fasteigna- braskarar á leigumarkaðnum" [18. maí] að það eru yfirvöld í Reykjavík sem eru braskararnir í þessu máli. Fasteignagjöld hafa farið upp úr öllu valdi síðustu misseri, ofan á þetta bæta þeir holræsagjöldum. Eina leiðin fyrir menn sem leigja út er að hækka leiguna. Einar Ágústsson skritaði Blaðinu: Forseti til sölu? Hvemig er þetta með blessaðan herra Ólaf Ragnar Grímsson for- seta? Ég hugsa að manni myndi ekki bregða ef þeir prentuðu auglýs- ingu frá einhveiju stórfyrirtækinu í bullandi útrás aftan á nýstraujaðan jakkann hans. Hann byrjaði á því að breyta forsetaembættinu í ferðaskrif- stofu fyrir fólk sem langaði svo mikið að skoða Kínamúrinn. Auðvitað er fínt að íslensku fyrirtækin geti skap- að sér viðskiptatækifæri í útlöndum en eiga þau ekki næga peninga fyrir, þótt þau þurfi ekki að breyta heim- sókn okkar æðsta yfirvalds (hann hef- ur jú neitunarvald) til útlanda í eina risastóra græðgisferð sem veldur því að níðst verður á saklausum bömum í svitabúllum? Því næst bauð hann kollega sínum frá Indlandi í heim- sókn, sem er svo sem gott og blessað, en manni er nú spum hvort þessi Abdul Kalam hafi ekki frekar komið í heimsókn til Actavis heldur en til forseta og frúar. Fyrst fór hann vist á ráðstefnu með þeim, svo lagði hann homstein að húsi þeirra og þar fram eftir götunum. Hvað þarf ég að borga svo Ólafur og Dorrit komi í bama- afmæli til mín? Jafnvel klædd sem trúðar í búningum merktum nýja Eimskipaveldinu? Helga skrifar: Ég er 13 ára stelpa og bý í Hafnar- firðinum, sem er ekki uppi í sveit eins og sumir Reykvíkingar halda. Ég er nýkomin inn en ég var úti. Já, ég var úti eins og ég geri flest kvöld. Mig langaði aðeins að ræða um mitt fólk. Af hveiju ætti þriggja til fjögurra ára krakki að vera úti, einn? Böm mega ekki vera úti svo seint nema með for- eldrum. En hvar eru foreldrarnir? Jú, þeir eru fyrir framan skjáinn! Hvaða skjó?Nú,sjónvarpsskjóinn!Eðatölvu- skjáinn! Við krakkamir emm ekki þeir einu sem eru í tölvunni. Þegar ég var yngri, og reyndar enn, var ég vön að heyra þessar línur: „Ekki núna, ég er að horfa á fréttimar“. Eða: „Nei, 24 er í sjónvarpinu". Eða þá að ég spyr um hjálp með lærdómin eða hvort ein- hver nenni út að ganga eða hjóla þá segja þau jó, en koma þau? NEI. Þau em að horfa ó sjónvarpið! Ég hata þetta. Þau gleyma mér, heyra ekki það sem ég segi! Allt út af þessum þætti eða sjónvarpinu, það er hræði- legt. Ég er komin með nóg! Ég veit að tölvumar eru að yfirtaka líf sumra en það þýðir að foreldrar ættu kannski að stoppa þetta með því t.d. að leyfa aðeins tvær klst. á viku í tölvunni. Það væri skárra. Og hvemig væri að fjölskyldan forðaðist glápið og gerði eitthvað skemmtilegt og nyti lífsins saman, svona einu sinni? Halldóra hringdi: Flugvöllurinn er nauðsynleg tenging við landsbyggðina Mér finnst eins og flugvallarmólið hafi gleymst í umræðum upp á síð- kastið. Þetta þykir mér mjög miður því með því gleymist þetta mikilvæga mólefni höfuðborgarbúa. Nú er verið að tala um einhvern flugvöll uppi á heiði sem eigi að koma í stað þess sem er í Vatnsmýrinni en það sér hver ein- asti maður að sú stefna gengur eng- an veginn. Þá getum við eins látið okkur nægja flugvöllinn í Keflavík því jafnlangt er að fara. Það sem við missum við flutning innanlandsflugs úr Reykjavík er tenging við lands- byggðina, sem er hverri höfuðborg nauðsynleg. Ég blæs líka á alla gagnrýni um að flugvöllurinn sé ímiðriborg. Mið- borgin er engan veginn í nólægð við flugvöllinn. Auk þess má finna flugvelli í stórborgum víða um heim. Flug- völlurinn skal standa. Lesendabréf Blaðinu hefur borist fjöldi lesenda- bréfa og símtala frá lesendum frá því það hóf útgáfu og ljóst að mörg- um Islendingum liggur ýmislegt á hjarta. Skoðanir almennings eru velkomnar og verða þær birtar í Blaðinu eftir því sem við verður komið. Hægt er að senda bréf á veffangið frettir@vbl.is eða póstleiðis á Blaðið Bæjarlind 14-16 201 Kópavognr merkt Bréf til blaðsins. VIÐ BORGUM AF ÍBÚÐALÁNINU Dæmi um mánaöariögjald af KB Lánavernd m.v. 10 milljóna kr. KB Ibúöalán til 40 ára og aö I KB Lánavernd taki yfir greiöslur af láninu í u.þ.b. þrjú ár. Aldur Karl Kona 25 ára 385 kr. 317 kr. 35 ára 538 kr. 522 kr. 45 ára 1.195 kr. 1.069 kr. Alvarleg áföll gera sjaldnast boö á undan sér og þeir sem fyrir þeim veröa eru oft illa í stakk búnir aö kljást viö fjárhagsskuldbindingar eins og greiöslur af íbúðarhúsnæöi. KB Lánavernd tryggir greiöslur afborgana og vaxta KB íbúöaláns viö andlát eöa alvarlegan sjúkdóm. Nánari upplýsingar og umsókn má nálgast í þjónustuveri KB banka í síma 444 7000, á kbbanki.is eöa í næsta útibúi. KB Lánavernd er unnin í samvinnu viö KB líf, dótturfélag KB banka. KB BANKI

x

blaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.