blaðið - 02.06.2005, Blaðsíða 15

blaðið - 02.06.2005, Blaðsíða 15
blaðið I fimmtudagur, 2. júní 2005 erlent 15 Hjóna- bandsmet Percy og Florence Arrowsmith fógn- uðu í gær 80 ára hjúskaparafmæli sínu. Samkvæmt Heimsmetabók Guinness hafa engin núlifandi hjón í heiminum verið gift lengur. Percy er 105 ára og Florence 100 ára. Þau hitt- ust í kirkju í Hereford í Englandi þar sem hann söng í kórnum og hún var kennari í sunnudagaskólanum. Hjón- in, sem eiga þijú böm, sex bamaböm og níu bamabamaböm, segja að lykillinn að löngu og hamingjuríku hjónabandi þeirra sé að fara ekki að sofa án þess að hafa leyst úr ágrein- ingi. Þau segjast kyssast og haldast í hendur á hveiju kvöldi áður en þau fara í rúmið. Hjónin fengu vitaskuld heillaóskaskeyti frá Elísabetu Eng- landsdrottningu. Eyöilegging vegna regnstorma Að minnsta kosti 15 hús hmndu af hæð í Suður-Kaliforníu í gær. Miklir regnstormar hafa gengið yfir héraðið á síðustu vikum og orðið til þess að það losnaði um jarðveginn sem tók húsin með sér. Engar fréttir hafa bor- ist um slys á fólki en tjónið er sagt gríðarlegt. Særðir á sjúkrahúsi í Kandahar Sprencna jarðarfor Sprenging í bænahúsi í Kandahar í Afganistan varð að minnsta kosti 20 manns að bana og særði um 70 manns, þar af ijóra alvarlega. Sprengjan varð í jarðarfór Mullahs Abduls Fayaz, klerks sem var and- stæðingur talíbana. Landstjórinn í Kandahar sagði al-Qaida bera ábyrgð á árásinni. Hann sagði kennsl hafa verið borin á lík árásarmannsins og sá væri þekktur hryðjuverkamaður. Mullah Abdul Fayaz, áhrifamesti trúarleiðtogi í Kandahar, var skot- inn til bana af talíbönum síðastlið- inn sunnudag. Viku fyrir dauða sinn hafði hann skorað á almenning að styðja ekki uppreisnarmenn í land- inu. Kosið í Hollandi Hollendingar greiddu atkvæði um nýja stjómarskrá Evrópusambands- ins í gær. Niðurstaða var ekki ljós þegar Blaðið fór í prentun en skoð- anakannanir fyrir kosningamar bentu til að stjórnarskránni yrði hafnað með 60% atkvæða. Hollenskur kjósandi segir nei við stjóm- arskrá Evrópusambandsins. Ungur drengur, sem var í hópi gíslanna í Beslan á síðasta árí, bíður þess að leggja blóm að gröf óþekkta hermanns- ins í Moskvu. Þu nærð goðum arangri með réttum efnum Við höfum allt sem þú þarfnast. Rugger 98 Flugger 98 Þekjandi akryl-alkýðviðarvörn, vatnsþynnanleg. Texolin Þekjandi alkýðviðarvörn terpentínuþynnanleg. Flugger Sv 97 Flligger 97 Þekjandi alkýðviðarvörn, terpentínuþynnanleg. Gæðamalning Fagleg ráðgjöf ! Frábær hula IMT1 Tilboð Afsláttur á útimálningu og viðarvörn í verslunum Hörpu Sjafnar 10 itr. 4.990 kr. HarpaSjöfn Stórhöfða 44 Bæjarlind 6 Austurslða 2 Skeifan4 Dalshraun13 Austurvegur 69 Snorrabraut 56 Hafnargata 90 Hlfðarvegur 2-4 www.harpasjofn.iswww.flugger.com Flligger

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.