blaðið - 02.06.2005, Page 4

blaðið - 02.06.2005, Page 4
fimmtudagur, 2. júní 2005 I blaðið Stólaskipti í bæjarstjórn Kópavogs í gær tók Gunnar I. Birgisson, Sjálf- stæðisflokki, við starfí bæjarstjóra Kópavogs af Hansínu Ástu Björgvins- dóttur, Framsóknarflokki. Eins tekur Hansína við starfí Gunnars sem for- maður bæjarráðs. Gunnar sagði það verða að koma í ljós við hveiju maður eigi að búast í hans bæjarstjóratíð. „Með nýjum mönnum koma alltaf nýir siðirsagði hann í samtali við Blaðið. JÉg vil vinna í þeim anda sem við höfum unnið hér. Við erum með málefnasamning frá því 2002 og ég mun vinna eftir honum og stefni að því að gera Kópavog að eftirsóttasta byggðarlagi landsins eins og það er núna. Við munum bjóða upp á bestu þjónustuna sem hægt er.“ Stólaskipti Gunnars og Hansínu voru ákveðin í upphafi kjörtímabilsins. „Ég hef nú Gunnar I. Birgisson, bæjarstjóri Kópa- vogs, segist ekki vera gestur þar, búinn að vera formaður bæjarráðs í 15 ár og þekkir innviðina vel. bara eitt ár og svo verða kosningar og þá gefa bæjarbúar mér einkunn, eða þessum pólitísku flokkum að minnsta kosti,“ sagði nýbakaður bæj- arstjóri Kópavogs. Kosningar um stjórnarskrá Evrópusambandsins: ESB-aðild ekki fýsilegur kostur í Ijósi úrslita - segir Eiríkur Bergmann Einarsson Evrópusérfræðingur Niðurstöður kosninga um stjóm- arskrá Evrópusambandsins (ESB) hafa orðið leiðtogum sambandsins mikið áfall og setur framtíð þess í mikla óvissu. Eiríkur Bergmann Ein- arsson, aðjúnkt í stjómmálafræði við Háskóla íslands og sérfræðingur í málefhum sambandsins, telur að niðurstöðumar muni hafa áhrif hér á landi og tefja opinbera umræðu um aðild íslendinga að ESB. „Evrópusambandið er í miklum vandræðum með þetta mál og óviss- an er mikil í augnablikinu. Það er kannski ekki alveg ný staða þegar tekist er á um mikilsverð málefni innan sambandsins en alltaf þegar ESB á við slíkan vanda að etja segir það sig sjálft að það hefur neikvæð áhrif á almenningsálitið innan að- ildarríkjanna og ekki síður meðal þeirra þjóða sem íhuga aðild. Þar til ESB leysir þennan innri vanda, sem það klárlega stendur ffammi fyrir, þá mim íslendingum ekki þykja það fysilegur kostur að ganga til aðildar- viðræðna." Andstæðingar Evrópuaðildar í Nor- egi segja að Evrópusambandið sjálft virðist ekki vita hvert eðli þess sé eða eigi að vera og því sé fráleitt að íhuga aðild að einhverju sem enginn viti hvað sé. Eiríkur tekur undir það að sú staða valdi vanda í Evrópuumræð- unni en telur þó að hún eigi ekki að koma í veg fyrir að menn velti því fyr- ir sér hvort landið eigi erindi í ESB eða ekki. JEvrópusambandið hefiir verið í sífelldri þróun í 50 ára sögu sinni og menn hafa aldrei vitað hver endastöðin yrði. Það hefur því alltaf mátt segja að menn eigi að bíða og sjá til. Það eru því ekki rök í sjálfu sér en á þessu augnabliki er ekki nema eðlilegt að menn staldri aðeins við og bíði eftir að það greiðist úr þessari flækju." Eiríkur telur að vandi ESB felist ekki beinlínis í stjómarskránni sem plaggi, fólk sé ekki að kjósa um hana sem slíka. „Það er þó greinilegt að það er komin djúp gjá á milli leiðtoga ESB og aðildarríkja þess annars vegar og almennings hins vegar.“ Hann segir að þarna spili margt inn í, stækkun sambandsins, efnahagsvandi, innri vandi ESB og svo mætti áfram telja. „Það má segja að þetta hafi kannski ekki verið besti vettvangurinn fyrir almenning ESB til að láta óánægju sína í Ijós en það er ekki hægt að líta ffam hjá því að tækifærin til slíks hafa verið afar fá.“ Fylgi Framsóknar í sögulegu lágmarki Fylgi þjóðarinnar við Framsókn- arflokkinn hefur aldrei verið minna samkvæmt Þjóðarpúlsi Gallup, sem fi*éttastofa RÚV greindi frá í gær- kvöldi. Á hinn bóginn eykst fylgi stóru flokkanna beggja h'tillega á meðan Vinstri grænir og fijálslyndir standa í stað. Samkvæmt Þjóðarpúlsi Gallup nýtur Sjálfstæðisflokkurinn nú stuðn- ings 38% kjósenda, en Samfylkingin kemur fast á hæla hans með 34%. Er óhætt að tala um „turnana tvo“ í því samhengi, því hinir flokkarnir þrír hafa aðeins um 28% samanlagt. Fylgi við Vinstri græna reyndist nánast óbreytt fimmta mánuðinn í röð eða 15%, en Framsóknarflokkur- inn tapar enn fylgi og hefur aldrei borið jafhlítið úr býtum í könnunum Gallups, en aðeins 8,5% kjósenda studdu flokkinn. Lægst hafði Fram- sókn áður farið í 10%, en flokkurinn var með 18% fylgi í alþingiskosning- um fyrir tveimur árum. Fijálslyndir breytast á hinn bóginn lítið og eru með 5% fylgi. Könnunin var gerð frá 27. apríl til 25. maí. Lóðin óhreyfð í Borgaryfirvöld hafa ekkert sinnt dóttur skólastjóra hefur þetta valdið lóðinni í kringum Laugalækjarskóla starfsmönnum, foreldrum og börnum frá árinu 1960 en hún er ómalbikuð nokkrum vandræðum í gegnum tíð- ogófrágengin. AðsögnAuðarStefáns- ina. TLBOÐSDEKK FLOKKS DEKK • FAGMEfSIIMSKA I FYRIRRUNI FOLKSBILADEKK • JEPPADEKK DEKKJAHOTEL VIO GEYMUM DEKKIN FYRIR ÞIG ALLT ÁRIÐ GEGN VÆGU GJALDI 45 ár „Þetta er að sjálfsögðu mjög baga- legt. Hingað berst ryk og skítur inn um leið og vind herðir og sandstrók- arnir ganga yfir bfla hér fyrir utan. Ennfremur er ekkert við að vera fyrir nemendur - hér eru böm alveg upp í 12 ára aldur sem hafa á skólalóðinni ekkert annað við að vera en tvö fót- boltamörk." Auður segist ítrekað vera búin að benda borgaryfirvöldum á vandann en fram að þessu án árangurs. „Það er ekki útht fyrir að breyting verði hér á því samkvæmt áætlunum hafa engir fjármunir verið settir í þetta verkefhi næstu þijú árin.“ ■ Sjóklæða- gerðin kaup- ir Ramma- gerðina Sjóklæðagerðin hf. keypti í gær allt hlutafé í Rammagerðinni ehf. Að sögn Mar- inós Guðmunds- sonar, forstjóra Sjóklæðagerðar- innar, hyggjast nýir eigendur nýta tækifæri sem myndast með vaxandi ferðamannastraumi til í slands og styrkja verslanir félags- ins þegar fram líða stundir. Rammagerðin hefur undanfar- ið meðal annars rekið þijár versl- anir - í Geysishúsinu, í Hafhar- stræti og í Bankastræti. Fyrrum stjómendur þess hafa þegar látið af störfum en engu starfsfólki verður sagt upp störfum. „Við teljum að við getum sam- nýtt rekstur þessara tveggja fé- laga, meðal annars skriístofu, húsnæði og þess háttar. Sjó- klæðagerðin hefur verið í versl- unarrekstri og við sjáum þama ágætistækifæri til að spara f rekstrarkostnaði. Ennfremur sjá- um við fram á aukin sóknartæki- færi á markaði," sagði Marinó. Kaupverð fæst ekki uppgefið. - Kassaklifur - GPS ratleikir - Bótasiglingar - Vatnaleikir - Frumbyggjastö f - 9-12 ÚLFLJÓTSVATNI Upplýsingar og skróning ó netinu: www.ulfljotsvatn.is 7-8 ára Einstök krakkanámskeið Útilíf og œvmtýri! Almenn námskeið Vinir, fjör og hópefli! INNRITUN ER HAFIN - Opið virka daga kl. 10-16 - sími 550 9800 - sumarbudir@ulfljotsvatn.is.

x

blaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.