blaðið - 02.06.2005, Side 20

blaðið - 02.06.2005, Side 20
2 fimmtudagur, 2. júní 2005 I blaðið Sjtfflil) O-jB Kók ekki bara gosdrykkur snorri@vbl.is ís .endingar drekka ótrúlegt magn af kóki ár hvert. Til er fólk sem telur sig kókfíkla, eða kókista, og er sannfært um að það geti ekki lifað án þess að fá kók. Sykurfikn er þekkt í læknisfræðunum og því skal sannleiksgildi kókfikn- ar ekki dregið í efa - en ljóst má vera að kók er aldeilis ekki bara gosdrykkur. Margir hafa miklar skoðanir á töframeðalinu kóki og notagildi þess á heimil- inu. Hér fylgja nokkur dæmi: Barist gegn klístri með klístri Sagt er að ef þú lendir í því að einhver klessi tyggigúmmíi í hárið getir þú lagt hárið í skál með örlitlu kóki og látið liggja í 2-3 mínútur. Þá mun tyggigúmmí- ið renna af. Hver þarf rándýrt permanent? Einnig eru til lýsingar á því að kona sem baðaði sítt hár upp úr goslausu kóki, lét liggja í 2-3 mínútur og skolaði síðan vandlega úr hárinu, hafi fengið yndis- fríðar krullur. Augljósa spurningin er. Hvernig í ósköpunum henni datt þetta fyrst í hug... Óhrein klósett heyra sögunni til Ef þessu ágæta töframeðali er hellt í klósettskálina og látið liggja í klukku- tíma er hægt að bursta og sturta niður mögnuðustu óhreinindum. Það gerir sítrónusýran í kókinu en hún fjarlægir verstu bletti af postulíni. Olíublettir ekki lengur vandamál í Ástralíu er það vel þekkt húsráð við olíublettum í innkeyrslum og bflskúr- um að hella kóki á þá, leyfa því að liggja og spúla svo með venjulegri vatns- slöngu. Vélahreinsun Að lokum er ráð að minnast á að virka efnið í kóki er fosfórsýra en ph-gildi hennar er um 2,8 á ph-skalanum. í henni má leysa upp jámnagla á um það bil fjórum sólarhringum. Samkvæmt heimildum hafa bflstjórar, sem keyra út kók um allan heim, verið að hreinsa vélamar sínar með kóki síðustu 20-25 árin. Það er þó ljóst að engin þessara staðreynda er líkleg til þess að draga úr kókneyslu íslendinga, enda er kókið hér um bil þjóðardrykkur og mikilvægur í þjóðlegum réttum, eins og kók og pylsu eða kók og prins póló. Skálið því í kóki þegar ykkur sýnist og gleðjist yfir því að það er sannarlega til margra hluta nytsamlegt. .! Á að bjóða mörgum til veislu - ætlarðu að senda boðskort? íslandspóstur hefur gefið út glæsileg tæki- færisfrímerki sem eru tilvalin á boðskort o.fl. Með því að fara á heimasíðu Póstsins, www.postur.is, færð þú ókeypis aðgang að nýjustu upplýsingum um heimilisföng ættingja og vina. Þar er nú hægt að búa til og geyma sinn eigin heimilisfangalista sem getur nýst við ótal skemmtileg tækifæri. Við aðstoðum þig við að koma boðs- kortunum á réttan stað á réttum tíma. Húsráð Leiðindi og límmiðar Límmiðar geta verið hið prýðilegasta skraut, ef vel er með farið. Límmiðar í röngum höndum verða fljótt plága, hins vegar - sérstaklega ef hendurn- ar eru 'í yngri kantinum og límmið- arnir til dæmis æpandi myndir af að- dáunarverðum poppstjömum líðandi stundar - kann að reynast erfitt að standa í sífelldu skrapi á miðum sem hafa hafnað á miður heppilegum stöð- um. Sérstaklega reynist leiðinlegt að ná límmiðum af gleri - rúðum, spegl- um og þvflíku. Þá er gott að nota húsráð sem hefur reynst ráðspökum húsmæðrum vel, t.d. við að hreinsa límmiða af verðandi sultukrukkum; að dreypa nokkrum dropum af sí- trónusafa á límmiðann. Þá rennur límið mun betur af og húsráðandi losnar undan því að standa í enda- lausu skrapi. Frystirinn er drjúgur. Sítrónan leysir vandann. Frystirinn leynir á sér Stundum fara hlutir til spillis vegna þess að við vitum hreinlega ekki hvað við eigum að gera við þá. Þar er frystir heimilisins vanmetinn hjálparkokkur en það er hægt að írysta ýmislegt. Ef þú átt klakapoka geturðu tekið afgangsijóma og fryst hann í pokanum og brotið svo af einn bút fyrir sósu eða súpu. Einnig vill það gerast að ávextir skemmist - þá er ráð að skera þá niður og frysta. Nið- urskorin appelsína, sítróna eða lime gerir glæsilegan og litríkan klaka. Til þess að matur fijósi hratt er ráð að geyma hann í grunnum döllum og/ eða litlum skömmtum, en þvi hraðar sem matur frýs, því öruggara verður að borða hann. Ef þú þarft að frysta mat, byrjaðu þá að raða í botninn á frystinum. Þannig fær kalda loftið að leika um matinn allan og kælir hann hraðar. m

x

blaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.