blaðið - 02.06.2005, Blaðsíða 29

blaðið - 02.06.2005, Blaðsíða 29
blaðið I fimmtudagur, 2. júní 2005 Fjölmiðlar Þrælavinna kínverskra kvenna kolbrun@vbl.is Forseti íslands á skilið endalaust hrós fyrir að hafa í Kínafór sinni brýnt mikilvægi mannréttinda í ræðu sem hann hélt yfir kínversk- um stúdentum. Lengi hefur manni fundist að íslenskir ráðamenn láti sig mannréttindi litlu skipta, sérstak- lega þegar þeir koma í heimsókn til einræðisríkja. Aðspurðir segjast þeir ætla að ræða mannréttindamál við einræðisherrann en maður hefur á tilfinningunni að lítið verði úr fram- kvæmdum - í besta falli léttvægt hjal í plusssófum um að sinn sé siður í landi hverju. Nokkuð sem ég held að geri hvaða einræðisherra sem er, bara bærilega sáttan. Þess vegna tek ég ofan fyrir forsetanum. Hann gekk lengra en maður á að venjast. Svo sá ég Kastljósþátt þar sem sýnd var heimildarmynd um Kínaferð- ina. Fréttamenn RÚV ræddu þar við íslenska viðskiptajöfra og aðra sem sögðu afar hent- ugt að hasla sér völl í Kína því þar væri hægt að borga alþýðunni lág laun. Sýnd var mynd af stúlkum og konum að vinnu. Fram kom að þær ynnu tíu tíma á dag, sex daga vikunn- ar, fyrir skítalaun (afsakið orðbragðið en það er nauðsynlegt í þessu tilviki). „Nútíma þrælahald" voru orð sem fréttamenn notuðu í þessu sambandi en við- skiptajöfrarnir virtust nú ekki vilja taka undir það. Ég beið alltaf eftir því að þeir segðust ætla að borga tvöfóld laun, jafnvel þre- fóld, en ég heyrði þá aldr- ei segja það. Niðurstaða þeirra var eitthvað á þá leið að þetta væri nú bara raunveruleikinn. Þá áttaði ég mig á því að sennilega finnst þeim ekkert athugavert við þetta nútímaþræla- hald. Ég gat ekki annað en sett mig í spor kvennanna og það þyrmdi yfir mig. Það var rætt við forsetann um þessi mál og hann talaði líka um að menn yrðu að horfast í augu við kínverskan raunveruleika. Gott og vel, þetta er raunveruleikinn og nú breytum við honum. Ég treysti forsetanum til að íhuga þessi mál, ræða við íslenska viðskiptajöfra og koma með lausn sem verður kínverskri alþýðu til bóta. 21.40 Smáþjóðaleikarnir 2005 (3:5) 22.00 Tíufréttir 22.25 Aðþrengdar eiginkonur (13:23) í Aðþrengdum eiginkonum í kvöld kemst Lynette að leyndarmáli þegar tengdapabbi hennar, sem Ryan O’Neal leikur, kemur í heimsókn. Susan hefur áhyggjur af því hvað Julie og Zach eru hrifin hvort af öðm, Rex reynir að sætt- ast við Bree og Gabrielle verður fyrir áfalli þegar foreldrar Johns biðja hana að gera sér greiða. 21.15 American Idol (Fallen Idol) Corey Clark, sem komst í 12 manna úrslit í annarri syrpunni, heldur því fram að hann og Paula Abdul, einn dómaranna, hafi átt í ástarsambandi. í þættinum er fjallað um þessar ásakan- ir og rætt við hlutaöeigendur en Paula Abdul neitar allri sök. 22.00 Third Watch (8:22) (Næturvaktin 6) 22.45 Recoil Stranglega bönnuð bömum. 23.10 Soprano-fjölskyldan (7:13) 00.20 Medium (12:16) (Miðillinn) 01.00 The Shadow (Skugginn) Lamont Cranston hefur lifað spilltu og ósiðlegu lífi þegar hann endurfæðist sem holdgervingur réttlætisins og tekur að berjast gegn glæpum. Aðal- hlutverk: Alec Baldwin og John Lone. Leikstjóri er Russell Mulcahy. 1994. Stranglega bönnuð börnum. 00.05 Kastljósið 00.25 Dagskrárlok 02.45 TopGun (Þeir bestu) 04.30 Fréttir og ísland í dag Fréttir og ísland í dag endursýnt frá því fyrr i kvöld. 05.50 Tónlistarmyndbönd frá PoppTiVí 21.00 According to Jim - Nýr tími 21.30 Sjáumst með Silvíu Nótt -NÝTT! 22.00 The Bachelor 22.45 Jay Leno 20.30 NBA - bestu leikirnir (Chicago Bulls - Utah Jazz 1997) 22.00 Olíssport 22.30 David Letterman 23.30 Law & Order: SVU - lokaþátt- ur (e) 23.15 Boltinn með Guðna Bergs Góðir gestir koma í heimsókn og segja álit sitt á því fréttanæmasta í fótboltanum hverju sinni. Umsjónar- menn eru Guðni Bergsson og Heimir Karlsson. 22.00 House of 1000 Corpses (Þúsund líka hús) Alvöru hrollvekja. Aðalhlutverk: Ra- inn Wilson, Chris Hardwick, Jennifer Jostyn. Leikstjóri er Rod Zombie. 2003. Stranglega bönnuð börnum. 00.15 Cheers - 3. þáttaröð (e) 00.40 Boston Public 01.20 John Doe 02.05 Óstöðvandi tónlist 00.00 NBA (Miami - Detroit) 00.00 Long Time Dead (Löngu dauður) Hryllingsmynd. Stranglega bönnuð börnum. 02.00 Bones 04.00 House of 1000 Corpses Stranglega bönnuð bömum. 21.00 Kenny vs. Spenny 21.30 Sjáðu(e) í Sjáðu erfjallað um nýjustu kvikmynd- imar og þær mest spennandi sem eru í bíó. 21.50 Meiri músfk Komdu og taktu með, boröaðu á staðnum eða fáðu sent heim Við sendum heim: 109,110,111,112,113 RÍZZO: Pcpperone, laukur, sveppir, ferekur hvitiaukur, jaiepeno, sv. pipar þap] 1 Naple Skinka, pepperone, sveppir, sv. ólífur, hvítlaukur, grœnn pipar, parmesan fy59Ö) 1 Toscana Pepperone, jalapenos, rjómaostur, ananas, sv. ólifur, hvítlaukur, svcppir, krydd Grngm Frábær sumartilboð á: Rúmum, springdýnum, latexdýnum, svampdýnum, yfirdýnum, eggjabakkadýnum,koddum og sérsniðnum svampi. ySTAOO O Uarco Akureyri: Hofsbót 4, sími: 462 3504 Egiisstaöir: Miðvangur 1, sími: 471 2954

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.