blaðið

Ulloq

blaðið - 23.06.2005, Qupperneq 1

blaðið - 23.06.2005, Qupperneq 1
 STEYPUSTÖÐIN S. 540 6800 www.steypustodin.is Hvað er Jónsmessunót - bls. 20 Blómadropar Ritstjórnar- og auglýsingasími: 510 3700 • bladid@vbl.is Tveir til þrírfremja sjálfsvíg á mánuði - bls. 2 Fáir íslenskir starfs- menn - bls. 2 Hóta ASÍ meiðyrða- máli - bls. 6 Stefnir í stórslysaár - bls. 4 Góð aðsókn á leiki sumarsins - bls. 22 ókeypis ti( heimila og fyrirtækja alla virka daga blaóió Landsbankinn sýknaður af kröfu öryrkja: Bar ekki ábyrgð á tapi vegna hlutabréfakaupa í deCODE Ríkisendurskoðun: Framúrakstur ríkisstofnana eykstenn Landsbanki íslands var í gær sýkn- aður í Héraðsdómi Reykjavíkur af rúmlega fjögurra milljóna króna kröfu manns sem keypti hlutabréf í deCODE í gegnum Landsbankann. Maðurinn, sem er 100% öryrki, keypti hlutabréf í deCODE Genetics fyrir tæpar fimm milljónir í febrúar 2000, en seldi sömu bréf rúmum tveimur árum seinna fyrir rúmar 700 þúsund kr. Stefndi hann bankanum fyrir and- virði sölutaps viðskiptanna, sem nam rúmum fjórum milljónum króna. Notaði bætur til kaupa á hluta- bréfum Forsaga málsins er að árið 1996 höf- uðkúpubrotnaði maðurinn í slysi og var í kjölfarið metinn 100% öryrki, enda glímdi hann við m.a. höfuðverk, minnis- truflanir og þunglyndi í kjölfar slyssins. Mað- urinn fékk í kjölfarið greidda um 31 milljón króna í örorkubætur frá tryggingafélagi þess sem slysinu olli. Notaði hannhlutaaf bótunum til fyrrnefndra hluta- bréfakaupa. Taldi mað- urinn síðar að hann hafi, þegar kaupin á bréfunum fóru fram, verið ófær um að taka ákvarðanir um hlutabréfakaup og að Landsbank- anum hefði átt að vera það fullljóst. Ennfremur var fyrir dómi rakið að Landsbankinn hefði keypt hlutabréf í deCODE fyrir um 1,2 milljarða kr. sem bankinn hefði síðan gefið út að hann myndi selja hér á landi, til að tryggja dreifða eignaraðild íslend- inga á fyrirtækinu. Með því taldi mað- urinn að bankinn hefði verið að selja honum eigin bréf og því átt beinna hagsmuna að gæta. Treysti á ráðgjöf Landsbankans Maðurinn bar fyrir dómi að hann hefði ekki vitað neitt um fyrirtækið sem hann var að fjárfesta í heldur treyst á ráðgjöf Landsbankans. Bank- inn staðhæfði á móti að ávallt hefði verið farið með viðskiptavinum yfir áhættu við kaup á hlutabréfum í deCODE. Fyrir dómi kom fram að maður- inn hafði áður hagnast um 240.000 krónur á viðskiptum með hlutabréf deCODE. Ennfremur að sjálf- og fjár- ræði mannsins hefði aldrei verið dreg- ið í efa, og að maðurinn hafi sjálfur óskað eftir að kaupa bréf í deCODE, en ekki hefði verið um ráðgjöf bank- ans að ræða. Var Landsbankinn því sýknaður af kröfu mannsins. Samanburður Ríkisendurskoðanda á útgjöldum ríkisstofnana við fjárheim- ildir árið 2004 bendir til þess að al- varlegur misbrestur sé á framkvæmd fjárlaga. Margir fjárlagaliðir fara langt fram úr fjárheimildum án þess að forstöðumenn þeirra og ráðuneyti bregðist við vandanum. Um 120 rík- isstofnanir og fjárlagaliðir stofnuðu til útgjalda umfram 4% heimilda, en meira en 60 fjárlagaliðir með 10% eða meira frávik. Samtals námu upp- söfnuð útgjöld umfram fjárlög 12,7 milljörðum króna í árslok 2004. Ríkisendurskoðandi segir jafnan alltof seint brugðist við þegar ljóst sé að rekstur stofnana er kominn úr böndum og að mörg dæmi séu um stofnanir sem fara ár eftir ár umfram heimildir. Þrátt fyrir þetta hafi aldr- ei komið til þess að forstöðumenn séu áminntir fyrir vikið, eins og skylt sé. Umframútgjöld stofnana koma til skerðingar á fjárveitingum næsta árs, en Ríkisendurskoðandi bend- ir á að rekstur stofnana haldi samt ótrauður áfram, þar sem fjármála- ráðuneytið fjármagni hallann með greiðslu launa og annarra útgjalda stofnana án heimilda. Viöbótarfjár- heimildir séu hins vegar ekki veittar þrátt fyrir að löngu sé búið að stofna til útgjaldanna og einsýnt að stofnan- irnar muni ekki ná að draga saman seglin til að jafna hallann. Fjársvelti eða uppsagnir for- stöðumanna? Ríkisendurskoðandi telur umfang þessara flutninga fjárheimilda milli ára svo mikið að stappi nærri stjóm- arskrárbroti. Lögð er áhersla á að ráðuneyti og forstöðumenn grípi til aðgerða strax og ljóst er að rekstrar- umfang stofnunar er meira en fjár- veitingar leyfa. Kemur til greina að stöðva greiðslur til stofnana þar til bætt hefur verið úr. Á hinn bóginn er minnt á að slík- um tilmælum hafi verið beint til ráðu- neyta áður en ástandið hafi versnað frekar en hitt. í framhaldinu er ítrek- uð sú skylda ráðuneyta að áminna forstöðumenn sem ekki fara að lög- um og reglugerð um framkvæmd fjár- laga, og gefur Ríkisendurskoðandi það ráð að forstöðumenn, sem ekki geti látið enda ná saman, séu látn- ir taka pokann sinn í lok fimm ára starfssamnings fremur en að hann sé endurnýjaður. Blaðið/Gúndi Landsbankinn var sýknaður af kröfu manns sem tapaði fjórum milljónum á hlutabréfakaupum í deCODE. 15% AFSLÁTTUR ALLA HELGINA b.qounq Laugavegur83 ■ ■

x

blaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.