blaðið - 23.06.2005, Side 14

blaðið - 23.06.2005, Side 14
 Útgáfufélag: Ár og dagur ehf. Stjórnarformaður: Sigurður G. Guðjónsson. Ritstjóri: Karl Garðarsson. Auglýsingastjóri: Steinn Kári Ragnarsson. Ritstjórn og auglýsingar: Bæjarlind 14-16,201 Kópavogur. Aðalsími: 510-3700. Símbréf á fréttadeild: 510- 3701. Símbréf á auglýsingadeild: 510-3711. Netföng: vbl@vbl.is, frettir@vbl.is, auglysingar@vbl.is. Prentun: Prentsmiðja Morgunblaðsins. Dreifing: íslandspóstur. Þjóð gegn þunglyndi Á íslandi fremja tveir til þrír einstaklingar sjálfsvíg í hveij- um mánuði. Þetta eru meðaltalstölur. Maímánuður er sýnu verstur í þessu tilviki - þá eru flest sjálfsvíg framin. Það gerist þegar sólin er hvað hæst á lofti, ekki þegar skammdegismyrk- ur hvílir yfir okkur. Orsakir sjálfsvíga geta verið margvíslegar - þau eru nátengd þunglyndi og öðrum alvarlegum geðröskun- um en síðan spila aðrir þættir inn í, svo sem efnahagsástand, persónuleg áfóll, streita og ótalmargt fleira. Þá vekur athygli að samkynhneigðir eru í sérstökum áhættuhópi. Það vekur líka athygli að árið 2000 framdi 51 einstaklingur sjálfsvíg hérlend- is, eða rúmlega fjórir að meðaltali í hveijum mánuði. Þetta var árið þegar niðursveifla hófst hér á landi og mörg heimili áttu erfitt. Margir fóru líka fram úr sér í góðærinu árin á undan og niðursveiflan var snögg. Hvort þetta hefur haft einhver áhrif skal ósagt látið, en höggið var mikið hjá mörgum. Það er líka hægt að kasta fram þeirri tilgátu að álag sem fylgir prófum í maímánuði geti haft einhver áhrif á tíðni sjálfsvíga í þeim mánuði. Það er sífellt yngra fólk sem ffemur sjálfsvíg og karl- ar eru þar í miklum meirihluta. Hvað er það í þjóðfélagi okkar sem veldur þessu? Hvað er það sem fær fólk í blóma lífsins til að taka líf sitt? Góðu fréttirnar eru þær að sjálfsvígum hefur fækkað á síðustu árum. Það hefur ekki síst gerst með öflugri fræðslu og opinni umræðu um þessi mál. Þar hefur orðið mikil breyting. Það er ekki langt síðan þögnin ein ríkti og ekki þótti viðeigandi að ræða þessi mál á opinberum vettvangi. Fræðsla getur gert kraftaverk og það að aðstandendur og vinir geti áttað sig á at- ferli þeirra sem eru í sjálfsvígshugleiðingum getur skipt sköp- um. Við megum ekki gleyma því að sjálfsvíg skilja líka eftir sig sár hjá þeim sem eftir lifa - sár sem aldrei gróa. Það ber að fagna verkefninu „Þjóð gegn þunglyndi“ sem kynnt var í gær. Verkefnið hefur verið starfrækt í tvö ár og hefur það notið stuðnings margra aðila. Þarna er unnið mikið starf sem hefur opnað augu margra. Landlæknisembættið og fagráð það sem hefur haft með þessi mál að gera hafa unnið gott starf. Þetta er þó vinna sem lýkur aldrei - fræðsla verður að vera stöðug allan ársins hring - aðeins þannig getum við fækkað sjálfsvígum. Mrr Sk / fimmtudagur, 23. júní 2005 I blaðið Smáauglýsingar 510-3737 Auglýsingadeild 510-3744 blaðið= Yflrflóð sendiherra SHOPL/SA.IS SHOPL/SA.IS. Eirikur Bergmann Einarsson stjórnmálafræðingur. Ekkert lát virðist á fjölgun sendi- herra sem eru upp á síðkastið farnir að fylla öll skúmaskot Utanríkisráðu- neytisins. Nýjustu liðsmennirnir eru kumpánar út strákaklúbbnum, þeir Guðmundur Árni Stefánsson og Markús Örn Antonsson, sem munu hitta fyrir félaga sinn, Júlíus Haf- stein, á Rauðarárstígnum sem þeg- ar er kominn ásamt Láru Margréti Ragnarsdóttur, sem sinnir þar jafn- vel enn óljósara hlutverki. Á meðan verða tryggir embættismenn í ráðu- neytinu, sem jafnan þurfa masterspróf hið minnsta til að fá þar aðeins stöðu fulltrúa, að láta sér duga að sjá slíkar stöður í hill- ingum. Það merkilega er að þessi þróun gerist á sama tíma og diplóma- tísk samskipti ríkja eru að breytast og áherslur að færast frá tvíhliða sam- skiptum yfir í marghliða samskipti í gegnum al- þjóðastofnanir. Formleg samskipti ríkja, með ofur- áherslu á tvíhliða sendi- ráð, voru komin á þegar samgöngur voru stopular og fjarskipti bæði lítil og léleg. Erfitt var að ferðast á milli landa, bréf voru lengi á leiðinni og fréttir bárust seint. Því þótti mik- ilvægt fyrir fullvalda ríki að hafa öfluga sendisveit í nágrannalöndunum til að gæta hagsmuna ríkis- ins. Almenningur átti ennfremur lítil samskipti sín á milli yfir landamæri - þau voru í höndum fulltrúa ríkisins. Breyttar aðstæður En nú eru aðstæður allar aðrar. Á tímum þegar menn eru beintengdir hringinn í kringum jarðarkringluna í gegnum netið, farsímakerfi og lág- gjaldaflugfélög, skiptir landfræðileg viðvera æ minna máli. Fjarskipti milli Reykjavíkur og Rússlands eru ekkert flóknari en á milli miðbæjar- Starfsemi hefð- bundinna sendiráða endurspegi- ar á engan hátt þær miklubreyt- ingar sem hafa orðið á aiþjóða- samskipt- ins og Breiðholts. Að skreppa í höfuðborgir ná- grannaríkjanna tekur aðeins dag- part. Samskipti ríkja, sérstaklega nágrannaríkja á Vesturlöndum, fara ekki lengur fram í gegnum sérstaka sendi- menn heldur eiga embættismenn og stjórnmálamenn nú í stöðugum sam- skipt- um á ö 11 u m stigum stjórn- sýslunn- um. ar. Ennfremur á venjulegt fólk í vísindum, viðskipt- um, íþróttum og listum í daglegum samskiptum við fjölda manns í ólíkum lönd- um. Þetta fólk þarf ekki á sendiráðum að halda til að eiga samskipti yfir landa- mæri. Það þarf ekki leng- ur milligöngu sendiráðs- starfsmanna til að stunda fjölþjóðleg viðskipti á Vest- urlöndum. Markviss forgangs- röðun Ekki er hér með sagt að mikilvægi utanríkisþjón- ustunnar hafi minnkað eða að fjárframlög til hennar séu of mikil. Þvert á móti. Sennilega hefur aldrei verið mikilvægara fyrir ríki heims að hafa á öflugri utanríkis- þjónustu á að skipa til að takast á við margvísleg alþjóðleg viðfangsefni. En samsetning hennar verður að breyt- ast í takt við síaukna alþjóðavæðingu og nýja samfélagshætti. Alþjóðleg viðfangsefni hafa orðið mun víðfeðm- ari og margslungnari en áður. Núna snúast alþjóðastjórnmál í síauknum mæli um umhverfisvernd, heimsvið- skipti og baráttu gegn alþjóðlegum hryðjuverkum og annarri alþjóð- legri glæpastarf- semi, svo eitthvað sé nefnt. Tvíhliða samskipti ríkja duga þar skammt. Til að takast á við fjölþjóðleg viðfangsefni þarf auðvitað fjölþjóð- legt samstarf að koma til, enda fer samstarf ríkja á alþjóðavettvangi í síauknum mæli fram f gegnum fjölþjóðastofn- anir á borð við Sameinuðu þjóð- irnar, Alþjóða við- skiptastofnunina, Atlantshafsbandalagið, Evrópusam- bandið og Öryggis- og samvinnustofn- unina. Starfsemihefðbundinna sendi- ráða endurspeglar á engan hátt þær miklu breytingar sem hafa orðið á al- þjóðasamskiptum. Milljónaríki geta auðvitað leyft sér þann munað að gera hvoru tveggja; halda úti þéttu neti af tvíhliða sendiráðum og sinna um leið fjölþjóðastofnunum af krafti. Örþjóð eins og ísland hefur eðli máls- ins samkvæmt ekki sama svigrúm. Við verðum að forgangsraða kröftum okkar með miklu markvissari hætti. Fækkun tvíhliða sendiráða Mörg ríki Vesturlanda huga nú að skipulagsbreytingum í samræmi við ofangreindar breytingar á alþjóðleg- um samskiptum. Til að mynda liggur fyrir tillaga í breska utanríkisráðu- neytinu um allsherjar uppstokkun. Það dugir Bretum sennilega ágætlega að hafa einn sendimann með fartölvu til að sinna hagsmunamálum Breta á íslandi. Danir hafa jafnframt boðað breytingar á sinni utanríkisþjónustu. Á sama tíma erum við íslendingar að fjölga sendiherrum sem sinna tví- hliða samskiptum. Réttara væri að fækka tvíhliða sendiráðum, svo sem á Norðurlöndunum, og stórauka þess í stað starf okkar hjá fjölþjóðlegum stofnunum. Gróðrarstöði »•* :iído<xá runnum |gg ini Skriðmispill 800 kr Loðvíðir 350 kr. Blátoppur 550 kr Sólber 650 kr. Birkikvistur 399 kr Blágreni 600 kr. Betri plöntur á góðu verði -Tilboð alla daga Bæjarhrauni 12 opið virka daga frá kl. 10-18 og lau. 11-14 sími 565 1234

x

blaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.