blaðið - 23.06.2005, Page 30
30 hver & hv
IfWl/...
Skrúfuleitin mikla
Framkvæmdagleðin grípur mig á
sumrin eins og svo ótal marga. Það
er reyndar ekki í frásögur færandi,
utan þess að ég stóð uppi með bor
í hendinni og uppgötvaði að mig
vantaði skrúfur og ráðgjöf. Það var
því brunað í næstu byggingavöru-
verslun, sem er hluti þessara stóru
keðja. Verslunin er gríðarlega stór,
sem er vitanlega bara af hinu góða,
en mig vantaði aðstoð og leitaði ég
logandi ljósi að starfsmanni. Eftir
að hafa gengið þessa rangala fram
og til baka fann ég loks vinalegan
pilt. Reyndar var ég ekki ein um
hituna og beið ég því þar til við-
skiptavinurinn á undan mér lauk
máli sínu. Örvæntingarfull lýsti
ég vanda mínum og beið úrlausnar
er starfsmaðurinn greip orðið og
sagði mér að þetta væri ekki hans
deild.
Klukkutíma verslunarferð
Áfram hélt ég því leit minni að
starfsmanni um rangala verslunar-
innar. Að endingu fann ég réttan
starfsmann í réttri deild og gleði
mín var svo mikil að það lá við að
ég táraðist - en starfsmaðurinn var
ungur og óreyndur og vissi lítið
meira um skrúfur og þess lags en
ég. Einhvem veginn fundum við út
úr þessu í sameiningu og ég fann
þessar eftirsóttu skrúfur. Þá tölti
ég mér nú bara í áttina að kass-
anum, beið í röð og borgaði mínar
skrúfur. Eftir alla þessa svaðilfór
var ég orðin dauðuppgefin, enda
tók þessi leit mín að fimm skrúf-
um klukkutíma og kortér. Er heim
kom gekk ég frá bomum, henti
skrúfunum í verkfæraboxið og
fann mér góða bók til að lesa.
Fáfróðir starfsmenn
Það er alveg merkilegt í hvemig
þjóðfélagi við lifum. Keðjumar eru
allsráðandi og nú er það nánast
orðið svo að eini valkosturinn er
að versla í einhvers konar keðju.
Maður hefði þá haldið að með þess-
ari miklu keðjuvæðingu og auknu
fé sem er eytt í verslanir að þjón-
ustan myndi batna en það er þvert
á móti. Það er hrein heppni ef ég
rekst á starfsmann í byggingavöru-
verslun, sem hefur eitthvert vit á
byggingavömm. Yfirleitt em þetta
ungir krakkar sem reka ekki einu
sinni sitt eigið heimili og hafa því
varla nokkum tímann haldið á
hamri, hvað þá meira. Þegar ég fer
í verslun þá vil ég að starfsmaður-
inn viti meira um vömna og notk-
un hennar en ég.
Tóm búð
Þessi skortur á starfsmönnum
er líka alveg merkilegur. Annað-
hvort em þessar keðjur að spara
svona gríðarlega þannig að þær
ráða bara örfáa starfsmenn í stór-
ar verslanir eða starfsmennirnir
liggja bara í sólbaði á vinnutíma.
Trúlegra þykir mér að það sé ver-
ið að spara launakostnað en hver
er tilgangurinn ef viðskiptavinur-
inn gengur óánægður út og kemur
aldrei aftur? Skýringin er senni-
lega sú að forsvarsmenn þessara
keðja vita að við komum alltaf
aftur. Stórar keðjur hafa nefnilega
fjárráð til að halda úti nægu úrvali
og lægra verði en litlu verslanim-
ar, sem verður til þess að þeim
fækkar. Þetta er leiðindaþróun.
Live 8
á íslandi
Sjónvarpsstöðin Sirkus, sem fer í
loftið á morgun, og tónleikafyrir-
tækið Concert, standa nú í undir-
búningi fyrir sýningu Live 8 á
í slandi. Tónleikamir far a fr am
2. júlí í nokkmm stórborgum
víða um heim og em haldnir
til þess að þrýsta á ráðamenn
heims í að leggja niður skuldir
vanþróaðra ríkja og tvöfalda
þróunaraðstoð til þeirra. Mörg
af stærstu nöfnum tónlistar-
iðnaðarins taka þátt í verk-
efninu sem er Bob Geldof
skipuleggur. í Lundún-
um spila meðal annars
Coldplay, Elton John, Mad-
onna, U2, REM og stórhljóms-
vetin Pink Floyd, sem ætlar að
koma saman á ný sérstaklega
LIVE
delfi'u
fyrir þetta tilefni. í Berlín má sjá
Brian Wilson, Audioslave, Lauryn
Hill og Green Day en Will Smith,
Linkin Park, Stevie
Wonder, The Cure og
Deep Purple era meðal
þeirra tónlistarmanna
sem spila í Róm, Fíla-
og París. Undirbúningur
útsendingarinnar hér á landi er
nú í fullum gangi og mun fjöldi
þjóðþekktra einstaklinga koma
að henni, en dagskráin verður
birt á næstu dögum. Þetta
verða að teljast hreint frá-
bærar fréttir og ánægjulegt
að íslendingar sýni áhuga
á málefnum þriðja heimsins á
þennan hátt.
fimmtudagur, 23. júní 2005 ! blaðið
Sharon vill hjálpa Tom
Hsem skvetti á hann vatni á frum-
sýningu myndar hans, War of the
Worlds, í London um daginn, enda
lenti Sharon í svipuðum hrekk fyr-
ir þremur vikum. Þá kom fólk frá
Channel 4 og úðaði á hana vatni
fyrir utan veitingastað í London.
Hún hefndi sín með því að henda
fótu, fullri af vatni, beintyfir söku-
dólginn. Sharon hefur nú boðið
lögfræðingum Cmises pappírana
frá hennar atviki. „Ég var skelf-
ingu lostin að vita að fullorðið fólk
geti gert þetta hvert við annað. Ég
Sharon Osboume segist vilja að- var mjög hissa á því.“
stoða Tom Craise við að kæra liðið
Ben og Jen neita
brúðkaupsfréttum
Ben Affleck og Jennifer Gamer hafa
neitað því að þau séu búin að gifta
sig, en þau em búin að vera trúlofuð
síðan í apríl þegar Affleck bað henn-
ar í afmælisveislu hennar. Gamer er
sögð hafa farið í blómabúð í Vestur-
Virginíu og keypt þar brúð-
arvönd og fíeira
fyrir athöfn í
Greenbrier
Resort.
Tals-
maður Bens, Ken Sunshine, sagði
við New York Daily News: „Sá sem
sagði þessa sögu er að ljúga. Maður-
inn fær meiri athygli heldur en nokk-
um tímann í lífi sínu. Ben og Jen eru
ekki í Vestur-Virginíu. Þau giftu sig
ekki í dag.“ Snemma í maí
tilkynnti Jennifer
að hún væri
ófrísk, og á
hún von
á
fyrsta barni
nóvember.
með Ben Affleck í
Hvað segja stjörnurnar
égk Vatnsberi (20. janúar-18. febrúar) Tvíburar (21. maí-21. júni) AVog \ggF (23. september-23. október)
$ Sumir vinnufélagar þínir hafa mjög trufl- andi áhrif á vinnuna. Haltu þér fjarri og haltu áfram að vinna. Ef þú þarft aukaorku, skelltu þér þá út í náttúruna. V Ástin liggur í leyni, vertu vakandi og opinn og hver veit hvað gerist. $ Sýndu vinnufélögunum hvaða snillingur þú ert. Það græðir enginn á að þú sért að spila þig heimskari en þú ert, hvorki þú né yfirmenn- irnir. V Leggið spilin á borðið. Þetta mál sem er bitbein ykkar á milli er alls ekkert stórmál. Forð- ist að gera úlfalda úr mýflugu. $ Tilfinningarnar eru í hámarki í daa og þér líður skringilega. Forðastu að sýna or miklar tilfinningar á vinnustað, það eru ekki allir vinir þínir þar. V Þú þarft ekki algjörlega að gleyma fortíð þinni en það er engum hollt að vera algjörlega upptekinn af henni heldur. Það er hvorki hollt fyrir þig né samband þitt. Taktu á við það sem þarf að takast á við en slepptu hinu.
Fiskar (19. febrúar-20. mars) A Krabbi Vr (22. júnf-22. júlf) Sporðdreki 'kíjiJ' (24. október-21. nóvember)
$ Ef þér finnst þú eftir á í vinnunni skaltu biðja vinnufélaga um hjálp. Þú gætir jafnvel kennt þeim nýja tækni. V Vini þína vantar leiðsögn en þú ert svo upptekinn að þú getur sennilega ekki veitt hana. Finndu einhvern annan sem getur aðstoðað. S Tölvupóstur er ekki alltaf rétta leiðin til að tala um mikilvæg málefni. Til að vera viss um að enginn misskilningur myndist, hringdu eða röltu til þeirra. V Hugsaðu um alla sem er annt um þíg. Hugsaðu líka um þá sem eru ekki eins nánir þer en yrðu áhyggjufullir ef eitthvað kæmi fyrir þig. I dag muntu komast að því hverjir eru raunveru- legir vinir þínir. $ I dag er góður dagur fyrir samvinnu. Þú skalt vinna með vinnufélögunum í dag og nýjar hugmyndir munu fæðast. V Það er mikið jafnvægí I dag. Þú ert á góðu róli og allir taka eftir því. Gerðu ráðstafanir fyrir framtiðina.
Hrútur (21. mars-19. aprfl) ®Ljón (23. júlí- 22. ágúst) Æ\ Bogmaður SÍÍF (22. nóvember-21. desember)
$ Það er kominn tími til að slaka á í vinn- unni, álagið er of mikið og fjölskyldan saknar þín á kvöldin. Það er erfitt að hægja á sér en innst inni veistu að þú þarfnast slökunarinnar. V Þú og elskhugi þinn eruð ekki alltaf á sama hraða. Verið viss um að þið séuð þó að fara í sömu átt. $ Þú veist hvað þú yilt og tíminn er kominn til að láta areipar sópa. Áhugi þinn mun verða til þess að aðrir bjóða fram aðstoð sína. Hlustaðu á þá áður en þú gerir nokkuð. Sjálfsvirðing þín er í hámarki þessa dagana. V Þú ættir að vera stoltur af sjálfum þér. Fagnaðu árangri tiínum og heppni með góðum vinum. Ball og malsverður væri tilvalið kvóld. $ Vertu beinskeyttur en varkár I dag. Ekkí segja of mikið. Vinnustaðurinn er ólgandi I dag. V Það er ekkert að því að segja skoðun sína svo lengi sem einhver hefur beðið um hana. Ef það hefur ekki verið gert skaltu bara hlusta.
Naut Vr (20. apríl-20. maí) CN Meyja W (23. ágúst-22. september) Steingeit (22. desember-19. janúar)
$ Ef þú skipulegaur þig vel þá gæti við- skiptaferðaleg breyst I frí. Notaðu tímann til að slaka á og skoða menninguna. V Kímnigáfa þín er góð í dag. Eyddu degin- um með þeim sem hafa ánægju af lifinu. $ Það tók sinn tíma að Ijúka þessu verkefni en það tókst á endanum. Oll þessi yfirvinna hef- ur borgað sig og þú ert sennilega búinn að vinna þér í haginn. V Þú lítur gaqnrýnisaugum á heiminn og vertu óhræddur að segja skoðun þína, jafnvel þótt ekki allir séu sammála. $ Þú ert ennþá stjarnan I vinnunni og þú Ijómar. Það er einhver töfraljómi í kringum þig. Jafnvel fáránlegustu áætlamr standast. Fólk er að ræða um þig - merkilegt fólk. V Hvað svo sem þú gerir i dag mun vera jákvætt. Einbeittu þér að jákvæðu orkunni í sam- bandi þlnu og sjáou hvao gerist.