blaðið - 05.07.2005, Side 4
þriðjudagur, 5. júlí 2005 I blaðið
Hjalti Sölvason og María Jóhannsdóttir
frá Lyf og heilsu ásamt Jóni Sigurðssyni
og Ólinu Sveinsdóttur frá Parkinsons-
samtökunum handsala samninginn.
Parkinson-
samtökin fá
stuðning
Parkinsonsamtök Islands hafa gert
samning sem tryggir þeim umtals-
verðan fjárstuðning frá Lyf og heilsu
næstu tvö árin. Fjármununum mun
að miklu leyti varið til fræðslumála
en samtökin munu meðal annars
standa fyrir norrænni ráðstefnu um
Parkinsonsjúkdóminn á næsta ári.
Þá mun Lyf og heilsa fræða starfs-
fólk sitt sérstaklega um málefni
Parkinsonssjúklinga og veita félags-
mönnum samtakanna sérstök afslátt-
arkjör í öllum verslunum sínum.
Hundruð heimsforeldra
bættust í hópinn
Sjónvarpsstöðin Sirkus og UNICEF á
íslandi tóku höndum saman á laugar-
daginn, en þá sendi sjónvarpsstöðin
út tónleikana Live 8. Markmiðið með
samstarfinu var að fjölga svokölluð-
um heimsforeldrum UNICEF og að
sögn Stefáns Inga Stefánssoar, fram-
kvæmdastjóra, skilaði það miklum
árangri.
„Niðurstaðan fór fram úr björtustu
vonum okkar og það bættust hundr-
uðir nýrra heimsforeldra í hópinn.
Við vissum í raun ekki á hverju við
áttum von enda fór útsendingin fram
á einni mestu ferðahelgi ársins þann-
ig að þetta kom skemmtilega á óvart"
sagði Stefán.
Um 3.700 heimsforeldrar á
einu ári
Heimsforeldra-verkefnið á sér langa
sögu hjá UNICEF. Það gengur út á
að einstaklingur eða fjölskylda greið-
ir ákveðna upphæð til samtakanna í
Þó hvert heimsforeldri greiði ekki háa
upphæð á mánuði getur framlagið skipt
sköpum í lífi fátæks bams.
hverjum mánuði. Upphæðina getur
hver og einn valið eftir §órhagsgetu
og aðstæðum. Hvert framlag skiptir
máli og því til stuðnings bendir Stef-
án á að bólusetning gegn öllum helstu
barnasjúkdómum heimsins kostar
um 200 krónur á hvert barn. Verkefn-
ið er stærsti styrktaraðili UNICEF á
heimsvísu og rennur ágóðinn til verk-
efna víða um heim. UNICEF hefur
lagt sérstaka áherslu á hjálparstarf
þar sem tíðni ungbarnadauða er há
og menntunarstigið er lágt.
Heimsforeldra-verkefnið hefur ver-
ið í gangi hér á landi frá því í maí
árið 2004 og fyrir helgina voru 3.700
skráðir heimsforeldrar hér á landi.
Ekki liggur fyrir endanleg tala eftir
helgina, en eins og áður sagði fjölgaði
verulega í þessum hópi.
Gríðarleg áhrif sem aldrei verð-
ur hægt að mæla
Að mati Stefáns er það hinsvegar
ekki sú staðreynd að heimsforeldrum
skyldi fjölga sem stendur uppúr eftir
helgina heldur sú staðreynd að tug-
ir þúsunda hér á landi og milljónir
manna allsstaðar í heiminum skyldu
staldra við og hugsa um málefni fá-
tækra í Afríku.
„Það er gríðarlega margt sem hefur
áunnist með Live 8 tónleikunum sem
aldrei verður hægt að mæla beint“
sagði Stefán að lokum. ■
AÐEINS FYRSTA FLOKKS DEKK • FAGMEIMIMSKA í FYRIRRÚMI
FÓLKSBÍLADEKK • JEPPADEKK
DEKKJAHÓTEL
VIÐ GEYMUM DEKKIN FYRIR ÞIG ALLT ÁRIÐ GEGN VÆGU GJALDI
Rokkveisla
til heiðurs
okkur
Ögmundur lýsir efasemdum um sölu Vélamiðstöðvarinnar
Borgin gæti lent í
greipum einokandi aðila
íslandsvinirnir FooFighters með Nir-
vana - trommarann Dave Grohl í far-
arbroddi eru komin aftur til íslands
en þeir voru síðast hér fyrir tveimur
árum. Nú verða það ekki minni spá-
menn en Queens of the Stone Age og
okkar eigin rokkhundar í Mínus sem
ásamt þeim munu halda öllu í helj-
argreipum í Egilshöll í kvöld. Segir
sagan að Grohl hafi sérstaklega farið
fram á að Mínus hituðu upp fyrir sig.
Hljómsveitin fer fallegum orðum um
ísland og íslendinga og stefnir á að
flytja brennivín til Bandaríkjanna.
Ögmundur Jónasson, þingmaður
Vinstri Grænna lýsir miklum efa-
semdum yfir ætlun R-listans um að
selja Vélamiðstöðina. Tillaga þáver-
andi borgarstjóra, Þórólfs Árnasonar,
um að selja skuli Vélamiðstöðina var
afgreidd í borgarráði Reykjavíkur-
borgar 19. september síðastliðinn og
var einhugur innan borgarráðs um
málið. í tillögunni segir meðal ann-
ars að taka skuli tillit til hagsmuna
Reykjavíkurborgar í málinu enda sé
borgin einn helsti kaupandi þjónustu
miðstöðvarinnar.
Kostnaðarsamt að fara í sam-
keppni
Á heimasíðu sinni um helgina segir
Ögmundur að hann telji þessa hug-
mynd ekki skynsamlega, sérstaklega
við þær aðstæður sem nú séu uppi.
Á heimasíðu sinni segir Ögmundur
orðrétt:
„Ástæðan er sú að jafnvel þótt ein-
hver samkeppni kunni að verða fyrst
í stað (sem þó er ólíklegt) með leigu á
tækjum til sorphirðu og annarra verk-
efna sem Vélamiðstöðin sinnir fyrir
borgarbúa, þá er sú hætta mjög raun-
verulega fyrir hendi að þegar fram
líða stundir muni sækja í einokunar-
horf einfaldlega vegna þess að í mörg-
0TRULEGT VERÐ!
GÚMMÍVINNUSTOFAN EHF.
RÉTTARHÁLSI 2 • 110 REYKJAVÍK • SÍMI 587 5588
WWW.GVS.IS / WWW.TILBODSDEKK.IS
Fyrirhuguð sala á Vélamiðstöðinni
veldur Ogmundi Jónassyni áhyggjum
og brýnir hann fyrir samherjum sínum í
R-listanum að stíga varlega til jarðar.
um tilvikum er um sérhæfð verkefni
að ræða og kostnaðarsamt fyrir hugs-
anlega samkeppnisaðila að koma sér
upp nauðsynlegum vélakosti til að
taka þátt í samkeppni. Kaupandinn
það er að segja Reykjavíkurborg yrði
þess vegna í greipum hins einokandi
aðila".
Ekki baggi á borginni
Ögmundur segir ennfremur að sam-
kvæmt hans bestu vitund hafi Véla-
miðstöðin aldrei verið baggi á borg-
inni þvert á móti hafi hún skilað arði
í borgarsjóð. Gróðavon mum væntan-
lega verða til þess að einhverjir muni
reyna að komast yfir stöðina eins og
Ögmundur orðar það.
%
Níu íslendfngar
vitni að árekstri
geimfars og
halastjörnu
Hópur íslenskra nemenda fylgdist í
fyrrinótt með því þegar geimfar frá
bandarísku geimferðastofnunni rakst
á halastjörnuna Tempel 1. Árekstur-
inn var lokahnykkur í leiðangri sem
gengur undir nafninu Deep Impact
sem snýst um að skoða efnivið hala-
stjörnunnar. Ef hugmyndir vísinda-
manna reynast réttar gæti efnið sem
þeyttist út frá halastjörnunni verið
sams konar og agnirnar sem mynd-
uðu sólkerfið fyrir um 4,6 milljörðum
ára. Alls héldu níu íslendingar til eld-
fjallaeyjunnar Hawaii í síðustu viku
til að fylgjast með atburðinum. Á
heimasíðunni www.stjornuskodun.is
segir íslenski hópurinn frá stemmn-
ingunni í fyrrinótt. Þar segir m.a.
orðrétt:
„Vísindamenn og áhugamenn um
stjörnufræði víða um heim stóðu á
öndinni í nótt þegar Deep Impact
geimfarið rakst á Tempel 1 hala-
stjörnuna. Mikil hrifning greip um
sig þegar fyrstu myndirnar bárust.
Á þeim mátti greina um tífalda aukn-
ingu í birtu halastjörnunnar og varð
hún enn bjartari þegar frá leið. ■
Landbúnaðarstofnun:
23 forstjórar
Landbúnaðarráðuneytinu bárust
umsækjendur 17 karla og 6 kvenna
í starf forstjóra hinnar nýstofnuðu
Landbúnaðarstofnunar. Hann mun
fara með yfirstjórn stofnunarinnar,
móta stefnu hennar og bera fjárhags-
lega ábyrgð. Landbúnaðarstofnun
á að sameina stofnanir, embætti og
verkefni á sviði eftirlits og stjórn- -
sýslu innan landbúnaðarins. Höfuð-
stöðvar hennar verða á Selfossi. ■
Sala íslandsbanka í Sjóvá
Ekki lengur í
samstæðu ís-
landsbanka
rjarmaia-
eftirlitið _ m*
hefur CCSJOVA
samþykkt
umsókn Milestone fjárfestingafélags
um að fara með virkan eignarhlut í
Sjóvá. íslandsbanki seldi þann 19.
apríl síðastliðinn 66,6% hlut í Sjóvá
til Þáttar eignarhaldsfélags en það
er í eigu fjárfestingarfélagsins Mile-
stones. Kaupverð var 17,5 milljarð-
ar króna. Umrædd sala var skilyrt
samþykki Fjármálaeftirlitsins og
Samkeppnisstofnunar. í tilkynningu
frá Kauphöll íslands í gær segir að í
bréfi Fj ármálaeftirlitsins komi fram
að athugun sé í gangi á framkvæmd
sölunnar og er samþykki Fjármálaeft-
irlitsins með fyrirvara um niðurstöðu
þeirrar athugunar.
Ekki lengur í samstæðu Is-
landsbanka
Samþykki Samkeppnisstofnunar
liggur einnig fyrir. Fyrirvarar um
sölu íslandsbanka á 66,6% eignar-
hlut í Sjóvá sem tilkynnt var um 19.
apríl s.l. eru því ekki lengur fyrir
hendi og mun Sjóvá því ekki verða
hluti af samstæðureikningi íslands-
banka á öðrum ársfjórðungi heldur
bókað sem hlutdeildarfélag frá og
með öðrum ársfjórðungi.