blaðið - 05.07.2005, Side 24
24 menm
þriðjudagur, 5. júlí 2005 I blaðið
Sjötta Potter bókin á leiðinni
Það hefur ekki farið framhjá þeim
sem verið hafa á flakki í London ný-
lega að ný Harry Potter bók er á leið-
inni. Harry Potter and the Half Blood
Prince kemur út laugardaginn 16.
júlí og breskar bókabúðir auglýsa út-
gáfudaginn grimmt og telja niður dag-
ana í sýningargluggum sínum. Þegar
klukkan er eina mínútu yfir miðnætti
á laugardeginum mun höfundurinn
JK Rowling lesa upp úr bókinni í Ed-
inborgarkastala fyrir unga áheyrend-
ur í beinni útsendingu.
Bloomsbury sem gefur bókina út
hefur neitað að láta uppi hversu mörg
eintök verða prentuð eða hversu mik-
illi sölu búist er við. Allt bendir þó
til að þessi nýja bók slái metið sem
Harry Potter og Fönixreglan setti á
fyrsta degi en hún seldist í 1.7 millj-
ónum eintaka. Amazon hefur þegar
borist hálf milljón pantana og Bames
& Nobles hefur skráð 750.000 pant-
anir.
Á dögunum var maður nokkur dreg-
inn fyrir rétt í Bretlandi og sakaður
um að hafa reynt að selja slúðurblaða-
manni á Sun tvö eintök af nýju Potter
bókinni. Hann sagðist vera saklaus.
Útgófuforlagið Bjartur, sem gefur
út Harry Potter hér á landi fær hand-
ritið í hendur á útgáfudaginn 16. júlí.
Áætlað er að bókin komi út hér á
landi um mánaðamótin október- nóv-
ember. H
Nýja Harry Potter bókin er væntanleg
undir lok vikunnar.
Myndin í myndinni
í National Gallery of Art í London er
fræg Madonnu-mynd eftir Leonardo
Da Vinci. Innrauð myndataka var ný-
lega gerð á myndinni og þá kemur í
ljós önnur mynd af krjúpandi konu.
Sérfræðingar hafa kastað fram þeirri
kenningu að þama sé kona að virða
fyrir sér sofandi bam, sem aldrei hafi
verið teiknað inn í myndina. Leon-
ardo var þekktur fyrir að vera með
mörg verk í gangi í einu og ljúka ekki
Innrauð myndataka var nýlega gerð á
myndinni og þá kemur í Ijós önnur mynd
af krjúpandi konu.
nema hluta þeirra.
Madonnu-myndin fræga er til í
tveimur útgáfum. Önnur er í Louvre
og hin í National Gallery of Art.
Myndin í Louvre var upphaflega
hugsuð sem altarismynd en kirkju-
yfirvöld í Mílanó pöntuðu hana af
listamanninum. Þegar henni var
næstum því lokið krafðist Leonardo
aukagreiðslu, sem hann fékk ekki, og
seldi hana því öðram viðskiptavini.
Kirkjuyfirvöld heimtuðu myndina
sína og Leonardo byijaði því á nýrri
mynd af kijúpandi konunni en kaup-
endunum líkaði hún ekki og vildu
Madonnu-myndina sem þau höfðu
upphaflega pantað. Leonardo málaði
því yfir það sem hann hafði gert og
bjó til aðra Madonnu-mynd, þá sem
nú er í National Gallery.
Hollywood horfir til |^|||2|
Stærstu kvikmyndafyrirtækin
í Hollywood leita nú til Kína og
næstu árin er talið að þau muni
fjárfesta þar fyrir um 150 milljón-
*- ir dollara. Síðasta mynd Merchant
og Ivory, The White Countess, var
kvikmynduð í Shanghai í fyrra en
Ralph Fiennes fer þar með aðalhlut-
verkið. Disney fyrirtækið hyggst
endurgera Mjallhvíti og dvergana
sjö í Kína og verður myndin á
ensku. Heyrst hefur að dvergarnir
verði munkar en það kann að breyt-
ast. Búist er við að kínverski leik-
stjórinn Yuen Woo-Ping leikstýri
myndinni en hann hafði umsjón
með bardagasenunum í Kill Bill og
Matrix myndunum. Sony og Time
Warner eru að setja sig í starthol-
ur og ætla að gera myndir í Kína.
Þessi kvikmyndafyrirtæki ætla
ekki einungis að gera bandarískar
kvikmyndir í Kína heldur hyggjast
þau einnig fjármagna kínverskar
myndir á kínversku.
Kínversk útgáfa af tímaritinu
Variety er gefin út í Kína og The
Hollywood Reporter opnaði skrif-
stofu í Peking á dögunum. „Af
hverju er ég hér“ ? sagði Jonathan
Forsölumet
Leikrit Neil Simon, Odd Couple, verð-
ur frumsýnt á Broadway í lok októb-
er. Miðar hafa verið seldir í forsölu til
handhafa American Express korta.
Salan er nú komin upp í 18 milljónir
dollara en ekkert leikrit í sögu Broad-
way hefur halað jafn mikið inn í for-
sölu. Aðalhlutverkin í verkinu leika
Matthew Broderick og Nathan Lane
sem munu þéna rúmlega 50.000 doll-
ara á viku. I vinsælli og bráðskemmti-
legri kvikmynd sem gerð var eftir
verkinu voru það Walter Matthau og
Jack Lemmon sem fóra með aðalhlut-
verkin og fóru báðir á kostum í hlut-
verki karlmanna sem búa saman um
tíma og kemur ekki sem best saman.
Broadway framleiðendur grípa æ
oftar til forsölu en hún tryggir þeim
íjármuni löngu áður en dómamir
koma (en slæmir dómar geta dregið
úr aðsókn). Forsalan gerir einnig að
verkum að ekki er þörf á að auglýsa
viðkomandi leikrit jafn rækilega og
annars eftir að það er komið á fjalirn-
ar. ■
S. Landreth yfirmaður blaðsins og
svaraði sjálfum sér: „Af því allir
aðrir í Hollywood eru hérna“.
Kínverski leikstjórinn Yuen Woo-Ping
hafði umsjón með bardagaatriðunum í
Kill Bill. Hann mun sennilega leikstýra
endurgerð á Mjallhvít.
Nathan Lane. Leikur aðalhlutverkið í
Odd Couple á Broadway.
Metsölulisti
ferðamannabóka
1. Lost in lceland.
Sigurgeir Sigurjónsson
2. Sagas of the lcelanders
(Úrval Islendingasagna á ensku)
3. Wonders of lceland.
Helgi Guðmundsson
4. Independent People.
Halldór Laxness
5. Icelanders.
Sigurgeir Sigurjónsson og Unnur
Jökulsdóttir
6. Amazing lceland (á 3
tungumálum)
Sigurgeir Sigurjónsson
7. Faces of the North.
Ragnar Axelsson
8. Iceland: The Warm Coun
try of the North.
Sigurgeir Sigurjónsson
9. Xenophobe’s Guide to
the lcelanders.
Richard Sale
10. Lost in lceland - fran-
ska.
Sigurgeir Sigurjónsson
Sala í verslunum Pennans Ey-
mundssonar og bókaverslunum
Máls og menningar dagana 15
- 30 júni.