blaðið - 05.07.2005, Page 11
blaðið 1 þriðjudagur, 5. júlí 2005
Hl
|eytendur 11
Talsmaður
Neytenda tek-
ur til starfa
- hefur borist eitt erindi
Gísli Tryggvason lög-
maður tók við embætti
talsmanns neytenda
á föstudaginn en hon-
um er ætlað að standa
vörð um hagsmuni og
réttindi neytenda og
stuðla að aukinni neyt-
endavernd.
Gísli á ekki von á að fá mörg erindi
inn á borð til sín fyrstu vikumar
en þó hefur eitt erindi borist emb-
ættinu. Gísli segir að eftir því sem
samfélagið verður flóknara og ekki
síður aukið frelsi í viðskiptum sé
aukin þörf á að gæta hagsmuna og
réttinda neytenda. „Löggjöf á sviði
neytendaverndar er ítarleg og nokk-
uð góð og ég stefni á að þróa embætt-
ið í samstarfi við frjáls félagasamtök,
fjölmiðla og önnur stjómvöld um að
gæta réttinda neytenda", segir Gísli.
Neytendastofa tók einnig til starfa
þann 1. júlí en hún tekur við hlut-
verki Löggildingastofu, sem lögð var
niður á sama tíma auk þeirra verk-
efna sem áður voru á starfssviði Sam-
keppnisstofnunar.
Hlutverk
Neytendastofa mun annast fram-
kvæmd laga um eftirlit með órétt-
mætum viðskiptaháttum og gagnsæi
markaðarins og laga um öryggi vöru
og opinbera markaðsgæslu. Einnig
mun stofnunin annast dagleg störf
og undirbúning mála fyrir talsmann
neytenda. Hlutverk talsmanns neyt-
enda fellst einkum í því að taka við
erindum neytenda, bregðast við þeg-
ar hann telur brotið gegn réttindum
og hagsmunum neytenda, gefa út
rökstuttar álitsgerðir ásamt tillög-
um um úrbætur, setja fram tillögur
um úrbætur á lögum og stjómvalds-
fyrirmælum er varða neytendur sér-
staklega og kynna löggjöf og aðrar
réttarreglur er varða neytendamál.
Neytendastofa og embætti tals-
manns neytenda em til húsa í Borg-
artúni 21.
ókeypis til
80.000
heimila og fyrirtækja
alla virka daga
blaöiði
Fimmhundruö prósent
verðmunur á gúrkum
Matarkarfan var ódýmst í Bónus en
allar vömtegundir sem kannaðar
voru komu best út þar. Mikill mun-
ur var á einstaka vömm. Mestur
mældist munurinn á agúrku en tæp-
lega 500 % verðmunur var á gúrkum
í Bónus og Nettó. Þijár af sex vöm-
tegundum voru dýrastar í 10/11 en
Hagkaup, Nettó og Nóatún mældust
með eina vörutegund dýrasta hver.
10-11 Bónus Hagkaup Nettó Nóatún Krónan
Bústaðavegi Smáranum Smáralind Mjódd Smáralind Skeifunni
V— —y— —v— —7— v—
Jarðarber* 298.- 239.- 279.- 199.- 298 - 158.-
Gular melónur 185.- 118.- 129.- 139.- 149.- 119.-
Kótilettur** . 1599.- 1892.- 1698.- 1698.-
Agúrka 122.- 27.- 114.- 129.- 89.- 28.-
MS skyrdrykkur 129.- 88.- 117.- 102.- 119.- 89.-
Flatkökur 119.- 34.- 92.- 89.- 94.- 35.-
*Askjan í Bónus var 400 grömm en í hinum verslununum 200-250
grömm. I Bónus voru þau því hlutfallslega ódýrari.
**Kílóverð af lambakótelettum í kryddlegi. Fengust hvorki í 10-11
né Nettó.
máining
- það segir sig sjdlft -
Náðu þér í nýja Kjörvara litakortið
Útsölustaðir Málningar: Byko Kópavogi • Byko Hringbraut • Litaver Grcnsásvegi • Byko Hafnarfirði Málningarbúðin Akranesi
• Byko Akranesi • Axel Þórarinsson, málarameistari. Borgarnesi • Verslunin Hamrar, Grundarfirði Litabúðin Ólafsvik
Núpur byggingavöruverslun ísafirði • Vilhelm Guðhjartsson, málarameistari, Hvammstanga • Verslunin Eyri, Sauðárkróki
Byko Akureyri • Verslunin Valberg, Ólafsfirði • Byko Reyðarfirði • Verslunin Vik, Neskaupstað • Byko Selfossi
Miðstöðin Vestmannaeyjum • Byko Keflavík • Rúnar Sig. Sigurjónsson, málarameistari, Grindavík