blaðið - 05.07.2005, Blaðsíða 12
þriðjudagur, 5. júlí 2005 I blaðið
börn og upp
’ i
bJ«
Engin afsökun fyrir langri vistun
Foreldrar hafa ekkert val
svanhvit@vbl.is
Vistunartími barna á leikskólum
hefur aukist mikið síðustu ár. Fjöldi
bama sem eru í leikskóla 9 klst eða
lengur á dag tvöfaldaðist á árunum
1998 til 2004. Aukningin er mest hjá
0-2 ára bömum en árið 1998 voru
531 börn á leikskóla í 9 klukkustund-
ir eða lengur á dag en árið 2004 voru
þau orðin 1463. Eflaust em ýmsar
ástæður fyrir þessari löngu vistun
og rödd foreldra hefur ekki heyrst.
Blaðið ræddi við Sebastian Peters,
mannfræðing, sem á tvö börn og þar
af eina stelpu sem er á leikskólaaldri
og Margréti Richter, rekstrarstjóra,
sem á þijár stelpur og þar af tvær á
leikskólaaldri.
Vistunartími dóttur Sebastians
á leikskóla er 9 tímar en Sebastian
tekur þó fram að þau nýta hann ekki
allan. Oftast er dóttir hans í 7-8 tíma
á leikskóla á dag. „Maður getur þó
ekki sinnt uppeldinu eins og maður
vill. Við erum að koma heim kl. 16-17
á daginn og þá þarf að taka til kvöld-
mat og erindast og svo er
bara kominn háttatími.
Auðvitað vildi ég geta eytt
meiri tíma með börnunum
en á íslandi er dýrt að lifa
og það gerir þær kröfur
að báðir foreldrar vinna
að minnsta kosti 100%
Ekkert val
Dóttir Margrétar er 8
tíma í leikskóla á dag. Sebastian Peters,
„Þegar ég eignaðist yngstu mannfraeðingur
dótturina fór ég út af vinnu-
markaðnum í um tvö ár. Þegar ég fór
svo að sækja um vinnu þá var ekkert
val að fara í minna en 100% vinnu
ef ég ætlaði að fara í eitthvað sem
Börnin svara:
Hvað er ást?
Dagbjört Nótt Sigurðardóttir
,Fara í útilegu, það er skemmtilegt".
Esther María Hanssen
„Fá afmælisgjöf".
Karítas Bjarkadóttir
,Elska einhvern".
Felix Ernir Heimisson
„Ég elska þig“.
ég var sátt við. Ég kýs að hafa vist-
unartímann sem stystan en oft hefur
maður ekkert val. Ég er reyndar svo
heppin að ég vinn rétt við leikskólann
þannig að það fer lítill tími í að skutla
þeim og sækja."
Kýs að vinna minna
Sebastian og Margrét voru
bæði sammála um að börn
væru oft lengi á leikskólan-
um á daginn enda hátt í
tíu tíma vistun staðreynd
hjá mörgum foreldrum.
Margrét sagði að hún sjálf
væri búin eftir tíu tíma
vinnudag, hvað þá börnin.
„íslendingar eru að borga
velmegunina. Það þarf nátt-
úrlega að borga af þessu
öllu. Krafan er bara orðin
svona. „Sebastian tók undir
það og sagði: „Þetta er spurning um
hvaö menn vilja. Ef menn ætla að
kaupa sér allt sem íslendingar vilja
þá hefurðu ekki tíma fyrir börnin.
Ég kýs að vinna minna en hafa meiri
tíma fyrir börnin. Börnin hafa alltaf
forgang. Til dæmis erum við öll í tón-
list og ef æfingar dótturinnar koma
upp á vinnutíma þá sleppi ég því að
vinna. Það
kostarvitan-
lega alltaf
sitt.“
Börnin
verða
fullorðin
Margrét tal-
ar um að
aðstæður
hennar séu
reyndaröðru-
vísi núna en
áður þegar
hún var með
börn í leik-
skóla. En þá
þurfti dóttir
hennar að vera 9 tíma á leikskólan-
um á dag. „Áður var ég með dóttur
mína á leikskóla í 9 tíma. Ekki nóg
með það heldur var það annað hvort
móðir mín eða önnur stúlka sem sótti
hana. Þá var ég í annarri vinnu sem
krafðist meiri viðveru. Við foreldr-
arnir skiptumst líka á að mæta fyrr
í vinnuna til að geta hætt fyrr. Þá var
ég með dúndrandi samviskubit. Þetta
er því algjör lúxus núna.
Sebastian segir að oft geta aðstæð-
Margrét Richter, rekstrarstjóri
urnar verið erfiðar, til að mynda
ef foreldri er einstætt með 3 börn
og þarf því að vinna fulla vinnu. En
ef það eru tveir foreldrar þá er engin
afsökun fyrir svona löngum vistunar-
tíma. „Við foreldrarnir endurskoðum
reglulega aðstæður okkar og ef það
er eitthvað sem ekki gengur þá breyt-
um við vinnutíma okkar. Ég held að
íslendingar gleymi sér, þeir sætta
sig bara við ástandið en segja aldrei
breytum þessu. Þeir ætla að breyta
þessu seinna en börnin bíða ekki.
Þau verða nefnilega fullorðin". ■
Enn og aftur um fótboltamörk
Herdis L. Storgaard
Verkefnastjóri barnaslysavarna
í bjujun sumars slasaðist
unglingsstúlka á höfði þeg-
ar það féll fyrir hana fót-
boltamark. Slysið gerðist
með þeim hætti að stúlkan
var að klifra í markinu þeg-
ar það féll um koll og fékk
hún markið í höfuðið.
Á 17 árum hafa rúmlega
40 börn slasast alvarlega og sum
þeirra hlotið varanlegan skaða. Yfir
100 böm hafa verið lögð inn á sjúkra-
hús til frekari rannsókna vegna þess
að mark hefur dottið yfir þau.
Slysin verða flest með þeim hætti
að börnin eru að klifra í markinu og
það dettur um koll eða að þau hanga
í þeim að framan og þau detta yfir
þau.
Það er alveg skýrt í reglugerð að
fótboltamörk skulu vera fest en því
miður er mikill misbrestur á því,
sérstaklega þegar að kemur að knatt-
spymufélögunum.
Slys af völdum markanna er með
alvarlegri slysum sem börn verða fyr-
ir. Böm hafa hlotið höfuðkúpubrot og
blæðingu inn á heilann. Algengustu
áverkamir em að líffæri í kviðarholi
skaddist og má þar nefna að miltað
fer í sundur, áverkar á nýrum og
skeifugörn.
Þeir sem setja upp mörk ber sam-
kvæmt reglugerð að sjá til þess að
mörkin séu fóst - alltaf! Því þarf að
hafa gott eftir-
lit með mörkun-
um þannig að
ekki sé verið
að losa þau í
tíma og ótíma
eins og virðist
vera algengt.
Flest mörk sem
notuð eru á
opnum svæðum
víðsvegar um
landið eru mjög hættu-
leg sökum þess hvernig
þau eru hönnuð. Mörkin
eru úr þungum málmi
og mjög grunn. Lögleg
mörk eru mun dýpri og
þarf því meira til að þau
falli um koll en enga síð-
ur þarf líka að festa þau
niður. Fótbrot hafa orðið
þegar að þjálfarar láta
smákappa bera mörkin
á milli en slíkt á ekki
að eiga sér stað. í dag
er ekki lengur tæknilegt
vandamál að festa mörk-
in niður því fyrirtæki
sem framleiða mörkfram-
leiða einnig festingar sem henta við
mismunandi aðstæður. Vandamálið
er að festingarnar eru ekki keyptar
með.
Ég hvet foreldra til að kanna hvern-
ig ástandið er hjá fótboltafélögunum
áður en þeir senda börnin sín þang-
að á æfingar.Einnig ef fólk sér laus
mörk á víðavangi að láta Heilbrigðis-
eftirlitið vita. Hægt er að finna frek-
ari upplýsingar á heimasíðu Árvekni,
Lýðheilsustöð um fótboltamörk:
www.lydheilsustod.is
herdis@lydheilsustod.is
LEIGÐU AUT í VEISLUNA
Kertastjakar • kertaluktir •
brúöarstyttur • hringapúðar •
bergfléttur • blómavasar •
slaufur á kirkjubekki •
Tertustandar • brúöarbogi •
silkitré
$ VOLUSTEINN
fyrir fima fíngur
BÆJARLIND14-16 / Sími 588 9505 / www.volusteinn.is