blaðið - 05.07.2005, Blaðsíða 19
blaðið I þriðjudagur, 5. júlí 2005
veiði 19
Vatnsdalsá:
Vænn lax veiðist
„Úr ánni er allt gott að frétta, er hún
komin yfir 40 fiskar og bara tveir eða
Einar Lárusson glímir við fisk í
Stekkjarfossi
þrír undir 10 pundum,“ sagði Pétur
Pétursson, er við könnuðum stöð-
una við Vatnsdalsá. Vænn lax hefur
veiðst í ánni og eins í Blöndu. Fyrir
tveimur dögum komu tveir 19 punda
í Blöndu.
„Það hefur sést töluvert af smálaxi
en sunnan vindar hafa truflað svolít-
ið veiðina hjá okkur. Einhverra hluta
vegna leggst sú vindátt illa í laxinn
í ánni og hann verður tregari til að
taka, en eins og aðrir veiðimenn þá
erum við bjartsýnir á framhaldið og
Siggi stormur spáði vindáttum meira
af norðri og það hentar okkur ágæt-
lega, sagði Pétur við Vatnsdalsá í
Húnavatnssýslu.
Eiríkur Leifsson sleppir hér laxi í fyrsta
sinn, sem hann veiddi í Hnausastreng.
Breiðdalsá:
Bullandi
vatn,
tveir laxar
á land
„Það hefur ringt eldi og brennisteini
á Austurlandi síðustu daga og Breið-
dalsáin er vatnsmikið. Við fengum
tvo laxa í opun árinnar" sagði Þröst-
ur Elliðason í fyrrakvöld en þá var
hann farinn úr Breiðdalnum og kom-
in á Nessvæðið í Laxá í Aðaldal.
„Guðmundur Bjögúlfsson veiddi
fyrsta fiskinn í Breiðdalsá, 9 punda
hrygnu á maðk í Ármótahyl. Síð-
an veiddi Súddi leiðsögumaður 10
punda hæng á fluguna Orninn, nýja
flugu sem gefið hefur vel í silungun-
um í vor.
Það veiddust fjórir laxar hérna á
Nessvæðinu í Laxá í Aðaldal í dag og
Óðinn Helgi Jónsson veiddi 17 punda
fisk áðan“ sagði Þröstur ennfremur.
Stórrigningar á Austurlandi og
víða eru kannski heldur mikið fyrir
veiðimenn og veiðiár. En þetta á eft-
ir að hleypa lífi í veiðina þegar fram
líða stundir.
Veiðiportið
Stranniflugnr 195 kr.
Silungaflugur 160 kr.
Laxaflugur 275 kr.
Ðrass tiipm 295 kr.
Veiðiportíð
Grandagarði J
Siini: 552-9940
SériræÐingar
fi fluguveiöi
PlKlum stangir.
splæsum linur
og setjum upp.
Sportvörugerðin l«f..
SkipHolt S. 562 83H3.
X
%
m
/
eiðivefurinn SVFR.IS
SVFR.IS er vinsælasti veióivefur landsins.
Nú qeturðu á einfaldan og aðgenqileqan hátt keypt frábært úrval veiöileyfa
úr hvaða nettenadu tölvu sem er oq prentaö þau út aö loknum viðskiptum.
Á svfr.is finnnur þú: Úrval veiðileyfa í iax og silung - Upplýsingar um öll
helstu veiðisvæði landsins - Fréttir og greinar - Veiðistaðalýsingar - Myndir
- Upplýsingar um félagsstarf SVFR - Veiðikort og margt fleira
Veiðivefurinn SVFR.IS