blaðið - 05.07.2005, Side 22
þriðjudagur, 5. júlí 2005 I blaðið
Toppslagur í
kvennaboltanum
Þrír leikir fara fram í
Landsbankadeild kvenna í kvöld.
Botnlið Skagastúlkna fær ÍBV
í heimsókn og KR-ingar sækja
Stjörnuna heim í Garðabæinn. Þá
geta íslandsmeistarar Vals komist
í toppsætið sigri þær Blikastúlkur
sem hafa sigrað alla sína leiki í
sumar og eru með fullt hús stiga.
Valur er sem stendur í öðru sætinu
þremur stigum á eftir Breiðablik, en
með hagstæðari markatölu. Leikur
ÍA og ÍBV hefst klukkan 18 en hinir
leikirnir klukkan 20. ■
AIHabsitil
Bolton
Ali Al Habsi, markvörður norska
liðsins Lyn, hefur gert þriggja og
hálfs árs samning við enska úrvals-
deildarliðið Bolton. Hinn 23 ára
gamli Habsi er ættaður frá Óman,
en hann mun klára tímabilið með
Lyn og koma svo til Bolton í októb-
er. Habsi mun vera fyrsti markvörð-
urinn frá Asíu í ensku úrvalsdeild-
inni og mun hann berjast um
markvarðarstöðuna hjá Bolton við
Finnann Jussi Jaaskelainen sem er
þar fyrir. „Draumur minn hefur loks-
ins orðið að veruleika. Ég hef alltaf
viljað spila í úrvalsdeildinni og það
er mjög sérstakt að Bolton vilji mig
til að spila fyrir sig“, sagði Habsi,
sem var valinn markvörður ársins í
norsku deildinni í fyrra. ■
Gerrard framlengir
ekki samning sinn
Steven Gerrard, fyrirliði Liverpool,
er reiðubúinn að yfirgefa Anfield
ef marka má orð umboðsmanns
hans, Struan Marshall. Gerrard á
tvö ár eftir af samningi sínum og
var búist við að hann myndi skrifa
undir framlengingu á honum í kjölfar
sigurs Liverpool í meistaradeildinni
í vor en nú hafa viðræðumar siglt í
strand. Liverpool hefur krafist þess
að Gerrard framlengi samning sinn
og Rafael Benitez, knattspymustjóri
Liverpool, sagði á blaðamannafundi
að hann vildi að Gerrard yrði hjá
liðinu allan sinn feril.
Gerrard ósáttur við seinagang
Liverpool
Fjölmiðlar á Bretlandseyjum hafa
haldið því fram að fyrirliðinn sé
ósáttur við hversu seint stjóm
Liverpool hafi gengið að
samningaborðinu. Talsmaður
Liverpool neitaði að staðfesta
að það væri rétt. Samkvæmt
heimildarmönnum íþróttafréttastofu
BBC mun ástæðan fyrir því að
samningaviðræðumar sigldu í strand
a.m.k. ekki vera fjórhagslegs eðlis.
Samkvæmt Rafael Benitez getur það
þó ekki verið ástæðan. „Við reyndum
þrisvar sinnum á síðasta tímabili
að fá Steve til þess að ræða nýjan
samning en hann sagðist vilja bíða.
Það var rætt um að við þyrftum að
vinna titla og nú höfum við unnið
þann stærsta, þannig að það getur
ekki verið vandamálið." Fjölmiðlar
greindu svo frá því í gær að Gerrard
hafi lent í deilum við stjórann Benitez
á æfingum um helgina.
Eftir sigur Liverpool í Evrópukeppni
meistaraliða í maí sagði Gerrard að
hann hefði mikinn áhuga á því að
vera ófram hjá liðinu. Hann sagði
að þegar hann lyfti bikarnum hafi
það verið besta tilfinning sem hann
hefði fundið og sagði: „Hvemig gæti
ég hugsað um að yfirgefa Liverpool
eftir slíkt kvöld?“ Vilja menn meina
að ástæðan fyrir þvl að upp úr
samningaviðræðunum slitnaði nú sé
sú að Liverpool hafi ekki samið við
Gerrard beint eftir úrslitaleikinn,
eins og Gerrard hafi vonast til.
Hræringar í leikmannahópi
Liverpool
Benitez hefur unnið hörðum
höndum að því að styrkja liðið fyrir
komandi átök. „Við höfum talað
um að betrambæta liðið og eignast
bestu leikmennina. Nú hefur
Boudejwin Zenden, líklega besti
leikmaður Middlesbrough, gengið til
liðs við okkur. Við emm að ganga
frá samningi við besta markvörð
Spánar, Jose Reina, besta kantmann
Chile, Mark Gonzales og ungan
og efnilegan bakvörð frá Sevilla,
Antonio Barragan," sagði Benitez.
„Við erum að bæta liðið og ég get
fullvissað aðdáendur Liverpool um að
mín hugmynd er að ef ég endurnýja
samning minn við liðið eftir fjögur
ár myndi ég vilja að Steve yrði næsti
þjálfari, næsti aðstoðarknattspymu-
stjóri, næsti yfirútsendari eða, ef
hann vill, næsti knattspyrnustjóri
liðsins."
Verður Gerrard með gegn TNS?
Þó Gerrard eigi tvö ór eftir af
samningi sínum munu Liverpool
líklegast frekar selja hann nú
fyrir fúlgu fjár, í stað þess að láta
samninginn renna út og gera þannig
öðmm liðum kleift að eignast
leikmanninn þá ón endurgjalds.
Talið er að ef svo fari að Liverpool
selji Gerrard muni kaupverðið vera
um 30-35 milljónir punda. Heyrst
hefur af áhuga stórliða á borð við
Real Madrid, Chelsea, AC Milan og
Manchester United. Einhveijir hafa
sagt að Gerrard muni ekki ganga til
annars liðs á Englandi en þar sem
ljóst er að laun hans munu hækka
umtalsvert fari hann til annars liðs
er ekki víst að Gerrard muni setja
það fyrir sig. Daily Star sagði frá því
í gær að Chelsea hefði nú þegar sett
fram 30 milljóna punda tilboð en Jose
Mourinho, stjóri Chelsea, er mikill
aðdáandi pilts.
Aðeins níu dagar em í fyrsta
leik Liverpool í Evrópukeppni
meistaraliða, gegn smáliðinu Total
Network Solutions frá Wales. Verði
Gerrard með þar þýðir það að hann
getur ekki leikið með öðra liði í
keppninni næsta vetur. Aðdáendur
Liverpool bíða þess eflaust í ofvæni að
sjá hvort hann spili leikinn, en leiki
hann ekki gegn TNS má telja næsta
víst að hann sé á fórum fró félaginu.
Evrópubikarmótinu í Maribor lokið
Yakubu til Boro
Nígeríski framherjinn Yakubu Aiy-
egbeni hefur fengið atvinnuleyfi í
Englandi og gert 5 ára samning við
Middlesbrough. Yakubu kemur frá
Portsmouth en kaupverðið er 7,5
milljónir punda.Yakubu var hafnað
um atvinnuleyfi fyrir skömmu þar
sem hann hefur ekki leikið 75%
landsleikja Nígeríu síðustu tvö ár.
Middlesbrough áfrýjaði þessari
ákvörðun og í gær fékk Yakubu
atvinnuleyfi. Yakubu er sterkur
framherji og hefur skorað 43 mörk
fyrir Portsmouth frá því að hann
kom til liðsins frá Maccabi Haifa
fyrir tveimur og hálfu ári síðan. ■
Halldór Lárasson, fijálsíþróttamað-
ur úr röðum UMFA, bætti sinn besta
árangur í tugþraut þegar hann hlaut
samtals 6616 stig í 2. deild Evrópu-
bikarkeppninnar í fijálsum íþróttum
sem lauk í Maribor í Slóveníu í gær.
Halldór bætti fyrri árangur sinn um
75 stig oghafnaði í 17. sæti af 31 kepp-
anda sem hóf keppni í þrautinni. Sig-
urvegari í tugþraut varð Aleksandr
Parkhomenko frá Hvíta Rússlandi,
en hann hlaut samtals 8025 stig.
í öðra sæti varð Benjamin Jensen
firá Noregi og Daninn Anders Black
hreppti bronsið. íslandsmeistarinn
Jónas Hlynur Hallgrímsson, FH,
meiddist aftan ó læri í fyrstu grein
seinni dagsins og lauk ekki keppni.
Kristín Bima Ólafsdóttir, ÍR, náði
16. sæti í sjöþraut kvenna og var rúm-
lega 150 stigum frá sínum besta ár-
angri. Hlaut hún samtals 4766 stig.
Sigurvegari var Jesenija Volzankina
frá Lettlandi með 5437 en 33 kepp-
endur tóku þátt.
Aðstæður til keppni í Maribor vora
ekki eins og þær gerast bestar en mót-
vindur var í styttri hlaupum og um
30° hiti.
16-liða úrslit
Visa-bikarsins í kvöld
Bogi Ágústsson spáir í spilin
16-liða úrslitum Visa-bikars karla
lýkur í kvöld með fimm leikjum og
hefjast allir leikimir klukkan 19.15.
Blaðið fékk Boga Ágústsson, fram-
kvæmdastjóra fréttasviðs Ríkisút-
varpsins, til að spá í spilin en Bogi
er mikill knattspymuáhugamaður og
gallharður KR-ingur.
ur spuming að FH vinnur þennan
leik. a.m.k. virðist ekkert geta stöðv-
að FH-inga þessa dagana", segir
Bogi. „Þótt KA hafi gengið ágætlega
í fyrstu deildinni eiga þeir ekki roð
í Hafnfirðingana og það kæmi veru-
lega á óvart ef þeir færu að standa í
þeim af einhveiju ráði“.
Grindavík - Fylkir 0-2
Fylkismenn sækja Grindvíkinga
heim en Árbæingar vonast til þess
að ná langt í bikarkeppninni þar sem
allt útlit er fyrir að þeim takist ekki
að ná FH-ingum í baráttunni um ís-
landsmeistaratitilinn. Bogi var ekki
í nokkram vafa um að Fylkir ynni
þessa viðureign; „Fylkir vinnur þann
leik klárlega. Ég hef á tilfinningunni
að þeim muni ganga ágætlega í bik-
amum í ár“, sagði Bogi. Árbæingar
vonast vafalaust til að þau orð rætist
en þeir hafa tvisvar unnið bikarinn,
árin 2001 og 2002.
HK - Keflavík 1-0
Keflvíkingar fóra alla leið í bikam-
um í fyrra og sigraðu KA menn 3-0
í úrslitaleiknum. í undanúrslitunum
mættu Keflvíkingar einmitt HK-ing-
um, sem vora óneitanlega spútnik-
liðið í bikarkeppninni. Só leikur var
jafn og spennandi en Keflvíkingar
sigruðu með sjálfsmarki HK-manna,
1 - 0. Bogi var á því að HK myndi ná
fram hefndum og sagði einfaldlega:
„Bikarmeistararnir detta út ó
móti HK“.
FH - KA 5 - 0
KA-menn lögðu íslandsmeist-
arana óvænt að velli í undan-
úrslitum bikarsins í fyrra
en töpuðu í úrslitum
gegn Keflvíking-
um. FH-ingar eiga
því harma að
hefna og miðað
við gengi þeirra í
sumar ættu þeir
ekki að eiga í
vandræðum með
að gera það. FH
„Það er ekki nokk-
ÍBV - Njarðvík 3-2
Njarðvíkingar era eina liðið úr 2.
deild sem komst í 16-liða úrslit og
eiga erfitt verkefni fyrir höndum. Þó
ÍBV sitji þessa stundina í fallsæti í
úrvalsdeildinni er heimavöllur þeirra
mjög erfiður heim að sækja og þeim
hefur gengið ágætlega í hikarnum.
„Þó Vestmannaeyingar geti ekki unn-
ið mörg lið, önnur en KR, munu þeir
vafalaust leggja neðrideildarlið eins
og Njarðvík að velli“, sagði Bogi, en
átti þó von á spennandi og skemmti-
legum leik.
Þór - Fram 1-2
Framarar fara til Akureyrar og etja
kappi við 1. deildarlið Þórs. Bogi á
von á hörkuleik á Akureyri en telur
að þeir bláklæddu ættu að hafa úti-
sigur. „Framararnir hljóta að taka
þennan leik. Þó þeir hafi aðeins verið
að dala í deildinni eftir fina byijun,
eru þeir einfaldlega með sterkara lið
en Þór og eiga að vinna þessa viður-
eign“, sagði hann, en telur að þetta
geti orðið tæpt. Áhangendur Fram
vonast vafalaust eftir árangri
í bikamum en langt er liðið
síðan þetta fornfræga félag
hampaði titli.
Þau lið sem sigra í kvöld kom-
ast í átta liða úrslit ásamt
þeim þremur liðum
sem komust áfram í
gær.Fjórðungsúrslit-
in verða leikin þann
20. og 21. júlí.