blaðið - 05.07.2005, Page 26
þriðjudagur, 5. júlí 2005 I blaðið
26 kvikmyn
Frá lcikstjóra
Boumc Idcntii
*** ★★★
MBL ÓÖHDV
SÍÐUSTU SVNINGAR
LAYER CAKE
REonBoomn
SlMI 551 9000
Mr&
rMre, ,
bmith'
WARil! WílRinB SmfífífíV BIO
SIMI 564 0000
INNRASIN FR UAFIN hucsaou stóht
HUCS
Fkto stórslysamynd
★ ★★
Innr.jsm cr (jirnilcg suin.jrskcmmtunJ
poppkornsmynd nf bcstu »jcrd!
★★★
Sýnd kl. 4,630,9 og 1030-P0WER b.i.i«
Sýnd kl. 4 og 6
Sýwlld.330.S^,8«l1(h20 UyXtos^'Jó^’ílwO
Sýndkl.8
fjlls
Sýnd kl. 6 og 9 B.L 16 ára
Sýndkl. 10.10 B.i. 16ára
400 kr. ibíó! Cildir á aiiar sýnlngar rnerktar með rauðu
Sýndkl. 6,8.30 og 10.40
8 B.i. 16 ára
Smitii
L •**-
Sýnd kl. 5.30,8 og 10.30 B.i. 14 ára
Sýnd kl. 530,8 og 1030-P0WER ku«
Kevin Costner
Joan Allen I
Frá lcikstjóra
Bournc Idcntii
Sýnd kl. 5:30,8 og 10:20
www.laugar
INNRASIN ER HAFIN
L ISlrJ 5IUI 3iy iUIII yiiu .
ic it Innrasin er gifmleg sumar skEmmtun,
oom, iív poppkornsmynd af bestu geró!
★★★* ★★★ ★★★
Kvikmytufit.is ÓHl, RÁS! SV, M8I
VI N S/1 I AS I \ MYN niN A I S I ANDI
YFI Pv 16.000 GESTl R
Stórgott og þægilegt
rólegheitarokk
Gavin DeGraw - Chariot / Stripped
bjornbragi@vbl.is
Platan Chariot kom fyrst út í Banda-
rikjunum 2003 og ári seinna fylgdi
platan Stripped sem er eins konar
kaffihúsaútgáfur af lögunum á
Chariot. Nú eru þessar plötur komn-
ar út saman á tvöföldum diski.
Eflaust hafa flestir heyrt hið ofspil-
aða „I don’t wanna be“, titillagið
úr unglingaþætti konunglegra kinn-
beina; One Tree Hill. Það er hins
vegar langt frá því að vera eitthvert
eins slagara undur DeGraws, eins
og margir gætu haldið, því þarna
er á ferðinni frábær tónlistarmaður
sem á vafalaust eftir að láta mikið
að sér kveða. Tónlistarspekúlantar
vestanhafs hafa kallað þennan 28
ára gamla New York-búa hinn nýja
Billy Joel eða Elton John.
Gavin DeGraw er stórkostlegur
söngvari og syngur lög sín af mikilli
ástríðu. Lögin eru vel samin og
DeGraw er fær á sínu sviði. Platan
flæðir vel, er afskaplega þægileg
hlustunar og ætti að geðjast breið-
um hópi tónlistarunnenda. Útsetn-
ingarnar á báðum plötunum flottar
og skila því sem þeim er ætlað að
skila. Píanódrifið rólegheitarokk
sem inniheldur mátulega mikinn
grtar án þess að skyggja á meló-
díurnar. Pá eru textar DeGraws
einfaldir en góðir og er ástin rauði
þráðurinn í gegnum plötuna. Verður
reyndar mátulega gelgjulegt á
köflum en það er nú bara krúttlegt.
Af bestu lögum plötunnar má nefna
titillagið „Chariot” og þá eru lögin
„Belief", „Just Friends“ og „Crush“
ekki síðri. Það má þó spyrja sig að
því, hvort tveir diskar með sömu
lögunum, reyndar í mismunandi
útsetningum séu ekki fullmikið af
því góða.
Ef einhvern vantar hugmynd að
gjöf fyrir elskhugann þá er Chari-
ot/Stripped tilvalinn. Chariot myndi
þá henta undir hvers kyns amstri
hversdagsleikans og rólegu útgáf-
urnar á Stripped fyrir Ijúfar stundir
turtildúfanna.
Fjölmennasta hljómsveit Islands?
Snarsveit Reykjavíkur í Austurbergi á fimmtudag
steinunn@vbl.is
Næstkomandi fimmtudagur verður
án efa stórviðburður í íslenskri tón-
listarmenningu þegar gerð verður
tilraun til að setja saman stærstu
hljómsveit íslands. Þeir Páll Ivan
Pálsson og Guðmundur Steinn Gunn-
arsson, sem skipa Skapandi sumar-
hópinn á vegum Hins Hússins, voru
búnir að ganga með þessa hugmynd
í höfðinu í nokkurn tíma og hafa nú
hrint verkefninu í framkvæmd. Þeir
hafa skipulagt tónleika í Austurbergi
í Breiðholti þar sem allir sem kunna
að syngja eða spila á hljóðfæri eru
hvattir til að mæta og skapa stór-
hljómsveit sem spilar 20 mínútna
langt verk fyrir áhorfendur. Þeir Páll
og Guðmundur hafa verið að mæta á
æfingar með kórum, lúðrasveitum og
hljómsveitum til þess að trekkja fólk
að og segjast vera nokkuð öruggir
með rúmlega 200 manns sem ætla að
mæta á fimmtudag því tónleikamir
eru fyrir alla sem vilja taka þátt.
Fólk er beðið að mæta klukkan 20 í
íþróttahúsið Austurbergi í Breiðholti
með hljóðfærin sín eða raddir þar
sem bytjað verður á því að útskýra
hvað eigi eftir að eiga sér stað.
Fyrirmælin eru mjög einfóld en not-
uð verða orð og grafík sem allir ættu
að geta skilið og leiðbeiningunum
verður varpað á tjöld svo allir sjái.
Þess vegna þurfa þáttakendur ekki
að kunna að lesa nótur. „Öll hljóðfæri
sem fólk kemur með munu passa inn
í fyrirfram ákveðinn hóp“ segir Guð-
mundur, en fólk verður að geta tek-
ið hljóðfærið sitt með sér. Auk þess
ber að taka fram að rafmagn verður
ekki í boði fyrir magnara eða önnur
raftæki. „Fólki er skipt niður í hópa
eftir því á hvaða hljóðfæri það spilar
og það eru bara nokkrir afmarkaðir
hlutir sem hver hópur gerir. Hver
einstaklingur þarf því ekkert að vita
neitt rosalega mikið til þess að heild-
in gangi upp“ bætir hann við.
Fjölmargir landsþekktir tónlist-
armenn
„Við höfum gert þetta áður með 20
manna hópa þar á meðal í Ráðhúsi
Reykjavíkur á 17. júní“ segir Guð-
mundur en bætir við að þetta hafi
aldrei verið gert af þessari stærðar-
gráðu áður. Þegar hafa staðfest þátt-
öku sína landskunnir tónlistarmenn
á borð við Sigrúnu Hjálmtýsdóttur,
Egil Ólafsson, Rúnar Júlíusson,
Bjöm Thoroddsen, Óskar Guðjónsson
og Lárus H. Grímsson. Einnig hafa
meðlimir úr hljómsveitum og hópum
á borð við Maus, Lúðrasveit Reykja-
víkur, Sinfóníuhljómsveit unga fólks-
ins, Kammersveitinni ísafold ásamt
fólki úr ýmsum öðmm rokkhljóm-
sveitum, kómm, lúðrasveitum og
kammersveitum sýnt mikinn áhuga.
Tónleikamir verða teknir upp og því
gæti fólk átt von á því að hlusta á sig
í græjunum heima í framtíðinni. Auk
þess er þetta kjörið tækifæri til þess
að vera með í hljómsveit sem verður
bara til einu sinni. Tónleikar munu
hefjast klukkan 21.
Obi-Wan Kenobi
skorar á G8
Leikarinn Ewan McGregor hefur
slegist í hóp þeirra fiölmörgu sem
hafa skorað á leiðtoga G8 landanna
til þess að koma til hjálpar þeim böm-
um sem em hvað verst leikin sökum
fátæktar í Afríku. Hann segir leiðtog-
ana hafa þau völd sem þurfi til þess
að hafa áhrif. „Mennirnir átta verða
í aðstöðu til þess að hafa gríðarleg
áhrif á heiminn, til þess að skrá bar-
áttuna gegn fátækt á spjöld sögunn-
ar, “ sagði McGregor á sunnudaginn
þegar hann hrinti af stað þriggja
daga smiðju sem UNICEF - Bama-
hjálp Sameinuðu þjóðanna - stendur
fyrir.
16 börn koma saman
Smiðjan, sem kallast C8 (C fyrir
Children: Böm), klárast í dag í Dun-
blane í Skotlandi. J>að er kominn
tími til þess að heyra í þróunarlönd-
unum, sérstaklega því unga fólki sem
þau byggja," sagði leikarinn sem nú
síðast lék í Stjömustríðsmyndinni
Hefnd Sith.
Til smiðjunnar koma böm frá G8
ríkjunum - Bretlandi, Bandaríkjun-
um, Japan, Kanada, Frakklandi,
Þýskalandi, Ítalíu og Rússlandi - sem
og böm frá átta fátækustu löndum
heimsins og munu þau setja saman
lista yfir tilmæli sem þau vonast til
þess að koma til leiðtoganna.
Samkvæmt heimasíðu Barnahjálp-
arinnar má gera ráð fyrir því að
meira en einn milljarður barna þjást
vegna fátæktar, em rænd grundvall-
arréttindum á borð við húsaskjól,
hreinlæti, vatn, næringu og aðgang
að skóla eða heilsugæslu.
Guðfaðirinn
slær met
Handrit að kvikmyndinni
Guðfaðirinn með athugasemdum og
skýringum frá leikaranum Marlon
Brandos seldist á uppboði í New York
fyrir 312,800 dollara á dögunum.
Myndin, sem er frá árinu 1972, sló
með því fyrra metið sem Clark Gable
átti fyrir handrit sitt að Gone With
The Wind frá árinu 1996 sem fór á
244,500 dollara. Handrit Brando
seldist á tuttugu sinnum hærra verði
en búist var við. Á uppboðinu var
hægt að eignast fjölmarga muni úr
safni leikarans, þar á meðal bréf sem
Mario Puzo, höfundur skáldsögunnar
um Guðfaðirinn, skrifaði Brando og
bað hann um að taka að sér hlutverk
Don Corleone. Bréfið seldist á
132,000 dollara.