blaðið - 11.07.2005, Síða 4
mánudagur, 11. júlí 2005 I blaðið
Fjárhagsstaða einstaklinga og fyrirtækja
Gjaldþrotum fækkar
Gjaldþrotum einstaklinga og fyrir-
tækja hefur fækkað verulega það sem
af er þessu ári miðað við sama tíma
í fyrra. Samkvæmt upplýsingum írá
Héraðsdómi Reykjavíkur komu 588
gjaldþrotamál til dómsins á fyrstu
sex mánuðum ársins en á sama tíma
í fyrra voru gjaldþrotsmálin 771. Hjá
Héraðsdómi Reykjaness voru teknar
fyrir 222 gjaldþrotabeiðnir á fym
hluta ársins á móti 309 á sama tíma-
bili í fyrra. Samkvæmt þessu hefur
gjaldþrotum fækkað um 25- 30% á
milli ára.
Inni í þessum tölum eru öll gjald-
þrot, þ.e. bæði gjaldþrot fyrirtækja og
einstaklinga. Ekki er haldið sérstak-
lega utan um hvorn málaflokk fyrir
sig hjá Héraðsdómum en ef tölur fyrri
ára eru skoðaðar kemur í ljós að um
30% allra gjaldþrotamála í Reykjavík
eru hjá einstaklingum en þessi tala
er um 40% hjá Héraðsdómi Reykja-
ness. Ástæðan fyrir þessum mun er
að tollstjóri kemur að mjög mörgum
gjaldþrotamálum í Reykjavík og
tengjast fyrirtæki nánast öllum þeim
málum og hækkar þannig hlutfallið í
Reykjavík.
Færri í fjárhagsvandræðum nú
en fyrir ári
Að sögn Jóhanns Birgissonar, aðstoð-
ar útibússtjóra í aðalútibúi Lands-
banka íslands, hafa starfsmenn þar
orðið varir við jákvæða þróun í fjár-
hagsstöðu einstaklinga.
„Fólk er í minni fj árhagsvandræð-
um nú en áður“ segir Jóhann og rek-
ur það til hækkunar á fasteignaverði
sem og til breytinga á lánamarkaði.
„Fólk er ennfremur orðið meðvit-
aðra um hvað það kostar að lána og
kemur því fyrr til að skuldbreyta en
það gerði áður. Það hefur einnig mik-
il áhrif að fólk hefur mun rýmri mögu-
leika til að semja um skuldir en það
hafði áður” segir Jóhann.
Eðlileg skýring á hækkun yfir-
dráttarlána
Fyrir nokkru komu fram tölur um
að yfirdráttarlán einstaklinga væru
komin í sömu hæðir og þau voru fyrir
breytingar á lánamarkaði. Jóhann tel-
ur að eðlileg ástæða sé fyrir því.
„Fjölmargir einstaklingar eru
að taka há yfirdráttarlán í stuttan
tíma til að brúa ákveðið bil þegar
þeir kaupa nýja fasteign. Það er ekki
óalgengt að 25 - 30% af andvirði fast-
eignaláns sé brúað tímabundið með yf-
irdráttarláni. Það er því einfóldun að
segja að hækkun yfirdráttarlána sé
öll tilkomin vegna aukinnar neyslu”
segir Jóhann að lokum. gg
Góðkunningjar
í ránsleiðangri
Tveir af hinum svokölluðu gookunn-
ingjum lögreglunnar fóru í ránsfór
um Reykjavík í gær. Þeir ruddust
inn í verslun Lyf og heilsu Austur-
veri og tóku þaðan með sér peninga
og eitthvert magn af lyfjum. Því næst
fóru þeir í Grafarvog og rændu veit-
ingastaðinn Domino’s Pizza í Spöng-
inni. Þar huldu þeir andlit sín með
nælonsokkum og sýndu hníf þótt þeir
hafi ekki ógnað með honum. Stuttu
seinna voru þeir handteknir í Grafar-
voginum og færðir til yfirheyrslu.
Að öðru leyti var helgin með venju-
legasta móti samkvæmt lögreglunni
í Reykjavík.
Mannbjörg í
Skötufirði
Mannbjörg varð um helgina þegar
lítilli skútu hvolfdi í Skötufirði í Isa-
fjarðardjúpi. Einn maður var um borð
í bátnum en aðrir sæfarar tilkynntu
að báturinn hefði horfið sjónum
þeirra. Hálftíma eftir að tilkynning
barst lögreglunni hafði tekist að ná
manninum um borð í lítinn bát sem
sendur var út ásamt björgunarbátn-
um Gunnari Friðriksson og slöngu-
bát Björgunarfélags ísafjarðar. Tölu-
verður vindur var í Skötufirði þegar
slysið varð og sjórinn úfinn.
íslendingar virðast hafa meiri fjármuni milli handanna en áður.
Dóp í Vest-
mannaeyjum
Tvítugur maður var handtekinn með
töluvert magn fíkniefna í fórum sín-
um við komu til Vestmannaeyja um
helgina. Efnin voru falin víðs vegar
um bíl mannsins en með hjálp fíkni-
efnahunds fundust um 400 grömm af
hassi, 10 grömm af amfetamíni og 6
grömm af kókaíni. Við frekari rann-
sókn málsins fundust svo 50 e-töflur
og rúmlega 20 grömm af amfetamíni
til viðbótar. Maðurinn er grunaður
um að hafa ætlað efnin til sölu en
lögreglan í Eyjum leggur nú áherslu
á eftirlit með fíkniefnum vegna Þjóð-
hátíðar sem verður eftir tæpar þijár
vikur.
Hjörleifur Guttormsson:
Margt athugavert við Fjarðarál
Hjörleifur Guttormsson hefur ýmis-
legt að setja út á drög Alcoa Fjarðar-
áls að matsáætlun sem er fyrsta skref
í að meta umhverfisáhrif álversins
fyrirhugaða. Auka á ársframleiðslu
álversins úr áður ráðgerðum 322 þús-
und tonnum í 346 þúsund tonn. Hjör-
leifur skilaði athugasemdum í átján
liðum til Alcoa en frestur til þess
að skila skriflegum athugasemdum
rann út í dag.
Áróðurskenndar klisjur
Hjörleifur leggur áherslu á að gögn
verði skýr og heildstæð og að varast
eigi að nota áróðurskenndar klisjur
og fullyrðingar. Nefnir hann dæmi
eins og „besta fáanleg tækni verður
notuð við hreinsun útblásturs,“ og
leggur til að í stað slíkra staðhæfinga
sé ráðlegra að greina hlut-
lægt frá aðstæðum og lík-
legum áhrifum af byggingu
og rekstri fyrirtækisins á
umhverfið.
Mengunarsiys
í athugasemdunum er einn-
ig tekið fram að lítið mat
hafi verið lagt á heildar-
áhrif álvers í Reyðarfirði.
Vakin er athygli á hættu
á mengunarslysum vegna
flutninga með svartolíu-
knúnum risaskipum í mis-
jöfnu ástandi. Gera eigi eigendur ál-
versins ábyrga fyrir slíkum slysum.
Þá hafi ekki verið nægilegur gaumur
gefinn að þeirri áhættu sem steðjað
geti af völdum hafíss og ofanflóða.
Einnig nefnir Hjörleif-
ur að ekki séu til full-
nægjandi rannsóknir á
samfélagslegum áhrifum
álversins á fámennum
vinnumarkaði. Að lokum
andmælir hann fr amsetn-
ingu í drögunum þess efn-
is að álverið nýti hreinar
orkulindir. Afla eigi orku
til verksmiðjunnar með
Kárahnjúkavirkjun sem
ásamt raflínulögnum
valdimestunáttúruspjöll-
um íslandssögunnar.
„Mikla kokhreysti þarf til að kenna
slík hervirki við „sjálfbærni" eins
og gert er í nýlega útgefinni skýrslu
Landsvirkjunnar og Alcoa,“ segir í at-
hugasemdunum.
Mikla
kokhreysti
þarf til að
kenna slík
hervirki
við „sjálf-
bærni“
llbelladonnan
Oei
R
Núna er hægt að gera frábær kaup
é 15-40% |f
afsláttur af völdum vörum
Vertu þú sjálf
vertu Bella donna í sumar
Réttu stærðirnar
Hlíðasmára 11 • Kópavogi • sími 517 6460 • Opið mán.-fös. 11-18, lau. 11-15.
www.belladonna.is
Marktæk aukning
á dánartíðni
í byrjun árs
Óvenju margar dánartilkynningar
á íslandi vekja þónokkra athygli en
þær koma í kjölfar inflúensunnar
sem herjaði á landann í byrjun þessa
árs. Dánartölur fyrstu 10 vikur ársins
bornar saman við meðaltal frá sama
tíma fyrri ára sýna að þær eru mun
hærri en meðaltalið. Þá fóru þær yfir
efri mörk svokallaðs viðmiðunarbils
fyrstu tvær vikur febrúarmánaðar. Á
þessu tímabili varð því umtalsverður
umframdauði eins og það er kallað í
FarsóttarfréttumLandlæknisembætt-
isins og á við fjölda látinna umfram
það sem búist er við í spám. Ekki er
fullyrt um ástæðu þessa en trúlega
átti inflúensan sem gekk í upphafi
ársins og náði hámarki í lok janúar
sinn þátt í umframdauðanum.
Á hverjum vetri gengur inflúensa
yfir þjóðina og veldur veikindum og
fjarvistum frá vinnustöðum. Hún er
talin valda nokkrum umframdauða
sem oftast vekur litla athygli þar sem
gamalt og veikburða fólk á yfirleitt í
hlut.
Fíkniefni á
Sæluhelgi
Lögreglan á ísafirði handtók um helg-
ina fjögur ungmenni á Suðureyri en
þar var haldin hátíðin „Sæluhelgi
á Suðureyri". Fundust við leit í bíl
þeirra tæki til hassreykinga og einn
fjórmenninganna viðurkenndi við yf-
irheyrslur að hafa komið með hass
til einkaneyslu með sér. Þeim var
sleppt að loknum yfirheyrslum. Lög-
reglan lagði hald á áhöldin sem og
hafnaboltakylfu sem höfð var með á
hátíðina.
Maður skallaður
Að sögn lögreglunnar var helgin að
öðru leyti róleg á Suðureyri. Lagt var
hald á áfengi hjá ungmennum sem
ekki höfðu aldur til kaupa eða neyslu
á því auk þess sem einn maður var
skallaður aðfaranótt sunnudagsins.
Þá var umferð á ísafjarðardjúpi
þung en ökumenn óku „mjög skikk-
anlega" samkvæmt lögreglunni á
ísafirði. _
Skák:
íslendingur
í 2. sæti á al-
þjóðlegu móti
Alþjóðlegi meistarinn í skák, Stefán
Kristjánsson, er í 2.-5. sæti á First
Saturday mótinu sem haldið er
mánaðarlega í Búdapest, höfuðborg
Ungverjalands. Stefán sigraði þýska
FIDE-meistarann Gerd Lorscheid £
áttundu umferð mótsins og er með
fjórann og hálfan vinning í sjö skák-
um. Bragi Þorfinnsson er hins vegar
í 8.-9. sæti með þrjá vinninga í átta
skákum en hann var sigraður af
Falko Bindrich, þýskum FIDE-meist-
ara.
TILB0Ð 1 Alla virka daga
HÁDEGISVERÐARTILBOÐ 690 Blandið saman allt að 3 réttum úr hitaborði
Frá 11.00-13.30
TILB0Ð 2 Alla daga vikunnar
30 % AFSLÁTTUR AF HEILUM SKAMMTI í HITAB0RDINU
gildirfrá 17.30 -2100
Sóltún 3 Bæjarlind 14-16
S 562 9060 S 564 6111
IREKDNO
t h a i I e n s h matstofa
Tilboðin gilda ekki með heimsendingu