blaðið - 11.07.2005, Blaðsíða 8

blaðið - 11.07.2005, Blaðsíða 8
8 erlent mánudagur, 11. júlí 2005 I blaðið Sprengjuhótunin í Birmingham trúverðug Þúsundir manna voru flutt úr miðbæ Birm- ingham-borgar seint á laugardagskvöld vegna hótunar sem lögregl- unni barst um að von væri á sprengjuárás- um í borginni. Scott Lee, yfirlögregluþjónn, sagði að sú ákvörðun að flytja 20.000 manns frá heimilum sínum í borginni hefði ekki verið auðveld. Það hafi þó verið nauðsynlegt þar sem hótunin hafi verið afar raunveruleg að mati lögreglunnar. „Með það í huga hvem- ig andrúmsloftið í heim- inum er þessa stundina er öryggi almennings efst í forgangsröð okk- ar,“ sagði Lee. „Okkur hefur ekki borist slík hótun áður í Birming- ham en í gærkvöldi voru íbúar borgarinnar í hættu.“ Lee sagði að lögreglan hefði ekki getað sleppt því að bregðast við. „Hótunin var afar nákvæm og trúverðug. Við fengum tilgreinda ná- kvæma tíma- og staðsetningu,“ sagði hann. Hættan liðin hjá Fyrst um sinn var fólki aðeins sagt að vera vart um sig og leitað var á krám og veitingastöðum. Þá var því beint til ökumanna að koma ekki inn i mið- hluta borgarinnar. Hálftíma síðar tilkynnti lögregla hins vegar að borg- in yrði rýmd. Svæðið sem rýmt var innihélt stærsta skemmtanahverfið í Birmingham og Kínahverfi borgar- innar þar sem iðulega er mikil mann- þröng enda margar krár, leikhús, veitingastaðir og hótel á svæðinu. Hundruðir þeirra sem þurftu að yfir- gefa heimili sín gistu í Aston-háskóla í borginni, þar sem þau áttu ekki í önnur hús að vernda. Miðbærinn hefur nú aftur verið opnaður almenningi og í gær hélt lífið í Birmingham áfram sinn vanagang. Fólk sneri aftur til heimila sinna og verslanir, krár og veitingastaðir voru opnaðar að nýju. 50 Fujifilm A345 stafrænar myndavélar 50 Philips HDD050 MP3 spilarar 100 Adidas Pelias 2 fótboltar ®l FUJIFILM www.fujifilm.is Ljósmyndavörur Reykjavík og Akureyri Úlfarsfell Hagamel i Filmverk Selfossi i Myndsmiðjan Egilsstöðum i Fótó Vestmannaeyjum Allar upplýsingar eru að finna á: fujifilm.is Dómur heftir rannsóknar- blaðamennsku Sprengjuárás í Tyrklandi Minnst 20 manns eru særðir eftir sprengingu á vinsælum strandstað í vesturhluta Tyrklands og er einn hinna særðu í lífshættu. Sprengibún- aðurinn hafði verið settur í ruslat- unnu nálægt banka í miðhluta stað- arins Cesme sem er 70 kílómetra frá hafnarborginni Izmir. Svæðið hefur verið girt af og málið er í rannsókn. Enn hefur enginn lýst ódæðinu á hendur sér en íslamskir hryðjuverka- menn, vinstrisinnaðir öfgamenn og kúrdískir agerðasinnar hafa áður látið til skarar skríða með vopnum á þessum slóðum. Líklegast er talið að PKK-samtök Kúrda beri ábyrgð á sprengingunum í gær. PKK-samtök- in hafa barist gegn stjórnvöldum í Tyrklandi frá árinu 1984 og hafa yfir 37.000 manns fallið í átökum síðan þá. Einhliða vopnahléi var lýst yfir árið 1999 en PKK enduðu það í fyrra þar sem þeim fannst Tyrkir ekki hafa gert nóg í að mæta kröfum þeirra. Lamdi ætt- leidda dóttur sína til dauða 33 ára gömul kona frá Virginíu- fylki í Bandaríkjunum, Peggy Sue Hilt, hefur verið ákærð fyrir að myrða tveggja ára gamla dóttur sína sem hún hafði ættleitt frá Rússlandi. Hilt-fjölskyldan hafði verið í heim- sókn hjá skyldmennum þegar skyndi- lega var farið með stúlkuna alvar- lega slasaða á sjúkrahús. Barnið var afar illa leikið við komuna á sjúkra- húsið og dó nokkrum dögum síðar. Við rannsókn sáu læknar að áverkar stúlkunnar voru greinilega af manna- völdum og þá sögðu þeir mögulegt að hún hefði einnig orðið fyrir kynferðis- legu ofbeldi. Hilt sagði rannsóknarlögreglu- mönnum í fyrstu að dóttir hennar hefði hlotið áverkana þegar hún datt á heimili þeirra. Síðar breytti hún frásögn sinni og játaði að hún hefði hrist stúlkuna, hent henni í gólfið og lagt hana í rúmið þar sem hún hefði síðan slegið hana mörgum sinnum með lokuðum hnefa. Ekki er vitað hvort eiginmaður Hilt hafi átt hlut að máli en lögreglan heldur áfram að rannska málið. Ritstjóri dagblaðsins Cleveland Pla- in Dealer, Doug Clifton, sagði um helgina að samkvæmt ráðleggingum lögfræðinga blaðsins myndi það ekki birta tvær rannsóknarblaðagreinar sem það hefur undir höndum. Ástæð- an er sú að greinarnar munu vera byggðar á skýrslum sem lekið var ólöglega og gætu því leitt til sekta á dagblaðið og fangelsun blaðamanna. Clifton líkti aðstæðunum við mál Judith Miller, rannsóknarblaða- manns New York Times, sem var dæmd í íjögurra mánaða fangelsi síðastliðinn miðvikudag fyrir að neita að greina frá heimildarmanni sínum. Fangelsun Miller er alvarleg- asti árekstur íjölmiðla við dómstóla í áratugi. Dómurinn yfir Miller virð- ist hafa þau áhrif að fjölmiðlar eru orðnir miklu mun varkárari en ella þegar kemur að birtingu á rannsókn- arblaðagreinum. Clifton sagði að lögfræðingarnir hefðu ályktað að dagblaðið, sem er það stærsta í Ohio-fylki, yrði líklega sótt til saka ef yfirvöld kæmu til með að rannsaka lekana og að blaðamenn- irnir gætu verið tilneyddir til að greina frá heimildarmönnum sínum ellegar sæta fangavist. „Við höfum komist yfir efni sem var lekið til okk- ar af manneskju sem afar viðkvæmt Judith Miller, blaðamaður New York Times, sem dæmd var í 4 mánaða fan- gelsi á dögunum fyrir að neita að greina frá heimildarmanni sinum. væri að nafngreina," sagði Clifton, „en lögfræðingarnir sögðu mér að það væri gífurlega mikil áhætta að birta þetta og að ég myndi tapa.“ Clifton sagði ennfremur: „Með því að banna fréttamönnum að halda nafnleynd yfir heimildarmönnum sínum er al- menningi neitað um að fá nauðsyn- legar upplýsingar." ■ Sjálfsmorðs- árásir í írak Sjálfsmorðssprengja banaði vfir 20 manns í Bagdad, höfuðborg Iraks, í gær. Árásarmaðurinn gekk inn í hóp ungra manna sem hugðust skrá sig í herinn og sprengdi sig í loft upp. Var þetta mannskæðasta árásin í írak í síðustu viku. Minnst sex aðrir létu líf- ið í öðrum sjálfsmorðsárásum í borg- unum Kirkuk og Mósúl. Þá myrtu byssumenn átta manna fjölskyldu þegar hún svaf á heimili sínu í Bagd- ad. Talið er að það hafi eingöngu ver- ið af trúarlegum ástæðum. Pandahúnn fæðist í dýra- garðinum í Washington Pandabiminum Mei Xiang fæddist húnn á laugardag í dýragarðinum í Washington. Hinni nýbökuðu pönda- móður virtist nokkuð brugðið þegar hún sá húninn nýfædda en innan fárra mínútna var hún þó farin að þrífa afkvæmi sitt og sjá um það. Tals- maður dýragarðsins, Suzan Murray, sagði að enn væri ekki vitað af hvaða kyni pandahúnninn nýfædda væri. Hún sagði að Mei Xiang væri þó fyr- irmyndarmóðir og sæji vel um htla húninn. Almenningur mun þurfa að bíða í að minnsta kosti þrjá mánuði eftir því að fá að sjá Mei Xiang og pandahún- inn hennar þar sem þau munu dvelja innandyra enda eru pandabirnir afar viðkvæmir. Frá árinu 1983 hafa fimm pandahúnar fæðst í garðinum og allir dáið innan nokkurra daga. Nýfæddir pandahúnar vega að meðaltali ekki nema um 100 grömm, eru á stærð við smjörstykki og hafa engan feld. Fyrstu pöndurnar í garðinum í Washington voru gjöf frá kínversk- um stjómvöldum í kjölfar sögulegrar heimsóknar Richard Nixon Banda- ríkjaforseta til Kína árið 1972. Ling- Ling dó árið 1992 og Hsing-Hsing árið 1999. n Ertu á hraðferö? Bílaapótek - lyfin beint í bílinn * Hröð afgreiðsla Opið kl. 10-24 alla daga vikunnar [inmg mnangongt apótok wm et opk) ménudaqa til laugaidaga U. 10-19. g* Lyfjaval lyfjdval.li • BÍLAAPOTEK OPIÐ 10-24

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.