blaðið - 11.07.2005, Blaðsíða 26

blaðið - 11.07.2005, Blaðsíða 26
mánudagur, 11. júlí 2005 I blaðið □□ Dolby /DD/ ihx Sýnd kl. 5.20,8,9,10.40 og 11.30 • Sýnd i lúxus kl. 6,9 og 11.30 B.i. 16 ára boÚ'rnebeiwty ^Mr. Mrs. Smith Sýnd kl. 3.30,5.45 og 8 B.i. 14 ára Sýnd kl. 8 og 10.30 B.i. 14 ára Sýml Kl 5:30,8 09 10:20(PQWER-SÝN!NG). hj.14 Sýnd kL 5:30 Sýnd kL 5:30,8 og 10:20. uu www.iaugarasl INNRASIN ER HAFIN Innrásin er girnileg sumarskernmtun poppkornsmynd af bestu gerð! ★ ★★ “ ★★★* Kvikniyndif.is VINS/l LASÍA MYNDIN A ISLANDI ; S OOO (i [• STI R ★ ★★ “•up.sidc.ui Sýndld.8 4 Mr.& \ sS h 4 SýndkL 10:15 bJ. 14 | Pakkaferðir á G! Festival Sala er hafin í Grapevine búðinni Tónlistarhátíðin G! Festival sem haldin er árlega í Færeyjum verður vinsælh með hveiju árinu og nú býðst íslendingum tækifæri á að kaupa pakkaferðir á hátíðina sem stendur yfir dagana 22. til 24. júlí. Það er tímaritið Grapevine og Landsflug sem bjóða landsmönnum þetta tilboð og miðaverð er 33.600 krónur. Innifal- ið í því er flug til og frá Færeyjum, ferðir frá flugvelli til G! hátíðarinnar og aftur til baka, miði inn á hátíðina, tjaldsvæði og morgunmatur. Á hátíðinni spila íjöldi hljómsveita frá Norðurlöndunum og hæst ber þar að nefna sænsku sveitina Europe. Auk þeirra spila rokksveitin Nephew frá Danmörku, teknóhausinn Darude frá Finnlandi, pönkaramir 200 frá Færeyjum og reggísveitin Hjálmar frá íslandi. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem íslendingar sækja Færeyingana heim en hljómsveitimar Úlpa og En- sími hafa til að mynda spilað á hátíð- inni áður við mikinn fógnuð gesta. Þeir sem vilja ekki missa af þessari tónlistarveislu þurfa að hafa hraðann á því einungis 62 pakkamiðar em í boði. Sala miðanna er nú þegar hafin í Grapevine búðinni, Laugavegi 11 og er búðin opin alla daga nema sunnu- daga milli klukkan 12:00 og 22:00. Við viljum fá þig í skemmtilegan hóp íslandspóstur leitarað dugmiklu og hressu fólki til bréfberastarfa á höfuðborgarsvæðinu. Hér er tækifæri fyrir fólk á öllum aldri sem sækist eftir framtíðarstarfi á skemmti- legum vinnustað. Hjá Póstinum ríkir góður liðsandi og þar er öflugt félagslíf. Starf sem hentar báðum kynjum og fólki á öllum aldri. Annars vegar hressandi útivinna og hins vegar flokkun pósts á dreifingarstöð. Upphaf vinnutima getur verið frá kl. 7:00 til 8-.30 og vinnutíma lýkur í samræmi við það. Starfsmenn hafa bíl til umráða en fá greitt fyrir notkun á bítnum en öðrum starfsmönnum er ekið frá dreifingarstöð í útburðarhverfi. i Nánari upplýsingar í síma 580 1000. Áhugasamir eru hvattir til að hafa samband. Umsóknum má skila á viðkomandi dreifingar- stöð eða til (slandspósts. Stórhöfða 29.110 Rvk. Einnig má senda umsóknir á postur@postur.is Um er að ræða bréfberastörf á dreifingarstöðvum í: Hafnarfirði, Garðabæ, Kópavogi, Mjódd, Grafarvogi, Mosfellsbæ. Austurbæ Rvk. og Vesturbæ Rvk. www.postur.is Ljúf dægurlagablanda Acoustic lceland Safndiskurinn Acoustic Iceland kemur út í dag og á honum má finna 20 lög þekktra íslenskra tón- listarmanna eins og lagið Ást með Ragnheiði Gröndal, Rómea og Júlía með Bubba Morthens, Spáðu í mig með Björgvini Halldórssyni auk fjölmargra annarra slagara. í til- kynningu frá Steinari Berg, útgef- anda plötunnar, kemur fram að lög- in eigi það öll sameiginlegt að hafa unnið sér stað í sönghjarta íslensku þjóðarinnar og þó að innihaldið sé áður útgefið efni sé platan Acustic Iceland nýstárleg frá útgáfulegu sjónarmiði. Platan er stfluð inn á ferðamenn sem sækja landið heim og er því titill plötunnar og allar upplýsingar á ensku. Þetta er auk þess prýðis gripur fyrir alla þá ís- lendinga sem hafa áhuga á íslenskri dægurtónlist. Plötuumslagið er einstaklega fallegt en þar prýða glæsilegar ljósmyndir Mats Vibe Lund af stór- brotnu íslensku landslagi hverja síðu. Skrif Guðmundar Andra Thorssonar um rómantíkina sem tengir saman tónlistina, náttúruna og landsmenn og upplýsingar um lögin og flytjendur inni í plötubæk- lingnum gefa plötunni síðan flotta heildarmynd. Styttist í nýja plötu McCartney Aðdáendur bíða nú með eftirvænt- ingu eftir nýjustu breiðskífunni frá Paul McCartney en hún er fyrsta stúdíóplatan sem hann sendir frá sér í flögur ár. Platan, sem ber heitið Chaos And Creation In The Back Yard, kemur út 12. september og var tekin upp á tveimur árum, bæði í London og Los Angeles og McCartney spilar sjálfur á flestöll hljóðfærin á plötunni. í viðtali við tímaritið NME sagði hann að hann hafí ekki viljað flýta útgáfu plötunn- ar. Hann bætti því við að tónlistin hafi orðið meira og meira áhugaverð- ari með tímanum og því sé hann stoltur yfir því sem hann er að fara að senda frá sér. Á plötunni má með- al annars finna lögin Follow Me og Promise To You Girl.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.