blaðið

Ulloq

blaðið - 11.07.2005, Qupperneq 24

blaðið - 11.07.2005, Qupperneq 24
mánudagur, 11. júlí 2005 I blaðið kolbrun@vbl.is JÉg held að þetta fari svipað og Haf- skipsmálið. Mín tilfinning er að meiri- hluti þessara ókæra muni gufa upp og ef einhveijar sakir finnast verða þær svo lítilfiörlegar að dómamir verða skilorðsbundnir. Ég held að málið allt mun verða ríkislögreglustjóra til lítils sóma að ekki sé minnst á Davíð Oddson. Ég held að þetta séu að ein- hveiju leyti ofsóknir, minnsta kosti miðað við rólegheit yfirvalda í málum olíufélaga og tryggingafélaga," segir Guðmundur Ólafsson hagfræðingur um mál málanna á íslandi þessa dag- ana, ókærumar á hendur Baugi. Hinn silalegi hreppstjóri Guðmundir fagnar útrás íslenskra fyr- irtækja. „Útrásin er merki um breytt samfélag,“ segir hann. „Áður máttu almenningur og verslunarmenn sitja við það sem hinn silalegi hreppstjóri, stjómmálamaðurinn, bauð upp á. Eft- ir að íslendingar fengu heimastjóm árið 1904 hefur ísland verið rekið sem nýlenda. í nýfijálsum nýlenduríkjum taka menn við því þjóðfélagi sem ný- lenduherramir sköpuðu og halda áfram að reka það óbreytt. Hjá okkur hefur teygst á þessu í meira en hundr- að ár. Ákveðinn hópur íslendinga tók að sér hlutverk nýlenduherranna og hefur ríkt yfir landinu. Svo er látið heita að við séum sjálfstæð þjóð. Nýlenduherramir em valdastéttin í landinu: stjómmálamenn og ætt- menn þeirra og ákveðin fyrirtæki sem þeim voru velþóknanleg mökuðu krókinn. í gegnum alls konar þving- unaraðgerðir og lög sem menn hafa komið sér upp þá hefur hinn venju- legi íslendingur verið féflettur og kúgaður af löndum sínum og hefur greitt mun hærra verð fyrir vöm og þjónustu en tíðkast í nágrannalönd- um. Landbúnaðurinn er dæmi um þessa kúgun sem lítið hefur breyst. Smátt og smátt hefur losnað um höft- in. Þegar fjármagnsflutningar á milli landa vom gefnir fijálsir upp úr 1990 og árið 2004 þegar bankamir vom einkavæddir þá opnaðist íslenska hagkerfið með alkunnum afleiðing- um. Einkavæðing bankanna gerði mönnum kleift að spila á erlendum mörkuðum með eigið fjármagn. Vöra- verð á íslandi hefur lækkað heldur og tekist hefur að halda aftur af verð- bólgunni. Við emm að hverfa frá ný- lendukúguninni sem var stjómað af dönskum íslendingum og yfir í opið kerfi þar sem almenningur á að geta notið miklu betra lífs en hefur ver- ið. Þessi gamla tíð er hðin og kostir verslunarinnar fá að njóta sín. Hinn silalegi hreppstjóri, stjómmálamað- ur fyrri tíðar, er á útleið. Jón Ásgeir og hans nótar hafa þama unnið gott verk þó svo eitthvað megi finna að í upphafi enda leikreglur um margt óljósar." Framsóknarspilling í skjóli Sjálf- stæðisflokksins Eru þetta vond tíðindi fyrir Hall- dór Ásgrímsson og Davíð Odds- son? ■ Jtg held að það séu vond tíðindi fyrir þeirra stíl. Þeir em stjómmálamenn gamla tímans. Það verður samt að • meta það við þá að þeir svömðu kalli tímans og einkavæddu bankana þó svo samfélagið hafi orðið að greiða þeim mikinn skatt fyrir vikið, kaup- endum Búnaðarbankans að minnsta kosti 16 milljarða. Munurinn á þess- um tveimur flokkum er sá að þeir sem keyptu Landsbankann borguðu hann með eigin fé að mestu en það gerðu S-hópsmenn ekki þegar þeir keyptu Búnaðarbankann, heldur fengu mest lánað. Ráðherrar Sjálfstæðisflokksins ■ era heldur ekki tengdir þessum við- skiptum hagsmunaböndum eins og á við um framsóknarmennina. Halldór Ásgrímsson er beinlínis tengdur fyr- irtækjum sem taka þátt í viðskiptun- um og hefði átt að fá einhverja aðra til að höndla málið en ekki standa í þessu verki aurugur upp fyrir axlir - þótt honum hafi sjálfsagt gengið gott eitt til. Ég er að sumu leyti nokkuð undr- Guðmundur Ólafsson um samfélagsbreytingar, stjórnmálaflokkana o.fl. Frá nýlendukúgun til opins kerfis andi á því að Davíð Oddsson, einn merkasti stjómmálamaður okkar sögu, skuli horfa þegjandi og hljóða- laust á þessar aðfarir í kringum sölu bankanna. Ég furða mig á því að Davíð Oddsson skuli bjóða upp á þessa Framsóknarspillingu í skjóli Sjálfstæðisflokksins, kjósendur hans hljóta að hafa áhyggjur af því.“ Er Framsóknarflokkurinn spillt- ur flokkur að þínu mati? „Það held ég. Ég kalla það spillingu þegar menn vasast í því að selja ríkis- eigur og hafa einkafjárhagstengsl út og suður. Auk þess liggur það orð á, og hefur verið fullyrt í fjölmiðlum, að væn sneið af þessari köku hafi farið í að greiða fyrir rekstur Framsóknar- flokksins."

x

blaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.