blaðið - 15.07.2005, Blaðsíða 2
föstudagur, 15. júlí 2005 I blaðið
Átján mánaða fangelsi
fyrir fíkniefnabrot
Millilandaflug:
Hryðjuverkin valda
lítilli truflun
Hryðjuverkin í Lundúnaborg í liðinni
viku höfðu sáralítil áhrif á millilanda-
flug íslendinga. Eins og von var
breyttu margir Lundúnafarar ferða-
áætlunum sínum daginn sem hryðju-
verkin áttu sér stað, enda óvissa mik-
il. Menn virtust þó furðufljótir að ná
áttum á ný og hafa flugfélögin nær
ekkert fundið fyrir áhrifum hryðju-
verkanna. GuðjónAmgrímsson,kynn-
ingaríulltrúi FL Group, sagði svarið
einfalt þegar spurt væri um afleiðing-
ar hryðjuverkanna: J>au höíðu engin
áhrif. Við höfum ekki fundið fyrir því
í eftirspum, sölu eða mætingu í flug,“
segir Guðjón, en bætir því þó við að
sama dag og hryðjuverkin hafi verið
framin hafi nokkuð verið um fyrir-
spumir og einhveijir hafi breytt mið-
um. Birgir Jónsson, framkvæmdastjóri
Iceland Express ,tók í sama streng, en
þar á bæ fundu menn þó örlítið meira
fyrir áhrifunum. „Þetta hafði ekki mik-
il áhrif. Ég held að við höfum selt um
100 færri miða um síðustu helgi en við
gerðum í vikunni þar á undan.“ Birgir
segir áhrifin helst hafa fahst í því að
fólk breytti miðum sínum, en taldi þau
áhrif fj ara hratt út. „Bretarnir hafa ver-
ið mjög fljótir að jafna sig og ég fæ ekki
betur séð en það eigi við flugfarþega til
Bretlands líka.“
Rúmlega þrítugur karlmaður var í Hér-
aðsdómi Reykjaness í gær dæmdur í
18 mánaða fangelsi, þar af 15 skilorðs-
bundna fyrir stórfellt fíkniefnabrot.
Maðurinn var fundinn sekur um að
hafa haft í vörslu sinni mikið magn fíkni-
efria. Ennfremur var kona á þrítugs-
aldri dæmd í sex mánaða skilorðsbund-
ið fangelsi fyrir að hafa geymt hluta af
umræddum fíkniefiium.
Mikið magn af fíkniefnum
Samkvæmt dómnum hófst máhð í mars
2004 þegar lögreglan í Hafharfirði fékk
upplýsingar um að dreifing og sala á
fíkniefiium færi fram í húsi í Hafiiar-
firðinum. í kjölfarið var farið að fylgj-
ast með húsnæði mannsins og fannst í
vörslu hans mikið magn af fíkniefhum,
aðallega amfetamín, e-töflur og kanna-
bis. Maðurinn játaði fyrir dómi að eiga
hluta af þeim fíkniefiium sem fundust,
en neitaði því staðfastlega að hafa ætlað
að selja þau. Ennfremur bar hann því
við að kannast ekki við hluta af fíkni-
efnunum. Maðurinn var dæmdur fyrir
fíkniefiiaeign, en ekki áætlaða sölu.
Ásamt fangelsisdómnum var mannin-
um gert að greiða málsvamarlaun og
sakarkostnað upp á rúma eina milljón
króna.
Vissi ekki af fíkniefnunum
Konunni var hinsvegar gefið að sök að
hafa geymt fíkniefni fyrir manninn,
nánar tiltekið talsvert magn af kanna-
bis, en efnið fannst í tösku við leit lög-
reglu í bíl hennar þar sem hún var að
koma frá húsi mannsins. Hún neitaði
því staðfastlega fyrir dómi að hafa vit-
að af fikniefnunum. Dómarinn komst
hinsvegar að þeirri niðurstöðu að kon-
an hafi hlotið að gera sér grein fyrir
að fíkniefni voru í töskunni og var
niðurstaðan sú að hún hefði brotið af
gáleysi gegn ákvæðum fíkniefnalaga.
Ásamt fangelsisdómi var konunni
gert að greiða ríflega 600 þúsund
krónur í sakarkostnað og málsvam-
arlaun. n
Tveir mánuðir
fyrir hrufl
Karlmaður á þrítugsaldri var í gær
dæmdur í tveggja mánaða skilorðs-
bundið fangelsi fyrir eignaspjöll og
líkamsárás í Héraðsdómi Reykja-
ness. Maðurinn var dæmdur fyrir
atvik sem átti sér stað fyrir utan
Lyfju við Smáratorg í Kópavogi í júm'
í fyrra. Maðurinn kom að versluninni
skömmu eftir lokun og hitti þar fyrir
starfsmann verslunarinnar sem var
á heimleið. Þegar starfsmaðurinn
upplýsti ákærða um að búið væri
að loka versluninni réðst hann á bíl
afgreiðslumannsins og síðan á mann-
inn sjálfan. Hlaut afgreiðslumað-
urinn af „dálítið hrufl og mar á nef-
hrygg, vinstra hné og þumalfmgri"
við árásina eins og segir í dómnum.
Auk fangelsisdómsins var mannin-
um gert að greiða afgreiðslumannin-
um rúmar 200.000 krónur í bætur,
sem og um 100.000 krónur í sakar-
kostnað og málsvarnarlaun.
Sex hrefnur
hafa veiðst
Sjötta hrefnan, af þeim þijátíu og níu
sem leyfilegt yerður að veiða í þessari
atrennu, veiddist í fyrrinótt. Veiðam-
ar, sem stundaðar eru af þremur bát-
um, hafa gengið vel frá því þær hófust
4. júlí síðastliðinn samkvæmt upplýs-
ingum frá Hafrannsóknarstofnun.
Veiðamar em stundaðar allt í kring-
um landið, en hafsvæðinu við ísland
er skipt í 10 hólf. Hrefhur em taldar í
hveiju hólfi fyrir sig og síðan er veiðin
í hveiju hólfi höfð í sama hlutfalli raun-
vemlegt hlufall á svæðinu. Veiðamar
nú munu standa til 20 ágúst, eða þar
til búið er að veiða upp í kvótann. ■
Þegar klukkan slær eina mínútu yfir miðnætti í kvöld hefst heimssala á sjöttu bókinni um Harry Potter, Harry Potter and the Half-
Blood Prince. Óttar Proppé vörustjóri erlendra bóka í Pennanum Eymundsson stendur hér við brettin sem geyma eintökin 2000
sem komu til landsins. Miðnætursala verður í Pennanum Eymundsson í Austurstræti, bókabúð Máls og menningar Laugavegi
og Pennanum Bókval á Akureyri. Bókin mun kosta einhvers staðar á bilinu 2000 - 3000 krónur. Hún er 672 blaðsíöur þannig að
lesturinn tekur tímann sinn.
*
Austurver
Opið alla daga ársins til kl. 24
Mán.-fös. kl. 8-24
Helgar og alm. frídaga 10-24
JL-húsið
Mán.-fös. kl. 9-21
Helgar 10-21
Kringlan 1. hæð
Mán.-mið. kl. 10-18:30,
fim. 10-21, fös. 10-19,
lau. 10-18, sun. 13-17
Opið lengur
^Lyf&heilsa
íslandsdagur á heimssýningu í Japan:
á íslandi aukist
Þekking
Halldór Ásgrímsson forsætisráð-
herra opnar í dag „íslandsdaginn"
á heimssýningu Éxpó í Japan. Að
sögn ráðherrans verður mikið um
að vera á sýningunni, tveir barna-
kórar syngja auk fjölmargra ann-
arra menningar- og skemmtiatriða.
Halldór vonar að í kjölfar íslands-
dagsins eigi þekking Japana - sem
og annarra þjóða - á íslandi eftir að
aukast. Þá bindur hann vonir við að
þetta leiði til aukins ferðamanna-
straums Japana hingað til lands.
Mikilvægi tvísköttunarsamn-
inga
í ferð sinni til Japans hefur Hall-
dóri verið tíðrætt um mikilvægi
tvísköttunarsamninga milli land-
anna og hann hefur ítrekað mál
sitt á fundum sínum með Koizumi,
forsætisráðherra Japans, og þegar
hann hitti japanska þingmenn. í
samtali við Blaðið sagði Halldór
að slíkur samningur skipti miklu
máli fyrir íslensk fyrirtæki með
viðskipti í Japan. „Nú þegar eru
svona samningar til milli okkar og
flestra OECD ríkjanna. Það hefur
þó gengió hægt að ná samkomulagi
við Japani en nú gildir að ljúka
þessu sem fyrst“, sagði Halldór.
Hann sagði að með heimsókninni
til Japans vænti hann þess að mál-
ið komist á skrið og að nú tækist
vonandi að koma því í gegn.
Islenskt vatn til sölu
Halldór sagði að megintilgangur
ferðarinnar væri heimssýning-
in þótt hægt væri að nýta hana
líka til annars. Þá fannst honum
skemmtilegt að hitta fulltrúa fyr-
irtækis sem er að hefja sölu á ís-
lensku vatni í Japan. „Þeir höfðu
leitað lengi að vatni til þess að
selja og enduðu á því að velja það
íslenska." Aðspurður hvort það
væri ekki vegna þess að íslenskt
vatn væri það besta í heimi sagði
ráðherrann, „finnst okkur það
ekki öllum."
Halldór Ásgrímsson
o Heiöskirt 0 Léttskýlaö ^ Skýjaö
| Alskýjað /í Rigning, litilsháttar ///', Rlgnlng Súld * Snjúkoma
Amsterdam
Barcelona
Berlín
Chicago
Frankfurt
Hamborg
Helsinki
Kaupmannahöfn
London
Madrid
Mallorka
Montreal
New York
Orlando
Osló
Pans
Stokkhólmur
Þórshöfn
Vín
Algarve
Dublin
Glasgow
23
28
28
23
30
23
26
25
24
35
31
20
24
26
22
30
24
9
27
25
18
16
Á morgun
Veðurhorfur í dag kl: 12.00
Veðursíminn 1020600
Byggt á upplýsingum frá Veðurstofu íslands