blaðið - 15.07.2005, Blaðsíða 4
ávinningnr!
ávinningur!
ávinningur!
ávinningur!
ávinningur!
ávinningur!
ávinningur!
Nýr ritstjóri
Stúdentablaðsins
Magnús Bjöm Ólafsson, sem stundar
nám í stjómmálafræði og heimspeki
við Háskóla íslands hefur verið ráðinn
ritstjóri Stúdentablaðsins. Magnús var
valinn úr hópi sjö umsækjenda, en að
sögn Elíasar J. Guðjónssonar, foimanns
Stúdentaráðs HÍ var leitað eftir einstak-
lingi sem hefði tengsl við háskólalífið,
og gæti einnig skrifað og ritstýrt fólki.
I samtali við Blaðið sagðist Magn-
ús ánægður með að fá að takast á við
verkefhið., ,Það verða miklar breyting-
ar frá fyrri árum enda hef ég ákveðnar
hugmyndir um blaðið. Ég er ótrúlega
ánægður með fólkið sem kemur til
með að vinna að útlitslegu hliðinni
sem verður einstök. Ég hef ákveðna
ritstjómarstefnu í huga en endanlegt
val ritstjómar liggur fyrir í byrjun ág-
úst“ segir Magnús og tekur fram að
stúdentar allra deilda H.í. séu hvattir
til að sækja um ritsfjómarsæti. „Því
fleiri raddir sem koma fram því betra
- fólk á ekki að vera hrætt við að segja
frá skoðunum sínmn og hugðarefnum í
Stúdentablaðinu"
innlent
íslenskur hugbúnaður
Flutt út fyrir um
3,9 milljarða í fyrra
íslensk fyrirtæki fluttu út hugbúnað fyr-
ir rúmlega 3,9 milljarða króna á síðasta
ári og jókst útflutningurinn um rúmar
520 milljónir króna frá fyrra ári. Aukn-
ingin nemur þannig tæpum 16%. Þetta
kemur fram í tölum sem Seðlabanki ís-
lands sendi frá sér í gær og byggja um-
ræddar tölur á niðurstöðum könnunar
sem gerð var meðal útflytjenda hugbún-
aðar á íslandi.
Rúmlega 50% aukning á fjórum
árum
Viðskipti með hugbúnað og þjónustu
tengd honum hafa vaxið hratt á und-
anfómum árum. Þannig hefúr útflutn-
ingur hugbúnaðar aukist úr 31 millj-
ón króna árið 1990 í áðumefnda 3,9
milljarða í fyrra. Frá árinu 2000 hefur
útflutningurinn hinsvegar aukist um
tæplega 1,4 mifljarða króna, eða um
tæp 53%. Mest er flutt út af hugbúnaði
tíf Evrópu og hefur svo verið árum sam-
an. Einhver breyting virðist þó ætla að
verða þar á því milli áranna 2004 og
2003 dróst útflutningur til Evrópu sam-
an um tæpar 317 milljónir á meðan út-
flutningur tíl Bandaríkjanna jókst um
tæpar 500 milljónir króna.
Færri og stærri
Af fyrirtækjum í könnuninni náðu 9
fyrirtæki að flytja út hugbúnað og tölvu-
þjónustu fyrir meira en 100 milljónir
lo-óna, en árið 2003 vom þessi fyrirtæki
11. Fyrirtækin 9 stóðu undir um 58%
alls útflutnings. Flest fyrirtækin í könn-
un Seðlabankans, eða tæp 43% vom
með útflutningstekjur undir
20 milljónum.
EVE online selst grimmt
Seðlabankinn gefur ekki upp hvaða fyr-
irtæki em stærst samkvæmt könnun-
inni, en fyrir liggur að CCP, sem fram-
leiðir leiMnn EVE online er einn af allra
stærstu útflytjendum hugbúnaðar á ís-
landi um þessar mundir. Að sögn Hilm-
ars V. Péturssonar, framkvæmdastjóra
CCP námu útflutningstekjur
fyrirtækisins rúmum
570 milljónum
króna,
þrefaldur pottur
lotto.ls
Tölvuleikurinn Eve online seldist
fyrir rúmar 570 milljónir króna í
fyrra. Rúmlega 60.000 áskrifendur
eru að leiknum um þessar mundir.
e n
það er
um 15%
af öllum
hugbúnaðarút-
flutningi íslenskra
fyrirtækja í fyrra. Hflm-
ar segir að árið í ár verði ennþá
betra, og stefnt sé á að komast upp fyrir
800 milljóna króna markið á þessu ári.
föstudagur, 15. júlí 2005 I blaðið
Líkið í Suður-Afríku:
Skotsár var
banameinið
Komið hefur í ljós að banamein Gísla
Þorkelssonar var skot í höfuðið. Þetta
er niðurstaða krufningar sem fram
fór í gær. Gísli var 54 ára og hafði
búið í Suður-Afríku í ellefu ár þegar
hann var myrtur af konu og manni.
Konan hefur gengist við glæpnum
en karlmaðurinn neitar. Mál þeirra
verður tekið upp að nýju 22. ágúst í
Suður-Afríku en ákæran er í fjórum
liðum.
Lík Gísla verður flutt hingað til
lands til greftrunar en það fannst
fyrr í vikunni steypt ofan í rusla-
tunnu. ■
Cessna152
Óhapp við
lendingu
Flugmann sakaði ekki þegar væng-
endi Cessnu 152 flugvélar rakst í
flugbrautina á flugvellinum á Flúð-
um í gærmorgun. Flugvélin endaði
utan flugbrautar en eftir því sem
Flugmálastjórn kemst næst urðu
ekki miklar skemmdir á vélinni.
Flugvellinum var lokað meðan á
vettvangsrannsókn fór fram en Rann-
sóknarnefnd flugslysa hefur tekið
málið í sínar hendur. Konan sem
flaug var ein um borð.
Kærkomin v
heimilishiálp
Hæsta einkunn
Þvottahæfni = A
Spameytni = A
Stillanleg hæfi
á efri körf u
Þretöld lekavöm
Engm lekanætta
OP
I 1/2 hlaAsla
Hægtaöþvoíefii
eða neðri körfu
elngöngu
Sýnir þvottakerfi,
hvar vélin er
stodd I kerfinu
o.m.fl.
Uppþvottavélar - 2 gerðir
Gerð IDW-128 alinnbyggð. Kr. 74.860
Gerð LS-12 hvít. Kr. 59.900
Taka 12 manna borðbúnað
8 kerfi, m.a. spar- og hraðkerfi
3 hitastig (40-60-70° C)
1/2 hleðsla (neðri og efri karfa)
Stafrænar stillingar (electronic)
Upplýsingaskjár sýnir þvottaferli o.m.fl.
Þreföld lekavöm (Total aquastop)
Fyrirframstilling (Delay timer)
Hljóðmerki við lok kerfis ««. “
Hæðarstillanlegar körfur ’w
Stálinnrabyrði og -sía » »
Orkunýtni A (1,05 kwh pr. meðalþvott) w
Þvottahæfni A
Hljóðlátar, aðeins 37 db (A)
Mánudaga-föstudagakl. 9-18
Lokað á laugardögum í sumar
Friform
Askalind 3 • 201 Kópavogur • Sími: 562 1500
Fjölmargir komu saman í gær á ár-
legri sumarhátíð Vinnuskóla Reykja-
víkur. Hátíðin er haldin tfl þess að
nemendur skólans fái að hvíla sig en
krakkamir hafa unnið hörðum hönd-
um við að fegra borgina í sumar. Eins
og sjá má lék veðrið við gesti en fjöl-
brejdt dagskrá var soðin saman til
þess að allir skemmtu sér sem best.
Unglingahljómsveitir léku listir
sínar á sviði meðan keppni fór fram
í hinum ýmsu greinum. Þar ber að
nefna frjálsar íþróttir, fót- og körfu-
bolta, botsía, hjólastólarallý, hjól-
böruhlaup, kappát og reiptog svo fátt
eitt sé nefnt. I hádeginu komu svo
Idolstjörnurnar Hildur Vala og Davíð
Smári og sungu fyrir krakkana sem
fylgdust spenntir með.
Framleiða
umbúðir fyrir
Mjólkursamlag
Færeyinga
fslenskt fyrirtæki, Reykjalundur
- plastiðnaður ehf. hefur gert samn-
ing við Mjólkursamlag Færeyinga
(MBM) sem felur í sér að íslenska
fyrirtækið framleiðir allar plast-
umbúðir fyrir MBM. Framleiðsla
fyrstu umbúðanna, sem eru fyrir
drykkjarjógúrt, hófst fyrr í þssari
viku og munu þær koma á markað
í Færeyjum innan tíðar. í tilkynn-
ingu fró Reykjalundi - plastiðnaði
segir að samningurinn marki ákveð-
in tímamót í starfsemi fyrirtækisins
því með honum hafi fyrirtækið tekið
sín fyrstu skref í útflutningi á fram-
leiðslu sinni til erlendra aðila, Þar
kemur ennfremur fram að viðræður
standa nú yfir við fleiri erlenda aðila
um framleiðslu á umbúðum.
Sumarhús stettarfélaga
fullnýtt yfir sumartímann
Gríðarlega góð nýting er á sumarhús-
um stéttarfélaganna um þessar mund-
ir og er nýtingin nánast 100%. Mun
færri fá sumarhús hjá stéttarfélaginu
sínu en sækja um. Nýting sumarhúsa
hefur ennfremur batnað til muna yf-
ir vetrartímann að undanförnu og er
það rakið til betri samgangna sem og
þeirrar staðreyndar að sífellt fleiri
sumarhús eru með heita potta, sem
þykja nauðsynlegir í sumarhúsaferð-
inni yfir vetrartímann.
Sífellt styttra tímabil
Að sögn Laufeyjar Eydal hjá Versl-
unarmannafélagi Reykjavíkur barst
orlofssjóði félagsins alls um 1500
umsóknir þetta árið. Um fleira er að
ræða heldur en bara umsóknir um
sumarhús hér á landi, því félagið
býður ennfremur upp á hús erlend-
is, sem og leigu á tjaldvögnum fyrir
félagsmenn. Hægt var að uppfylla
óskir um 900 þeirra sem sótti um,
en hafna þurfti um 600. Hlutfallið
hjá Eflingu stéttarfélagi er að sögn
Huldu Hafsteinsdóttur svipað, en
þangað bárust milli 800 og 900 um-
sóknir um sumarhús, og af þeim var
um 500 umsóknum svarað jákvætt.
Nýtingin á sumarhúsum stéttarfé-
laganna er gríðarlega góð, en bæði
Laufey og Hulda staðfesta að sá tími
sem mest sé sótt í hafi styst verulega
undanfarin ár. Ástæðan sé aðallega
lenging grunnskólans undanfarin ár,
en fólk vilji skiljanlega helst komast í
sumarhús meðan börnin eru í sumar-
fríi frá skólanum.
Sótt í sólarstrandir þegar rignir
í Reykjavík
Að sögn Laufeyjar hjá VR hefur mjög
mikið verið að gera hjá félaginu að
undanfórnu við að svara fyrirspurn-
um um hvort hús félagsins á Spáni
séu laus. Greinilegt sé að slæm veðr-
átta á suðurlandi að undanförnu
hefur orðið til þess að fleiri hafa
horft vonaraugum til sólríkari landa
og kanni í framhaldi hvað í boði sé.
Þrátt fyrir veðurfarið er lítið afbókað
af sumarhúsum hér á landi.
„F ólk er ekki að hætta við þrátt fyr-
ir veðrið. Manni sýnist að ef fólk er
búið að panta bústað á annað borð þá
eyði það bara tímanum við kertaljós
og spil í rigningunni“ segir Laufey.