blaðið - 23.08.2005, Page 10
10 I ERLENDfiR FRÉTTIR
Gyðingar hafa
yfirgenð Gaza
-Hörð átök á Vesturbakkanum í aðsigi
inuviðjörðu.
FJaRMoGNIJN
á voklum
bílum
BÍLAÞING HEKLU
Xiinur citt í inttmhini Muiii
Kletthálsi 11 • Laugavegi 174 • sími 590 5040
www.bilathing.is
Síðustu landnemarnir bjuggu sig
undir að yfirgefa gyðingabyggðir
á Gaza-svæðinu í gær en brottför
gyðinga þaðan, sem hófst fyrir sex
dögum, var þá senn að ljúka. íbúar
Netzarim voru þeir síðustu af 8.500
gyðingum sem yfirgáfu svæðið. At-
hyglin beinist nú að Vesturbakkan-
um en þar verða fjórar gyðingabyggð-
ir yfirgefnar og er búist við miklum
átökum í kjölfar þess. Fyrirhugað er
að hefja brottförina frá Vesturbakk-
anum í dag og eru ísraelskir her-
menn óðum að flytja sig frá Gaza
yfir á Vesturbakkann. Um 2.000
aðgerðasinnar hafa safnast saman í
bæjunum Sanur og Homesh á Vest-
urbakkanum vegna þessa og er búist
við kröftugri mótspyrnu.
„Erfið og sársaukafull aðgerð"
Forsætisráðherra ísraels, Ariel Shar-
on, arkitektinn á bak við brottfarar-
áætlunina, heimsótti hermenn áður
en brottförin fór fram og þakkaði
þeim fyrir vandasamt verk sitt. „Þið
hafið framkvæmt aðgerð sem hefur
verið afar erfið fyrir ykkur og íbúa
svæðisins. Þið hafið skilað verkinu
með þeim hætti að þið eigið skilið
mikla virðingu og ég þakka ykkur“,
sagði Sharon þegar hann ávarpaði
hermenn í Ein Hashlosha herstöð-
inni. Játaði hann að brottförin væri
gífurlega erfið og sársaukafull að-
gerð en jafnframt nauðsynleg.
Netzarim var ein af fyrstu byggð-
unum sem gyðingar reistu á Gaza
þegar þeir tóku sér búsetu þar á
7. áratug 20. aldarinnar. Hermenn
sameinuðust með landnemum í tár-
votum bænum áður en rabbíninn
Zion Tawil leiddi hópinn út í rútur
sem biðu hans og fluttu brott. Marg-
ir héldu á skiltum sem á stóð: „Þið
getið eyðilagt heimili okkar en ekki
anda okkar.“ Áætlað er að um 2.000
ísraelskir hermenn hafi starfað að
brottflutningunum þaðan.
ísraelskar jarðýtur hófu að jafna
yfirgefin heimili gyðinga við jörðu
á Gaza-svæðinu á sunnudag. Áætl-
að er að eyðing byggðarinnar taki
nokkrar vikur og er verkið fram-
kvæmt í samráði við palestínsk yf-
irvöld. Munu þau taka við ábyrgð á
landsvæðinu eftir að ísraelski herinn
yfirgefur svæðið. Búist er við því að
siðustu ísraelsku hermennirnir yfir-
gefi Gaza innan mánaðar en þá mun
vera búið að rífa herstöðvar og aðrar
eignir hersins á svæðinu niður.
Vopnaðir hermenn á
Vesturbakkanum
Fyrrum yfirmaður innan ísraelsku
leyniþjónustunnar, Ami Ayalon,
sagði í samtali við ísraelska sjón-
varpsstöð að telja mætti um 8%
þeirra 230.000 landnema á Vestur-
bakkanum hættulega. Um væri að
ræða fólk sem virti ekki vald ríkis-
ins og af þeim stafaði mikil ógn.
„Þau hafa engin takmörk og munu
gera allt sem þau geta til að hindra
aðgerðir stjórnvalda, þ.á.m. að beita
ofbeldi", sagði Ayalon. Talið er að
einhverjir mótmælendanna búi yf-
ir vopnum sem þeir kunni að beita.
Skærur áttu sér stað á Vesturbakkan-
um á sunnudag og í gær milli mót-
mælenda og öryggissveita.
Vopnaðir hermenn munu vera að
störfum á Vesturbakkanum þegar
gyðingar í Sanur og Homesh verða
látnir flytjast brott, ólíkt því sem
var á Gaza en þá voru allir hermenn
óvopnaðir. Þótti brottförin þaðan
enda takast með eindæmum vel mið-
að við það sem fyrirfram var óttast.
bjombragi@vbl.is
Franskur gísl frelsaður á Gaza
Mohamed al-Wati, hljóðmaður sjón-
varpsstöðvarinnarFrance3,varígær
látinn laus úr klóm mannræningja
en honum var rænt á Gaza-svæðinu
fyrir átta dögum síðan. Wati, sem er
46 ára gamall af alsírskum uppruna,
var ómeiddur þegar hann gekk inn
á lögreglustöð á svæðinu.
Jarðskjálfti
á Ítalíu
Mikil skelfing greip um sig í Róm,
höfuðborg Ítalíu, þegar snarpur jarð-
skjálfti reið yfir á svæðinu skömmu
eftir hádegi í gær. Upptök skjálftans
áttu sér stað við ströndina og flýði
fólk heimili sín og vinnustaði eftir
að hann reið yfir. Jarðskjálftinn
stóð yfir í nokkrar sekúndur og
mældist 4,4 á Richter-kvarðanum.
Engin meiðsl voru tilkynnt vegna
skjálftans í gær og talið er að afar lít-
ið tjón hafi orðið vegna hans. ■
Hljóðmanninum var rænt af vopn-
uðum mönnum þann 14. ágúst síð-
astliðinn á hóteli sem hann dvaldi
á. Var það aðeins nokkrum dögum
eftir að leiðtogi Palestínumanna,
Mahmoud Abbas, fyrirskipaði ör-
yggissveitum að vernda útlendinga
á Gaza, i kjölfar hrinu mannrána.
Flestir þeirra sem teknir voru af
mannræningjum voru látnir lausir
ómeiddir skömmu síðar. Samein-
uðu þjóðirnar ákváðu að afturkalla
starfsfólk sitt, sem ekki sinnti nauð-
synlegum störfum, frá Gaza-svæð-
inu fyrr í þessum mánuði í kjölfar
þess að fimm starfsmönnum Sam-
einuðu þjóðanna var rænt um stund-
arsakir.
Palestinsk yfirvöld voru undir
mikilli pressu frá frönskum stjórn-
völdum að ná Wati heilum og höldn-
um sem allra fyrst. Rekia Wati, systir
Mohameds, sagðist hafa fengið frétt-
irnar frá forsætisráðherra Frakk-
lands, Dominique de Villepin, sem
Mohamed al-Wati
hringdi í hana og tilkynnti henni
góðu tíðindin í gegnum farsíma.
,Ég á engin orð til að lýsa tilfinning-
um mínum og ég hef ekki enn getað
grátið af gleði, tilfinningarnar eru
svo sterkar", sagði Rekia í samtali
við franska fréttastofu. ■
ÞRIÐJUDAGUR 23. ÁGÚST 2005 blaðiö
Skógareldar í Portúgal hafa valdið
gífurlegum skaða
Evrópuþjóðir taka
höndum saman
Fjölmörg Evrópuríki hafa brugðist
við beiðni Portúgala um hjálp vegna
þeirra miklu skógarelda sem hafa
geysað um landið undanfarið. Þjóð-
verjar hafa sent þrjár lögregluþyrlur
með sérfræðingum sem munu að-
stoða þá 2.700 portúgölsku slökkvi-
liðsmenn sem eru að störfum við
að ná tökum á þeim 27 eldum sem
geysa í skógum og á beitilöndum
um þessar mundir. Þá hafa Spánverj-
ar, Frakkar og Italir sent tvær flug-
vélar sem notaðar eru við að slökkva
eld úr lofti. Eldarnir í Portúgal hafa
orðið minnst 15 að bana og eyðilagt
140.000 hektara landsvæði.
Mið- og norðurhluti Portúgal
hafa orðið verst úti og fjölmörg þorp
á þeim svæðum hafa verið rýmd.
Alvarlegustu eldarnir um helgina
urðu í Coimbra-héraðinu, tæpa 200
kílómetra norður af höfuðborginni
Lissabon. Forseti Evrópusambands-
ins, Jose Manuel Barroso, heimsótti
svæði í norðurhluta Portúgal meðan
á sumarfríi hans stóð og hét aðstoð
fyrir heimaland sitt. Talsmaður
ESB, Rupert Kreitemeyer, sagði við
BBC-fréttastofuna að verið væri að
skipuleggja aðstoðina og hvernig
best væri að framkvæma hana.
Skaðsömustu eldar seinni tíma
Fjölmargar fjölskyldur hafa misst
heimili sín og gríðarlegt tjón hefur
orðið. „Ég hef misst allt saman. Allt
umhverfis húsið er brunnið", sagði
kona en heimili hennar varð fyrir
barðinu á eldunum. „Þetta gerðist á
skógi við borgina Viana do Castelo i norð-
urhluta Portúgal i gær.
nokkrum sekúndum og það er ekk-
ert eftir. Það voru engir slökkviliðs-
menn. Þetta er hörmulegt.“
Innanríkisráðherra Portúgal, An-
tonio Costa, hefur sagt eldana vera
þá skaðsömustu sem landið hafi orð-
ið fyrir á seinni tímum og ómögu-
legt væri að komast af án utanað-
komandi aðstoðar. Þá talaði hann
um að aðstæðurnar væru mun verri
en ella sökum mikils hita og vinds.
Forseti Portúgals, Jorge Sampaio,
hefur hvatt til einingar þjóðarinn-
ar og biðlað til atvinnurekenda að
senda starfsfólk sitt til sjálfboða-
slökkvistarfa. „Núna þarf landið á
eins mörgum slökkviliðsmönnum
að halda og mögulegt er“, sagði
Sampaio. „Þetta er mjög alvarlegur
tími fyrir Portúgal“, lét hann einnig
hafa eftir sér. ■
Píanómaðurinn
útskrifaður
Maðurinn sem
hefur fengið
viðurnefnið Pí-
anómaðurinn
var útskrifaður
af geðsjúkra-
húsi á Eng-
landi þar sem
læknum þótti
ástand hans
hafa batnað nægilega. Samkvæmt
bresku dagblaði rauf maðurinn
mánaðalanga þögn sína fyrir nokkr-
um dögum síðan og kvaðst þá m.a.
vera þýskur. Sjúkrahúsyfirvöld hafa
engu viljað svara um þessar tilgátur
þar sem það muni vera trúnaðarbrot
við sjúklinginn. 1 yfirlýsingu frá geð-
sjúkrahúsinu í gær sagði einfaldlega
að maðurinn hefði verið látinn laus
þar sem heilsa hans hefði batnað
verulega en ekki kom nánar fram
hvað fælist í því.
Vaknaði til lífsins við píanóið
Maðurinn fannst ráfandi um götur
Kent í gegnblautum jakkafötum í
apríl síðastliðnum og eftir rannsókn-
ir lækna var ákveðið að vista hann
tímabundið á geðsjúkrahúsi. Mælti
hann ekki aukatekið orð við nokk-
urn mann og virtist afar hræddur.
Þegar honum var fært blað og blý-
antur teiknaði hann mynd af mikil-
fenglegu píanói og var þá farið með
hann i kapellu sjúkrahússins þar
sem píanó var að finna. Kom þá á
daginn að hinn dularfulli maður
var framúrskarandi fær píanóleik-
ari. Einhverjir fjölmiðlar hafa þó
neitað því að þessar fregnir eigi við
rök að styðjast og hafa haldið fram
að maðurinn hafi einatt leikið einn
tón. Félagsráðgjafi mannsins sagði
að skjólstæðingur sinn hefði allur
vaknað til lífsins þegar hann settist
við píanóið og leikið á það klukku-
stundum saman.
Sá kvittur komst á kreik að mað-
urinn væri franskur götulistamaður
og einhverjir vildu meina að hann
væri tékkneskur og léki í stórhljóm-
sveit. Þá var norskur túlkur kallaðiir
til eftir að dularfulli pianóleikarinn,
sem sagður er vera á þrítugsaldri
eða á öndverðum fertugsaldri, benti
á Osló á landakorti. Vitað var að
skip frá Noregi var á þeim slóðum
sem maðurinn fannst um það leyti
og þá var einnig talið líklegt að mað-
urinn hefði verið í sjónum. Þessar
sögusagnir reyndust þó tilhæfulaus-
ar. Málið hefur vakið mikla athygli
í sumar og barst lögreglunni hátt í
þúsund vísbendinga hvaðanæva um
heiminn. ■
VIÐ KAUP A EGLA BREFABINDUM ERTU AÐ TRYGGJA MORGUM EINSTAKLINGUM BETRI FRAMTIÐ
BIC Atlantis
penni
Verð I 19 kr/slk
FAST I OLLUM BETRI BOKAVERSLUNUM
te. yk......
MULALUNDUR
Þunnu möppurnar með mjúku og hörðu
baki. Þær sem allir eru að spyrja um
Ljósritunarpappír 394 kr/pakkningin
nta
Teyajumöppur
af öllum gerSum
Geisladiskar þar sem gæðin skara framúr
fást í 10, 25, 50 og 100 stk einingum
Mjúkar möppur
sem passa vel
bakpokann.
STABILO BOSS
Margir litir.
Verð 89 kr/stk
Vinnustofa SIBS • Hátúni 1 Oc • Sími: 562 8500 • 562 8501 • Fax: 552 8819 • Heimasíða www.mulalundur.is