blaðið - 23.08.2005, Blaðsíða 24

blaðið - 23.08.2005, Blaðsíða 24
24 I MATUR ÞRIÐJUDAGUR 23. ÁGÚST 2005 MaöÍA uhúsiö Af hverju eru appelsínur appelsinugular? Appelsínur fá sinn appelsínugula lit aðeins ef hitastigið lækkar í kring- um þær á meðan þær hanga enn á trénu. Á hitabeltissvæðum hald- ast appelsínur grænar því þar er hitastigið jafnt og þétt að degi sem nóttu. Kaliforníuappelsínur verða til að mynda mun appelsínugulari en frænkur þeirra frá Flórída því næturnar í Kaliforníu eru mun kald- ari en á Flórída. Sætar appelsinur voru upprunalega fluttar til Evrópu frá Malasíu. Fyrst er vitað um slíka landflutninga á sextándu öld en það voru Portúgalir sem komu með þennan framandi ávöxt til Suður- Evrópu árið 1529. Á Balkanskagan- um og á sumum svæðum ítaliu voru appelsínur kallaðar Portúgalir og á það enn við sumstaðar. ■ Taktu þátt og þú getur unnið nýjan Suzuki Swift eða fartöfvtnrrenBTj Næstu vikurnar ætlaTBIaðið að létta þefiínð Sendu okkur fyrirsögn úr Blaðinu í dag og þú kemst í pott sem dregið f^rður'IQV - einu sinni í viku. Þú gætir unnið afnot af Suzuki Swift í heilt ár, Medion Black Dragon fartölvu frá eða einhvern af Qölmörgum glæsilegum vinningum skólaleiks Blaðsins SWIFT Klipptu út seðilinn hér að neðan og sendu okkur háhn (Blaðið, Bæjarlind 14 - 16, 201 Kópavogur) eða sendu okkur tölvupóst (með nafni kennitölu og símanúmeri) á netfangið skoli@vbl.is ' Dregiðúrinnsendumsvörumámánudögum Ath. Þú mátttaka þátt eirts oft og þú vilt, því fleiri innsendirseðlar, þeirh mún merri vinningslíkur Þatttokuseðill Fyrirsögn: Fullt nafn: Kennitala: Simi: hlaóiö= Sendist á - Blaöiö, Bæjarlind 14-16,201 Kópavogur olávefurinnis o Afnot af Siizuki Swift í heiltár. . ° Medion Black Drágon fartölvur frá BT. o l-pód frá Apple búðjb.hl ÓÖO.- kr úttekt í Officeone . - oNuddtækj frá Heilsu-. hú'sinu ’ . : ’ ’ ^ OGjafakarfa frá'Ósta og Smjörsölunni P ÁrsÁskriftað ’ » - Skólavefnum v Officelsuperslore Smágulrætur Smágulrætur eða „baby carr- ots“ eru algeng sjón í íslenskum stórmörkuðum. Þær eru tilvald- ar sem snakk eða í ýmis konar rétti. Margir halda að þarna sé komið annað afbrigði af gulrót- um en þessar stóru sem við eig- um að venjast en staðreyndin er sú að smágulrætur eru unnar úr venjulegum gulrótum. Þær eru skrældar og hreinsaðar og mótaðar í munnstóra bita sem eru tilbúnir til matar. Stóra perlan Laukur hefur verið stór hluti af matargerð frá því fyrir tíma skráðra heimilda. Margir telja að laukur hafi verið fastur hluti af mataræði mannsins í þúsundir ára en laukur geymist vel eftir að hann er tekinn upp, hann kemur í veg fyrir þorsta, það er auðvelt að ferja hann milli staða og hann má þurrka til geymslu. Talið er að hann sé upprunnin frá mið-Asíu en sumir telja að fyrstu svæðin sem laukurinn lagði undir sig hafi verið í Iran og Pakistan. Hans er getið í fornritum Egypta, gömlu indversku Vedunum og í opinberum skjölum Súmeríumanna. Enska orðið otiion sem þýðir laukur var upphaflega komið frá latneska orðinu unio sem þýðir stóra perlan en það er alveg vist að margir ættu erfitt með að hugsa sér matargerð án hans. MSGÍ barnamat Stuttu eftir að matvælafyrirtæk- ið Gerber, sem flestir þekkja fyrir barnamatinn fræga, var stofnað fóru þeir að bæta MSG við barnamaukið. MSG er efni sem dregur fram bragð af öðru í matnum og gerir hann bragð- betri. Hins vegar hefur komið í ljós að MSG er alls ekki hollt og mikið hefur dregið úr neyslu þess. Það sem er sláandi við það að Gerber hafi notað MSG er að ástæðan var ekki að láta matinn bragðast betur fyrir börnin heldur mæðurnar. Þeir höfðu áttað sig á því að mæð- urnar smökkuðu matinn áður en þær gáfu börnunum sínum hann og ef þeim fannst hann góður voru meiri líkur á að þær keyptu hann aftur.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.