blaðið - 04.10.2005, Side 2

blaðið - 04.10.2005, Side 2
2 I INNLENDAR FRÉTTIR ÞRIÐJUDAGUR 4. OKTÓBER 2005 blaöiö Fjárlagafrumvarpið 2006 14,2 milljarðar í afgang Áframhaldandi aðhald í ríkisfjármálum, segir nýr fjármálaráð- herra. Útgjöld til menntamála aukin og tekjuskattur lœkkaður. Arni M. Mathiesen kynnti fyrir fjölmiðlum sitt fyrsta fjárlagafrumvarp í Salnum í Kópa- vogi í gær. Kyndir undir vandanum „Ef við lítum á stóru línurnar í fjárlagafrumvarpinu er gert ráð fyrir áframhaldandi tekjuaukningu, en einnig útgjaldaaukningu,“ segir Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar. „Útgjöldin eru að hækka um 1,8% á raungildi frá fjárlögum þessa árs og ef ég man rétt var ríkistjórnin með markmið um 1% hækkun þannig að hún er að fara fram úr sjálfri sér. Tekjurnar hafa tvöfaldast í tíð þessarar ríkisstjórnar, en það hafa útgjöldin líka gert. Ef ríkistjórnin væri að leggja sitt af mörkum til að slá á þensluna í stað þessa ávísa bara vandanum á Seðlabankann, þá ætti tekjuafgangurinn að vera meiri en ráð er fyrir gert. Það verður að horfa á það að á þessu ári fékk ríkisstjórnin rúmlega 30 milljarða búhnykk í formi veltuskatta og stimpilgjalda. Það eru heimilin og fyrirtækin í landinu sem eru að skuldsetja sig sem greiða stilmpilgjöldin. Mér finnst líka mjög sérkennilegt þegar talað er um að frumvarpið muni viðhalda stöðugleikanum í efnahagslífinu. Stýrivextir eru að hækka, krónan er að hækka, verðbólgan er að aukast, misskipting er að vaxa, skuldir þjóðarbúsins að vaxa og viðsldptahallinn er meiri en mælst hefur á sögulegum tíma, hvaða stöðugleika er verið að tala um? Ástandið í landinu er mjög viðkvæmt núna, og mér finnst ríkisstjórnin vera að kynda undir vandanum með frumvarpinu.“ Tugir vilja verða slökkvi- liðsmenn Hátt í eitt hundrað manns sóttu um tæpan tug starfa slökkviliðs-og sjúkraflutn- ingamanna sem auglýst voru laus til umsóknar fyrir stuttu hjá Slökkviliði höfuðborgar- svæðisins. Búið er að fara yfir umsóknirnar og er ráðningar- ferlið þegar hafið. Ráðgert er að nýju starfsmennirnir hefji störf fyrsta desember næstkom- andi. Úm er að ræða fullt starf í vaktavinnu við sjúkraflutn- inga, slökkvistörf og reykköfun, björgun og neyðarflutninga. Nýskipaður fjármálaráðherra, Árni M. Mathiesen, kynnti í gær frum- varp til fjárlaga fyrir árið 2006. Frumvarpið gerir ráð fyrir 14,2 milljarða tekjuafgangi sem að mati ráðherra felur í sér áframhaldandi aðhald í ríkisfjármálum og sífellt Fjárframlög til háskóla hækka um tvo milljarða í frumvarpinu sem lagt var fram í gær. Gjöld að frádregnum sértekjum nema 12.7 milljörðum króna og þar af eru 6,4 milljarðar útgjöld til Háskóla íslands. Frum- varpið gerir ráð fyrir því að heildar- útgjöld vegna framhaldsskóla aukist einnig og hækki um 1.53 milljarða frá fjárlögum þessa árs. Ef litið er á utanríkisþjónustuna kemur í ljós að 27 milljónir fara í nýtt sendiráð í Nýju-Delhi, 22 millj- ónir fara til Rómar og aðalræðis- maðurinn í Winnipeg fær 20 millj- ónir. Fjárveitingar til þróunarmála hækka um 487,5 milljónir króna. Út- gjöld til Þróunarsamvinnustofnunar Islands hækka um 228 milljónir eða 31% frá núgildandi fjárlögum. Einn- ig verður framlag til þróunarmála og alþjóðlegrar hjálparstarfssemi aukin um 56%. sterkari stöðu ríkissjóðs. Tekjuskatt- ur á einstaklinga verður lækkaður á árinu um eitt prósent og eignaskatt- ar falla niður á næsta ári sem og svokallaður hátekjuskattur. Hreinar skuldir ríkissjóðs hafa lækkað úr 35% af vergri landsframleiðsu árið Styttur og vopnakaup Styttumál hafa verið til umræðu í sölum ráðhúss Reykjavíkur að undanförnu. Þar var tekist á um hvort reisa ætti styttu af Tómasi Guðmundssyni eða Bríeti Bjarnhéð- insdóttur. Borgarstjóri taldi ekki for- gangsmál að reisa styttu af Tómasi þar sem hörgull væri á styttum af konum í borginni, og minntist hún á Bríeti í því sambandi. Skriður virð- ist hins vegar vera á máli Bríetar, þar sem gert er ráð fyrir 3 milljónum í frumvarpinu sem fara eiga í gerð minnisvarða um Bríeti og jafnréttis- baráttu hennar. 14 milljónum króna verður varið til kaupa á vopnum og öðrum bún- aði fyrir sérsveit lögreglunnar. Fjölg- að verður í sveitinni um fimmtán manns á árinu. Þá verður fjármagn til styrktar efnahagsbrotadeildar Ríkislögreglustjóra og fjarskipta- miðstöðvar lögreglunnar aukið um 13 milljónir. 1996 og niður í 7% árið 2006. Heild- arútgjöld ríkissjóðs eru áætluð 313,2 milljarðar króna Framkvæmdir í lágmarki Framkvæmdir á vegum ríkisins verða í lágmarki á næsta ári en til stendur að stórauka þær árið 2007 til þess að vega á móti minnkandi stóriðju- og virkjanaframkvæmd- um. Ráðherra segir að næstu árin verði stefna ríkistjórnarinnar sú að standa fýrir ábyrgri og styrkri fjár- málastjórn sem tekur mið af stöðu efnahagslífsins á hverjum tíma. I frumvarpinu er gert ráð fyrir auknum framlögum til menntamála og rannsókna og aukast framlög um 12% frá fjárlögum ársins í ár. Barna- bætur verða auknar um 1,2 milljarða króna og einnig eru framlög til lög- gæslu og öryggismála aukin. Ráð- herra segir aðhald í útgjöldum skila samtals 4 milljarða króna lægri útgjöldum en annars hefði orðið. Frestun á framkvæmdum í vegamál- um skila 2 milljörðum til lækkunar, ráðuneytum og stofnunum var gert að taka á sig eins milljarðs lækkun útgjalda og loks ákvað ríkisstjórnin að lækka ýmis útgjöld um einn millj- arð til viðbótar. Heimildir ráðherra Hinn nýbakaði fjármálaráðherra hefur heimildir til kaupa eða sölu á ýmsu í nafni ríkisstjórnarinnar í fjárlagafrumvarpinu. Þetta ár- ið verður honum m.a. heimilt, ef það verður samþykkt á alþingi, að kaupa sumarbústaði á Þingvöllum og jarðir í næsta nágrenni. Einnig er heimild til þess að kaupa hvera- svæði Geysis í Haukadal. Þá má hann samkvæmt frumvarpinu selja flugafgreiðslur vítt og breitt um landið, eða á Kópaskeri, í Breiðdals- vfk, Norðfirði, Kirkjubæjarklaustri, Patreksfirði og Hólmavík. Einnig er þess getið að húsnæði Blóðbankans við Eiríksgötu verði selt til þess að finna annað hentugra. Eins verður heimild til sölu á flugvél Landhelgis- gæslunnar, TF-SÝN, og varðskipinu Oðni en hagnaður af sölunni mun renna til kaupa á nýjum farartækj- um fyrir gæsluna. Þetta partí tekur enda eins og önn- ur partí „Frumvarpið markast af því að það eru miklar tekjur í þjóðfé- laginu,“ segir Guðjón A. Krist- jánsson alþingismaður. „Hins vegar er hætt við því að hluti af þeim tekjum séu fengnar með lántökum. Því er ekki að neita að ákveðnir hópar í þjóðfélag- inu hafa mikil laun, þó að það eigi ekki við um alla því aðriri hópar hafa setið effir. Það er því aukin misskipting í þjóðfélag- inu þrátt fyrir miklar tekjur,“ segir Guðjón.„Þó nú sé ákveðið góðæri í gangi er stórhættulegt að láta sjávarútveginn reka á reiðanum. Þegar stóriðjufram- kvæmdunum lýkur verður það svakaleg staða sem við stönd- um frammi fyrir ef sjávarútveg- urinn verður farinn úr landi að hluta til, sem gæti alveg gerst. Svona góðæri endist ekki enda- laust eins og sést á frumvarpinu þar sem halli blasir við effir tvö ár, þó menn komi auðvitað til með að gefa í á kosningaári. Við erum auðvitað að dansa í ákveðnu partíi nú um stundir, en ég held að það partí endi nú eins og önnur partí, og það geta fylgt því timburmenn." Óviðunandi mannekla á leikskólum Trúnaðarmenn leikskólakenn- ara í Reykjavík telja miður í hvaða farveg umræðan um manneklu í leikskólum hefur farið. Þeir segja að viðmið um barnafjölda og kjarasamnings- bundin rétfindi verði að virða. Þá þykir þeim óviðunandi að mannekla herji á leikskólana ár hvert. Þáð dragi úr þjónustu og faglegu starfi leikskólanna sé stofnað í hættu. Auk þess valdi endalaus endurnýjun á starfsfólki álagi sem hefur slæm áhrif á börn og það starfsfólk sem fyrir er. Trúnaðarmennirnir segja ástæðu manneklunnar vera bág kjör og kalla á að þau verði bætt. Ennfremur þurfi yfirvöld að vinna í því að fjölga leikskólakennurum. Fjórtán milljónir til vopnakaupa Það kennir ýmissa grasa ífjárlagafrumvarpinu sem lagt varfram ígœr. Ríkið lceturpen- inga í allskyns mál og má þar nefna vopnakaup, nýtt sendiráð og styttu afBríeti Bjarn- héðinsdóttur. (fj Heiöskirt (3 Léttskýjað ^ Skýjað ® Alskyjaö fRigning, litilsháttar W, Rignlno 1 5 Súld * Snjókoma ' //' 9 >{í * Slydda SJJ Snjóél 'jj Amsterdam 15 Barcelona 21 Berlín 15 Chicago 19 Frankfurt 15 Hamborg 16 Helsinki 13 Kaupmannahöfn 13 London 16 Madrid 20 Mallorka 20 Montreal 17 New York 19 Orlando 24 Osló 15 París 16 Stokkhólmur 14 Þórshöfn 12 Vin 16 Algarve 24 Dublin 14 Glasgow 13 4° / // \/// 10° 10‘ /// cf /// 6 /// // /// Veðurhorfur í dag kl: 18.00 Véðursíminn ' 02 0600 Byggt á upplýsingum frá Veðurstofu íslands '// / // <f r 4% Á /// /// /// morgun 9 7° 7°

x

blaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.