blaðið - 04.10.2005, Page 4
4 I INNLENDAR FRÉTTIR
ÞRIÐJUDAGUR 4. OKTÓBER 2005 blaði6
Sveitarfélögin éta skatta-
lækkanir launafólks
/ skýrslu Andríkis um skiptingu staðgreiðsluskatta milli ríkis og
sveitarfélaga kemur fram að á meðan tekjuskattur hefur lœkkað
undanfarin ár hafi útsvarið hœkkað jafnt ogþétt.
Una María
býður sig
fram
Útlit er fyrir harða baráttu
um í. sætið á lista framsókn-
armanna í Kópavogi.
Una María Óskarsdóttir,
varabæjarfulltrúi Framsóknar-
ílokksins í Kópavogi hefur gefið
kost á sér í í. sæti flokksins á
framboðslista flokksins við
kosningarnar í vor. í tilkynn-
ingu frá Unu segir að hún hafi
lengi verið virk í starfi innan
flokksins og lét nýverið af
formennsku í Landsambandi
Framsóknarkvenna. Flún er
varaformaður í Freyju, félagi
framsóknarkvenna í Kópavogi.
Það er útlit fyrir harða baráttu
um fyrsta sætið í Kópavoginum
en Ómar Stefánsson bæjarfull-
trúi og Jóhannes Valdemarsson
hafa einnig gefið kost á sér
f efsta sætið. Hansína Björg-
vinsdóttir, oddviti Framsókn-
armanna og fyrrverandi bæj-
arstjóri, gefur ekki kost á sér. ■
Undanfarin ár hefur skipting stað-
greiðsluskatts af launum einstak-
linga milli ríkis og sveitarfélaga
breyst verulega á þann veg að
tekjuskattur ríkisins hefur lækkað
jafnt og þétt, en á sama tíma hafa
mörg sveitarfélög hækkað útsvar
sitt. Sveitarfélögin hafa þannig haft
hluta skattalækkunarinnar af launa-
fólki og bendir flest til að þessi þró-
un haldi áfram á næstu árum.
Þetta kemur fram í skýrslu, sem
Andríki, útgáfufélag frjálshyggjuvef-
ritsins Vef-Þjóðviljans, hefur sent
frá sér. Þar kemur fram að ríkið
leggi nú á 24,75% tekjuskatt í stað-
greiðslu, en veiti persónuafslátt sem
nemi 28.321 krónu á mánuði. Sveitar-
félög leggi hins vegar á 12,98% útsvar
en veita engan persónuafslátt.
Þetta þýðir að þeir sem hafa undir
125 þúsund krónum í mánaðartekjur
greiða engan tekjuskatt til ríkisins,
en þeir greiða á hinn bóginn fullt út-
svar til sveitarfélags.
Fiestir greiða útsvar
Á síðasta ári greiddu um 67% fram-
teljanda í landinu almennan tekju-
skatt í ríkissjóð, en 97% framtelj-
enda greiddu útsvar til sveitarfélaga.
Þeir sem hafa undir 262 þúsund
krónum í mánaðarlaun greiða meira
í útsvar til sveitarfélaga en í tekju-
skatt til rikisins. Þeir sem hafa tekj-
ur undir skattleysismörkum (75.000
kr.) greiða engan tekjuskatt til ríkis-
ins, en ríkið greiðir allt útsvarið fyr-
ir viðkomandi. Ríkið tryggir með
öðrum orðum að sveitarfélögin hafi
útsvarstekjur af framteljendum þótt
launatekjur séu undir skattleysis-
mörkum.
Útsvarið gefur meira en
tekjuskattur ríkisins
Þar sem ríkið greiðir útsvar til sveit-
arfélaga fyrir tekjulægstu einstak-
lingana eykst hlutur sveitarfélag-
anna í staðgreiðslunni og verður að
meðtaltali meiri en ríkisins, segir í
skýrslu Andríkis. Á síðasta ári var
meðalskatthlutfall almenns tekju-
skatts til ríkisins 12,5% eftir að tek-
ið var tillit til persónuafsláttar. Á
sama tíma greiddu menn 13,1% að
meðaltali í útsvar til sveitarfélaga af
tekjum sínum. í fyrra höfðu sveitar-
félögin þess vegna meiri staðgreiðslu-
skatta upp úr launaumslögum lands-
manna en ríkið.
1 niðurstöðum skýrslu Andríkis
kemur fram sú skoðun að mikil-
vægt sé „að launþegar séu meðvit-
aðir um þá miklu og vaxandi skatt-
heimtu sem sveitarfélögin stunda af
launatekjum einstaklinga." Stungið
er upp á því að á launaseðlum lands-
manna verði sundurliðað hvernig
staðgreiðsla tekjuskatts og útsvars
skiptist á milli ríkis og sveitarfélaga,
enda telur Andríki mikilvægar upp-
lýsingar fyrir kjósendur í komandi
kosningum til sveitarstjórna og
þings felast í skiptingunni. ■
Reykingar verði bann-
aðar á skemmtistöðum
Lœknafélag íslands vill að reykingar verði bannaðar á öllum vinnu-
stöðum ogkallar á að aðgerðirsem taka á offituvandamálinu verði
hertar.
grœna línan
vegetarían restaurant
Lífrænt ræktað
fyrsta flokks
hráefni
Réttur dagsins kr.990-
Á aðalfundi Læknafélags íslands var
samþykkt ályktun þar sem skorað
er á heilbrigðis- og tryggingamála-
ráðherra að hafa forystu um að rík-
isstjórn íslands fari að tilmælum Al-
þjóða heilbrigðismálaþingsins 2004
og herði samræmdar opinberar
aðgerðir til að auka heilbrigði Islend-
inga með hollara mataræði og auk-
inni hreyfingu. Á þinginu var m.a.
sagt að hvert ríki Álþjóða heilbrigð-
isstofnunarinnar ætti að móta pólit-
íska stefnu til að bæta mataræði og
auka hreyfingu og að ríkisstjórnir
skipti sköpum við að ná fram varan-
legum breytingum í lífsstíl. Þá skuli
matvælaframboð vera í samræmi
við markmið um að vernda og bæta
lýðheilsu.
Fljótlegt að koma við og taka með sér rétti
Græna Ixnan, Bæjarhrauni 4, 8:565-2075
Reyklausir vinnustaðir
Á fundi Læknafélagsins var einnig
skorað á ráðherra að hann beiti sér
fyrir því að lagt verði fyrir Alþingi
frumvarp til laga um bann við reyk-
ingum á öllum vinnustöðum, þar
með talið veitinga- og skemmtistöð-
um.
Jafnframt bað fundurinn um að
hagsmunir sjúklinga á landsbyggð-
inni yrðu hafðir í huga þegar fram-
tíðaráform um Reykjavíkurflugvöll
verða rædd.
Læknafélag íslands vill að allir
vinnustaðir verði reyklausir, líka
veitinga-og skemmtistaðir. ■
Slippstöðin
gjaldþrota
100 manns eru atvinnulausir
eítir að Slippstöðin var tekin til
gjaldþrotaskipta. Starfsmenn
eiga inni laun fyrir 20 milljónir
„Stöðin er lokuð og það
verður ekki áframhaldandi
rekstur hjá skiptastjóra.“ segir
Þorsteinn Haraldsson trúnaðar-
maður starfsmanna.„Nú bíðum
við bara og sjáum hvað gerist
og hvort einhverjir utanaðkom-
andi aðilar komi að málinu.
Við erum því atvinnulausir
frá og með þessari stundu.“
Þorsteinn segir útistandandi
laun fara til ábyrgðarsjóðar
launa. „Ég vona að stöðin verði
endureist þó það verði ekki í
sömu mynd og áður. En það
verður þá að gerast fyrr en
seinna því menn bíða ekkert
lengi ef þeir geta fengið vinnu
annarsstaðar." Hjá Slippstöð-
inni störfuðu um 100 manns.
Aðspurður að því hvort hann
sjái fyrir sér aðkomu ríkisins
að málinu svarar Þorsteinn:
„Ég er ekki hrifinn af því að
ríki og bær komi að þessu
nema kannski í sambandi við
endurgreiðslu á aðflutnings-
gjöldum fyrir skipaiðnaðinn
almennt, en mér finnst allt í
lagi að bærinn komi með aura
inn í fyrirtækið tímabundið
á meðan verið er að reisa
starfsemina við, og fari svo út
úr því þegar því er lokið. Ég
tel vera framtíð í viðgerðageir-
anum en það hafa ekíd verið
smíðuð skip hér í mörg ár og
ég er ekkert bjartsýnn um að
það verði nokkur breyting á
því. Verkefnið á Kárahnjúkum
virðist hafa verið banabitinn,
fyrirtækið hefur alveg staðið
undir sér hér í b ænum. “ ■
Hringleika-
hús í Vatns-
mýrina
Margvíslegar hugmyndir komu
fram hjá íbúum Reykjavíkur
sem lögðu leið sína í Hafnar-
húsið og létu í ljós skoðun
sína á því hvernig nýta skuli
Vatnsmýrina. Árni Geirsson,
ráðgjafi hjá Alta, telur að um
500 - 600 manns hafi komið
á laugardaginn. „Við heíðum
getað tekið á móti fleirum en
þetta er fúllnægjandi", segir
Árni. Hann segir að þótt nokkr-
ar hugmyndirnar hafi verið
villtar - sem er gott - þá hafi
þær flestar verið skynsamlegar
og raunhæfar og gagnlegur
efniviður fyrir forsendur
hugmyndasamkeppninnar. ■
NEC Símkerfi
sérsniðnar heildarlausnir fyrir fyrirtæki og heimili
NEC
Infrontia
£■{ símtæki
XN120 simstöð
? 3 hliðrænar bæjarlfnur
2 x ISDN grunnt. 4 bæjarlínur
Tengi fyrir 8 símtæki,
stafræn eða hliðræn Á
4 stk. XN Vision símtæki ^MI
með 22 hnöppum
Símstöð stækkanleg í símtæki og 24 IP síma
Fjárfesting sem vex með þér...
IMEC
Infrontia
M símtæki
XN120 símstöð
1 3 hliðrænar bæjarllnur
Æk 2 x ISDN grunnt. 4 bæjarlínur
ÆÆ Tengi fyrir 16 slmtæki,
stafræn eða hliðræn
8 stk. XN Vision símtæki
með 22 hnöppum
NEC
Infrontia
símtæki
XN120símstöð
3 hliðrænar bæjarlinur
4 x ISDN grunnt. 8 bæjarllnur
Tengi fyrir 16 slmtæki,
stafræn eða hliðræn
12 stk. XN Vision slmtæki
með 22 hnöppum
BoOlGÍO
###
###
# ##
# #
Boðleið ehf. Hlíðasmára 8 201 Kópavogi
Sími 535 5200 Fax 535 5209 bodleid@bodleid.is
Kíktu á úrvalið á heimasíðunni www.bodleid.is