blaðið

Ulloq

blaðið - 04.10.2005, Qupperneq 22

blaðið - 04.10.2005, Qupperneq 22
22 I HEIMILI OG HÖNNUN ÞRIÐJUDAGUR 4. OKTÓBER 2005 blaöið Ódýrar lausnir sem íegra heimiUð Til eru ótal lausnir sem hægt er að nota til að fegra heimilið, lausnir sem þurfa ekki að vera dýrar en eru þó mjög fallegar og setja skemmtilegan svip á heimilið. Hægt er að nota eitthvað sem til er á heimilinu og breyta því eða kaupa ódýran einfaldan hlut og gera við hann það sem hugurinn girnist. Hægt er að kaupa stóra, glæra vasa í búðum eins og IKEA og kosta ekki mikið. Við þessa vasa má gera margt flott og láta hugmyndaflugið al- gerlega ráða ferðinni. Hráefnið er hægt að fá í blómabúðum, föndurbúð- um, stórmörkuðum eða bara ofan í skúffu heima. Hér eru nokkrar hug- myndir sem eru ódýrar og auðveldar og tilvalið að gera í nokkru magni og gefa í jóla- eða afmælisgjafir. Farið niður í fjöru og týnið fallega steina, tilvalið er að leyfa krökkun- um að koma með. Setjið svo steinana ofan í vasann, fallegt er að mála þá á undan eða bara hafa þá náttúrulega. Annað hvort má setja vatn og láta síðan flotkerti ofan á eða stinga bara sprittkertum niður á milli steinana. Hægt er að kaupa ýmsa liti af grófum sandi í blóma- og föndurbúðum. Setjið sandinn í vasann og stingið kertum í sandinn. Skeljasandur kem- ur líka mjög fallega út. Ef einhvern vantar lýsingu í stofuna, baðherbergið eða svefnherbergið er virkilega smart að setja seríu ofan í glæran vasa. Seríur er hægt að fá í ýmsum útgáfum, svo sem með litlum perum, stórum eða með kúlum utan um perurnar sem kemur út eins og margar smáar ljósaperur. í Tiger er hægt að fá litla föndursteina í ýmsum litum, mjög ódýra. Ann- að hvort má setja þá ofan í vasann, setja svo vatn og flotkerti eða líma þá utan á hann og búa til alls kyns mynstur. Þá má líka kaupa minni kertastjaka og líma samskonar steina utan á. Fyrir þá sem kjósa einfaldleikann geta keypt eitt stórt kerti og leyft því að standa einu í vasanum. í blómabúðum er hægt að kaupa litlar perlur sem blása út þegar þær koma í vatn. Þær blása svo mikið út að þær fylla nánast út í vasann, auðvitað eftir því hversu margar eru settar. Þessar perlur eru glærar en hægt er að leika sér með litinn með því að setja mat- arlit í vatnið. Mjög fallegt er að setja tréávexti í glæra vasa, hentugt skraut í eldhúsgluggann eða á eldhúsbekkinn. Hrísgrjón eru til margra hluta nytsamleg fyrir utan að borða þau. Setjið slatta af hrísgrjónum ofan í poka, slettið smá málningu ofan í pok- ann og hristið. Leyfið þessu að þorna og setjið svo í glæran vasa. Þetta kemur mjög fal- lega út og það má jafnvel hafa nokkra liti saman fyrir þessa sem eru litaglaðir. Setj- ið svo kerti í vasann. ■ www.oskarsson.is OPIÐ ALLA VIRKA DAGA MILLI KL. 9-12 & 13-17 SÍMAR 566-6600 & 566-7200 Breyting á fataskápum Útlit á hurðum á fataskápum geta breytt heildarsýn svefnher- bergja. Hægt er að breyta útliti á fataskápum á einfaldan og ódýran hátt. Það þarf ekki að vera mikið mál að fjarlægja hurðar af skáp- unum, lakka þær og skella þeim á aftur. Þetta getur oft breytt mjög miklu og þetta er góð leið til að láta skápana líta út eins og nýja fyrir lítinn pening. Breytt útlit á hurð- um fataskápa geta breytt heildar- svip herbergja á auðveldan hátt enda er ekki alltaf þörf á að eyða miklum pening til að ná fram ótrú- legum breytingum. Það skiptir ekki máli hvort skipt sé um lit eða málað í þeim sama til að fá frísklegra útlit, breytingin getur orðið mikil. ■ Sturtuklefa ■ ö Tæknilegar upplýsingar um sturtuklefa Teg.: OLS 8001. Stærð 103x103x220 cm. Einn með öllu !► Höfuðsturta, handsturta, fótsturta, nudd, gufurafall, Hi-Fi útvarp, sími, stjórnborð, fjarstýring, geislaspilaratengi, vifta, Ijós, spegill, o.m.fl. Kr. 1 39.000 - áður 178.800 kr. ISM Gólfefnaval

x

blaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.