blaðið - 04.10.2005, Síða 30
30 I ÍPRÓTTIR
ÞRIÐJUDAGUR 4. OKTÓBER 2005 blaöiö
Ég spila á íslandi næsta sumar
■ segir Þórður Guðjónsson sem leikið hefur
með Stoke City undanfarin misseri
Nokkuð hefur verið rætt og ritað
að undanförnu um með hvaða
liði Þórður Guðjónsson sem leikið
hefur með Stoke City, leiki með á
næstunni. Ljóst er að Þórður er ekki
inn í framtíðaráformum Boskamp
framkvæmdastjóra Stoke City og
óformlega hefur Þórði verið tilkynnt
að hann spili ekki með aðalliðinu í
vetur. Samningur Þórðar við Stoke,
sem er að verða 32ja ára, rennur
út um mitt næsta sumar. Töluvert
hefur verið í umræðunni að
undaförnu hvort Þórður sé á förum
heim til íslands á ný eftir að hafa
verið í atvinnumennsku undanfarin
13 ár, tæplega.
„Ég er náttúrulega með samning
við Stoke og hann er fram á næsta
sumar. Það má þó orða það þannig
að ég sé á uppsagnarfresti. Eg þarf
að mæta í vinnuna en það er lítill
sem enginn tilgangur með því.”
Býstu við að fá starfslokasamning?
,Ég hef ekki hugmynd um það. Eg
ætla að heyra í þeim með það hvort
ég megi tala við klúbba á íslandi. Ég
ætla að fá það formlegt áður en ég
geri eitthvað í þeim málum,” sagði
Þórður Guðjónsson leikmaður Stoke
City í samtali við Blaðið í gær um
hvort hann sé að koma til íslands á
ný.
Þórður verður að tala við
Stoke að fyrra bragði til að fá
starfslokasamning
En ætli einhver lið frá íslandi séu
búin að hafa samband við Þórð?
„Menn hafa spurt hvort ég vilji
koma. Það eru þó nokkur lið sem
hafa haft samband.”
Það má því búast við þér hér á
landi á næstu leiktíð?
„Það er það eina sem er á hreinu
hjá mér í þessum málum. Ég spila
á Islandi næsta sumar. Með hvaða
liði kemur bara í ljós,” sagði Þórður
Guðjónsson.
Blaðið hafði samband við Gunnar
Þór Gíslason, stjórnarformann í
Stoke City, um hvort það kæmi til
greina að gera starfsloka.samning
víð Þórð Guðjónsson?
„Já, já, það kemur alveg til greina.
Ef hann fer fram á það, þá er það
alveg inn í myndinni. Ég hef rætt
við hann um stöðu hans hjá liðinu
og hannvarmjögróleguryfirþessu.
Við viljum virða og standa við þá
samninga sem við gerum. Þannig
vinnum við,” sagði Gunnar Þór
Gíslason.
„Ef Þórður vill vera hjá okkur
í vetur og æfa, þá er það bara
svoleiðis. Þórður þarf að finna það
hjá sjálfum sér hvenær hann vill
hætta hjá okkur en samningur hans
er út júní á næsta ári. Það er best
fyrir Þórð að hann spili fyrir lið
sem hefur þörf fyrir starfskrafta
hans, hvort sem það er hér á landi
eða í útlöndum,” sagði Gunnar Þór
Gíslason, stjórnarformaður í Stoke
City, um hvort möguleiki sé á að
gera starfslokasamning við Þórð
Guðjónsson leikmann Stoke City.
Þórður er á leiðinni heim, hann
og hans eiginkona eiga von á sínu
þriðja barni á allra næstu dögum og
samkvæmt heimildum Blaðsins eru
tvö lið aðallega inn í myndinni hvað
varðar Þórð Guðjónsson og þau eru
ÍA og KR. ■
Barna-og
unglingastarf
á þriðjudögum
Blaðið hefur ákveðið að
stórauka umfjöllun sína um
barna-og unglingastarf í
íþróttum og mun hérleiðis
alltaf á þriðjudögum vera með
umfjöllun um íþróttir þeirra
yngri frá helginni á undan. Það
hefur verið sannarlegur skortur
á því að fjalla um íþróttir barna-
og unglinga þó ekki sé nema
að birta úrslit og myndir af
sigurvegurum. Á þessu hefur
verið nokkur skortur en við á
Blaðinu ætlum á þriðjudögum
að reyna eftir fremsta megni
að gera eins vel og við getum.
Við auglýsum eftir aðstoð
forráðamanna allra liða i
öllum íþróttum og endilega
sendið okkur myndir og úrslit
á vbv(á>vbl.is eða hringið í síma
510-3700. Við tökum fyrir allar
iþróttir, ekki bara handbolta,
fótbolta nú eða körfubolta.
Með kærri kveðju og von um
gott samstarf, Valtýr Björn
Valtýsson.
Yngriflokkarnir í handbolta um helgina:
Úrslitin á Reykjavíkur-
mótinu fóru fram í höllinni
Um síðustu helgi var mikið fjör í Laugardalshöllinni þar sem
yngri kynslóðin var að spila handbolta en þá fóru fram úrslitin á
Reykjavíkurmótinu. 21 leikur var leikinn og leiktíminn var frá 2x10 í
5-og ó.flokki og til 2x15 í 4. og 3.flokki.
í allra yngstu flokkunum voru liðin blönduð, þ.e.a.s. strákar og stelpur
saman í liði. ÍR-ingar sigruðu í fjórum flokkum, Framarar í tveimur
og Ármann/Þróttur, Valur, Fjölnir, Víkingur og Fylkir sigruðu í einum
flokki hvert lið.
4. flokkur kvenna Fram-Reykjavíkurmeistari. Myndasaf n Fram Myndasaln Fraw
6. flokkur stúlkna og drengja í Val - Reykjavlkurmeistari.