blaðið - 04.10.2005, Page 37
blaöiö ÞRIÐJUDAGUR 4. OKTÓBER 2005
DAGSKRÁ I 37
■ Fjölmiðlar
Umbúðirnar skipta líka máli
Það er erfitt að fjalla um fjölmiðla
þessa dagana án þess að ræða mál
málanna, Baugsmálið. Ég ætla nú
samt að reyna. Undanfarna daga
og vikur hef ég nefnilega - ásamt
fleirum hér á Blaðinu - verið að fara
yfir útlitsmálin og uppbyggingu
Blaðsins. Blaðið er ungt, nýskriðið
yfir íoo. tölublað, en hefur tekið
miklum breytingum á þeim tima
og þær munu víst standa í nokkurn
tíma enn. Við þá vinnu hefur mað-
ur svo líka lagst yfir aðra íjölmiðla,
íslenska sem erlenda, til þess að fá
hugmyndir, sjá víti til varnaðar og
svo framvegis.
Þegar hugað er að útliti blaða er að
fleiru að hyggja en menn gætu ætl-
að. Menn þurfa að koma sér niður á
grundvallarreglur, velja læsilegt let-
ur, litróf og svo framvegis. Hitt, sem
skiptir kannski ekki minna máli, er
uppbygging blaðsins, hvernig forsíð-
an er skipuð, hvar eiga fréttasíður að
vera, innlendar og erlendar, hvar er
eðlilegur staður fyrir leiðaraopnu,
íþróttir, sjónvarp og þessa föstu liði
alla. Uppbyggingin þarf að vera með
þeim hætti að lesandinn skilji blaðið,
að hann geti gengið að efnisþáttum
þess vísum og ef vel tekst til á hann
að geta ratað um blaðið án þess að
hafa nokkru sinni séð það áður. Það
er sjálfsagt ástæða til þess að fjalla
sérstaklega um þau mál síðar á þess-
um stað.
Eitt auðveldar manni lífið verulega
við hönnun blaða á íslandi, en það er
brotið á blaðinu og dálkastærðir. Það
er afar einfalt hvernig það á að vera.
Það á einfaldlega að vera nákvæm-
lega eins og hjá Mogganum, því við
það er öll auglýsingagerð miðuð og
blaðaprentvélar landsins hafa verið
keyptar með það brot í huga.
Þegar kemur að leturvalinu er það
fyrst og fremst læsileiki, sem ræð-
ur, þegar meginmálsletur er ann-
21:00-23:00 23:00-00:00 00:00-6:00
22.00 Tíufréttir 22.20 Lögmál Murphys (3:5) (Murphy's Law) Breskur spennumyndaflokkur um rannsóknar- lögreglumanninn Tommy Murphy og glímu hans við glæpamenn. Leikstjóri er Menhaj Huda og meöal leikenda eru James Nesbitt, Claudia Harrison og Del Synnott Atriði I þáttunum eru ekki við hæfi barna. 23.50 Kastijósið Endursýndur þáttur frá þvl fyrr um kvöldið. 10.10 Dagskrárlok
21:15 Flve Days to Midnight (1:2)(Fimm dagar til miðnættis) Hörkuspennandi framhaldsmynd. Háskólaprófessornum JT Neumeyer bregður illilega í brún þegar hann kemur höndum yfir lögreglu- skýrslu. (henni eru nákvæmar upplýsingar um morðið á honum sjálfum! 22:45 LAX (10:13)(Secret Santa) Hörkuspennandi myndaflokkur sem gerist á alþjóðlega flugvellinum (Los Angeles, LAX. Um flugvöllinn fara árlega milljónir farþega og stjórn- endur hans hafa í mörg horn að líta. Aðalhlutverkið leikur Heather Locklear. 23:30 Crossing Jordan (6:21)(Réttarlækn- irinn) Hörkuspennandi þættir um Jordan Cavanaugh, hörkukvendi sem starfar hjá dánar- dómstjóranum í Boston. Aðalhlutverkið leikur Jill Hennessy. 00:10 Deadwood (2:12) Stranglega bönnuð börnum. 01:00 Clockstoppers (Tímastjórnun) Hvað myndir þú gera ef tfminn stæði í stað? Zak þarf einmitt að svara þessari spurningu þegar hann setur armbandsúr föður sfns á sig. Þvi fylgja margir kostir aö geta stjómað tfmanum og sjálfsagt einhverjlr ókostir llka. 02:30 Sjálfstætt fólk (Auður Elr Vilhjálms- dóttir) 03:05 Fréttir og Island í dag 04:25 fsland f bftlð 06:25 Tónlistarmyndbönd frá Popp TíVi
21:00 Innlft/útllt 22:00 Judging Amy 22:50 Jay Leno 23:35 Survivor Guatemala (e) (ár fer keppnin fram 1 Guatemala og búast má við hörkuslag. Framleiðendumirfinna alltaf eitthvað nýtt til að auka á spennuna en meðal þátttakenda f þessari þáttaröð er Gary Hogeboom sem leikið hefur með Dallas Cowboys. 00:30 Cheers - 7. þáttaröð (e) 00:55 Þak yfir höfuðið (e) 01:05 Óstöðvandi tónlist
21:00 Að leikslokum (e) 22:00 Fulham - Man. Utd frá 01.10 00:00 Portsmouth Newcastle frá 01.10 02:00 Dagskrárlok
á bak viö tjöldin færð þú að sjá hér á Sirkus. 21.00 Laguna Beach (1:11) 21.30 My Supersweet (1:6) Raunveruleikaþáttur frá MTV 22.00 HEX (1:19) Yfirnáttúrulegir þættir sem gerast í skóla einum í Englandi. 22.45 KVöldþátturinn 23.15 FashionTelevison (1:4) (þessum frægu þáttum færðu að sjá allt það helt- asta og nýjasta 1 tfskuheiminum fdag. 23.45 David Letterman 00.30 Friends 3 (20:25) 00.55 Kvöldþátturinn
21:05 Concept to Reality (Heimsbikarinn í kappakstri) 22:00 Olíssport 22:30 A1 Grand Prix ítarleg umfjöllun um heimsbikarinn í kappakstri. Þetta er ný keppni en öll kappakstursmótin eru í beinni á Sýn. Hér mætast á þriðja tug ökuþóra víðsvegar að úr heiminum þar sem þjóðir keppa um heimsbikarinn í kappakstri. Liðin aka öll á sambærilegum bílum og því er það hæfni öku- mannanna sem ræður úrslitum. 00:00 Ensku mörkin Mörkin og marktækifærin úr enska boltanum, næstefstu deild.
Leyfð öllum aldurshópum. 22:00 Life or Something Like It (Svona er lífið) Rómantlsk gamanmynd. Blaðakonan Lanie Kerrig- an sinnir hefðbundnu verkefni þegar veröld hennar tekur nýjan stefnu. Aðalhlutverk: Angelina Jolie, Edward Burns.Tony Shalhoub. Leikstjóri: Stephen Herek. 2002. 00:00 The Shrink Is In (Sáli er mættur) Rómantísk gamanmynd. Bönnuð börnum. 02:00 The Musketeer(Skyttan)Bönnuð börnum. 04:00 Life or Something Like It (Svona er lífið) Rómantísk gamanmynd. Aðalhlutverk: Angelina Jolie, Edward Burns.Tony Shalhoub. Leikstjóri: Stephen Herek. 2002.
Reyklaust á neöri hœðinni
á meöan eldhúsiö er opið.
Eldhúsíð er opið frá kl. 8:00 til kl. 22:00.
O L I V 0 R
www.cafeolivet.is
ars vegar, en meira frelsi er í vali á
fyrirsagnaletri. Öll íslensku blöðin
standa sig ágætlega að þessu leyti og
ná að koma mismunandi karakter
sínum vel á framfæri í leturvali.
Hvað útlitið á síðum áhrærir eru
blöðin hins vegar afar misjöfn.
Morgunblaðið er frekar staðlað blað,
en hönnunin er hreinleg, skýr og
góð. Það er farið afar sparlega með
litina, en myndir fá hins vegar að
njóta sín, sem er líka eins gott því
ljósmyndadeild Morgunblaðsins ber
af hér á landi og þó víðar væri leitað.
Morgunblaðið nýtur þess líka - þó
lesendur taki sjálfsagt ekkert eftir
því - að síðurnar eru hannaðar jafn-
óðum utan um efnið, en á hinum
blöðunum er meira gert af því að
hanna síðurnar og láta blaðamenn
skrifa í það pláss, sem tiltækt er.
Það finnst mörgum DV óttalegur
snepill, en það á ekki við um hönn-
unina á blaðinu, því hún er að flestu
leyti stórfín. Bæði hönnunin, sem
liggur að baki, og einnig eru flest-
ar síður vel teiknaðar dag frá degi
með hætti sem hæfir götublaði. Það
er helst að fremsta opnan sé á full-
miklu iði.
Fréttablaðið er hins vegar á meiri
villigötum í hönnun. Hún er grautar-
leg og þó að blaðið sé í einstaklega
föstum skorðum er hönnunin ekki
til þess fallin að hjálpa lesendum.
Það er einnig með þeim hætti að
ljósmyndir geta sjaldnast notið sín í
blaðinu. Sem er synd, því þar starfa
margir snjallir ljósmyndarar.
Og hvað má þá segja um Blaðið? Um
það ætla ég ekkert að segja að sinni,
en get hins vegar upplýst að það eru
ýmsar breytingar væntanlegar og
þá geta lesendur ráðið í hvar okkur
finnst skórinn kreppa.
■ Hvaða fréttamaður/kona þykir þér trúverðugastur/trúverðugust?
Elsa Ósk Alfreðsdóttir
„Þórhallur Gunnarsson
Ársæll Páll Kjartansson
„Sigmundur Ernir“
Guðrún Einarsdóttir
„Bogi Ágústsson"
Marta Skúladóttir
„Fréttamenn
Ríkisútvarpsins"
Guðný Steina Guðjónsdóttir
„Elín Hirst“
Svava Árnadóttir
„Bogi Ágústsson"