blaðið - 12.10.2005, Blaðsíða 6
6 I INNLENDAR FRÉTTIR
MIÐVIKUDAGUR 12. OKTÓBER 2005 blaöiö
Slegistum Gettu betur
Stöð 2 reyndi að yfirbjóða Rúv til að fá framhaldsskólana til samstarfs við sig um gerð
nýrra spurningaþátta
Ríkissjónvarpið neyddist til að
greiða aðeins meira en það ætlaði
sér fyrir sjónvarpsréttinn á spurn-
ingakeppni framhaldsskólanna eftir
að Stöð 2 gerði tilraun til að ná þessu
sívinsæla efni yfir til sín. Að sögn
heimildarmanns Blaðsins þurfti
Ríkissjónvarpið að greiða margar
milljónir til viðbótar við fyrirhug-
aða upphæð og ljóst að nemendafé-
lög framhaldsskólanna hafi grætt
nokkuð á þessari tilraun Stöðvar i.
Hugmyndasnauðir menn
Bjarni Guðmundsson, framkvæmda-
stjóri sjónvarpsins, staðfesti í sam-
GÓD HEILSA
GULLl BETRI
www.nowfoods.com
tali við Blaðið að reynt hefði verið
að kaupa sýningarréttinn yfir á
aðra sjónvarpsstöð en Rúv hefði að
lokum náð samkomulagi við hags-
munastamtök framhaldsskólanna.
Sökum trúnaðar milli samningsað-
ila vildi hann ekki tjá sig nánar um
kaupverðið. „Við áttum fund með
þeim og það var gengið frá áfram-
haldandi samkomulagi að Gettu bet-
ur yrði áfram hjá okkur. Þetta er frá-
bært sjónvarpsefni og við höfum átt
frábært samstarf við framhaldsskól-
ana við að halda þessa keppni. Það
er mikill metnaður og þessi keppni
er mjög vinsæl. Það er því ekki að
ástæðulausu að aðrir reyna að sækj-
ast í hana,“ sagði Bjarni og bætti
við að hann gæfi lítið fyrir tilraun-
ir samkeppnisaðila til að reyna að
klófesta þetta vinsæla sjónvarpsefni.
,Mér finnst þetta fyrst og fremst til
marks um það hvað menn eru hug-
myndasnauðir að þurfa alltaf að líta
MIRALE
20% afsláttur
af öllum sérpöntuöu
húsgögnum
til 22. október.
I
Jm
í i
11
Cassina
Síðasti dagur á sérpöntuðum
húsgögnum til afgreiöslu
fyrir jól er 22. okt.
Grensásvegi 8
108 Reykjavík
sími: 51 7 1020
opið:
mán. - föstud. 11-18
laugard. 11-15
yfir til okkar í svona verkefnum í
stað þess að velta því fyrir sér sjálf-
ir hvað þeir geti gert. f stað þess að
búa til, þróa og þroska, þurfa þeir að
taka við tilbúnu verkefni."
Peningar ekki aðalatriðið
Gunnar H. Guðmundsson, Inspect-
or Scholae hjá Menntaskólanum í
Reykavík, segir að fulltrúar Stöðvar
2 hafi komið að máli við hagsmuna-
samtök framhaldsskólanna með til-
boð sem þeir voru fljótir að hafna.
Hann vill þó ekki frekar en Bjarni
tjá sig um þær upphæðir sem í boði
voru. „Peningarnir voru alls ekki að-
alatriðið i þessu. Við treystum Rúv
til að gera þetta mjög vel. Við höfum
verið í samstarfi við þá mjög lengi
og erum ánægðir með hvað þeir eru
búnir að gera fyrir okkur.“ Að sögn
Gunnars hafa peningarnir fyrir sýn-
ingarréttinn hingað til skipst jafnt
milli þeirra nemendafélaga sem
taka þátt í keppninni en ekki sé búið
að taka endanlega ákvörðun um það
hvort að þessu formi verður viðhald-
ið. Hann segir að hagsmunasamtök-
in hafi gert samning að þessu sinni
við Rúv til nokkurra ára og einnig
gefið út viljayfirlýsingu um nánara
samstarf.
Hefðum gert betur
Að sögn Heimis Jónassonar, dag-
skrárstjóra Stöðvar 2, var það aldrei
ætlunin að stela Gettu betur hug-
myndinni eins og hún leggur sig.
Stöðin vildi hefja nánara samstarf
við framhaldsskólana og búa til nýja
spurningakeppni frá grunni. „Við
höfðum áhuga á því að fara í svona
verkefni með skólunum og þetta er
náttúrulega bara samkeppnisum-
hverfi og þeir þurfa bara að velja um
það hvað þeir vilja gera,“ segir Heim-
ir. Hann segist bera fulla virðingu
fyrir ákvörðun skólanna og óskar
þeim alls hins besta með áframhald-
andi samstarf við Rúv. „Það er erfitt
að taka skref og gera breytingar á
einhverju sem hefur gengið vel. Það
er alltaf smá áhætta. Ég vona bara
að skólunum gangi frábærlega með
Gettu betur á Rúv. Við hefðum að
sjálfsögðu gert miklu skemmtilegri
og flottari hluti en við dveljum ekki
lengi við þetta. Rúv verður bara að
biðja fyrir sér þegar þeir fá öll frum-
legheitin frá okkur yfir sig í vetur.“«
Höft a einka-
rekna háskóla
Samkvæmt frumvarpi til laga sem
Steingrímur J. Sigfússon og Kolbrún
Halldórsdóttir leggja fram á núver-
andi þingi er m.a. gert ráð fyrir því
að einkareknum háskólum verði
óheimilt að innheimta skólagjöld af
nemendum sem stunda nám í grein-
um sem ekki er unnt að leggja stund
á í ríkisháskólum. Þetta gæti þýtt
að einkareknir háskólar yrðu settir
í hálfgerða glslingu þar sem náms-
framboð þeirra gæti ráðist af náms-
framboði ríkisháskólanna.
Jafnrétti til náms
Að sögn Steingrím J. Sigfússonar,
alþingismanns, snýst þetta frum-
varp fyrst og fremst um að gæta að
jafnrétti almennings til náms óháð
efnhag hvers og eins. Hann segir
að eftir að Tækniháskóli Islands
var lagður niður hefði stærsti hluti
þessa grunnnáms sem þar var boð-
ið uppá færst inn í einkarekna skóla.
Þeir hefðu síðan lagt á skólagjöld
sem gæti hindrað það að efnaminna
fólk gæti hreinlega stundað það nám
sem það kýs. „Staðreyndin er sú að
þetta er grunnnám sem hér um ræð-
ir og einkaskólarnir hafa í langflest-
um tilvikum verið með almennt við-
skiptatengt nám eða nám á ýmsum
almennum sviðum sem hafa verið 1
boði annarsstaðar. Ég held að þetta
sé fyrsta dæmið sem upp hafi kom-
ið af þessu tagi. Okkar grundvallar-
skoðun er sú að það skuli vera hægt
að komast í allt grunnnám sem er
í boði hér á háskólastigi án skóla-
gjalda,“ segir Steingrímur. Hann seg-
ir að hugsunin sé að ríkið muni síð-
an styðja þá einkareknu skóla sem
bjóða upp á slík grunnnám.
Grundvallar sjónarmið
Steingrímur gerir ekki ráð fyrir því
að einkaskólarnir verði sérstaklega
hrifnir af þessu lagafrumvarpi en
telur að ástandið í menntamálum
sé orðið slíkt að fáar aðrar leiðir séu
færar í stöðunni. „Þarna rekast á
ákveðin grundvallar sjónarmið. Við
ætlum ekki að fara að segja t.d. Há-
skólanum í Reykjavík fyrir verkum
í þessum efnum. Hann yrði þó að
aðlaga sig að þessum leikreglum ef
þessi lög yrðu samþykkt. Hann ætti
að sjálfsögðu þann mótleik að þetta
kæmi inn í samningaviðræður hans
við stjórnvöld um hans fjárveiting-
ar.“ Hvorki Guðfinna Bjarnadóttir,
rektor Háskólans í Reykjavík, né
Runólfur Ágústsson, rektor Við-
skiptaháskólans á Bifröst, treystu
sér til að leggja mat sitt á þetta laga-
frumvarp að svo stöddu. ■
Dómsmálaráð-
herra ásakaður
um pólitísk
afskipti
Umræður
spunnust
um það á
Alþingi í gær
hvort Björn
Bjarnason
hafi. með
ummælum
á heimasíðu
sinni reynt að hafa áhrif á störf
ákæruvaldsins í Baugsmálinu.
Þar sagði Björn meðal annars
að réttarkerfið hafi ekki sagt sitt
síðasta orð í málinu. Þingmenn-
irnir Össur Skarphéðinsson og
Kristinn H. Gunnarsson hentu
orðum Björns á loft og kröfðust
skýringa. Kristinn sagði á
heimasíðu sinni að Framsókn-
arflokkurinn gæti ekki tekið
ábyrgð á vinnubrögðum dóms-
málaráðherra. Össur tók í sama
streng og sagði ummælin óvið-
feldin og óviðeigandi. Stjórnar-
andstaðan tók svo málið upp í
umræðum um störf þingsins.
Fullnægjandi skýringar
Kristinn H. sagði i samtali við
Blaðið að málinu væri lokið af
sinni hálfu.„Það var umræða
um störf þingsins þar sem
menn ræddu þessi mál. Nið-
urstaða þeirra umræðna var
að mínu mati sú að allir voru
sammála um það að ótækt
væri að ráðherra hefði afskipti
af störfum ákæruvaldsins.
Menn deildu frekar um hvort
Björn hefði gert það með
þessum skrifum sínum eða
ekki. Björn hefúr sjálfúr skýrt
sín ummæli á þann veg að þau
lúti ekki að því að hafa áhrif á
störf ákæruvaldsins og það er
sjálfsagt að taka mið af hans
skilningi á eigin ummælum."
Björn sagði í fréttum ROV
að skrif sín á heimasíðunni
væru almælt tíðindi sem ættu
ekkert skylt við stjórnmál.
Kristinn sagði að málinu
væri lokið af sinni hálfu enda
hefði aðalatriðið komið fram,
að þingmenn standi vörð um
sjálfstæði ákæruvaldsins í
störfum sínum. Björn var ekki
viðstaddur umræðurnar en
hann er í útlöndum í opinber-
um erindagjörðum. Halldór Ás-
grímsson sagði á blaðamanna-
fundi í gær að þeir Björn hefðu
rætt málið í gærmorgun og þar
hefði Björn veitt fullnægjandi
skýringar á skrifúm sínum. ■
Svafa ráðin
aðstoðarfor-
stjóri Actavis
Svafa Grönfeldt hefúr verið
ráðrn aðstoðarforstjóri Actavis
Group og hefúr þegar hafið
störf. Hún hefur starfað hjá
fýrirtækinu síðan 2004.1
tilkynningu frá Actavis segir
að hlutverk Svöfu verði að sam-
tvinna stefnu og innra skipulag
samstæðunnar ásamt því að
stýra verkefnum sem lúta að
aukinni skilvirkni. Hún mun
einnig verða staðgengill for-
stjóra og talsmaður hans. Svafa
er doktor í vinnumarkaðsfræði,
með gráðu í starfsmanna- og
boðskiptafræði og með BA
gráðu í stjórnmálafræðum og
fjölmiðlun frá HÍ. Svafa er enn-
fremur lektor við Viðskipta- og
hagfræðideild Háskóla íslands.B