blaðið - 12.10.2005, Blaðsíða 8

blaðið - 12.10.2005, Blaðsíða 8
8 I ERLENDAR FRÉTTIR MIÐVIKUDAGUR 12. OKTÓBER 2005 Ma6Í6 Maður handtek- inn vegna árás- anna á Balí Lögregla á Indónesíu hefur handtekið mann sem leigði hús ásamt mönnunum sem gerðu sjálfsmorðssprengju- árásirnar á Balí fyrr í mánuð- inum. Handtakan kann að marka tímamót í rannsókn á hryðjuverkunum sem urðu 23 að bana, þar á meðal sprengju- mönnunum. Maðurinn sem aðeins er nefndur Hasan er 45 ára byggingaverkamaður. Grunaður um aðild að ódæðisverkunum Maðurinn hafði búið í um mánuð með sprengjumönnun- um þremur í útjaðri Denpasar, höfuðborgar Balí. Hann hvarf fáeinum dögum fyrir spreng- ingarnar og hefur lögregla hann sterklega grunaðan um að hafa átt aðild að þeim.Yfir- völd höfðu uppi á manninum í bænum Jember á Austur-Jövu, um 200 kílómetra austur af Denpasar á sunnudag. Hann var sendur aftur til Balí til yfirheyrslna á mánudag. Rannsóknarmenn fundu illa leikin höfúð sprengjumann- anna þriggja á vettvangi hryðju- verkanna. Myndir af höfðunum voru í kjölfarið birtar í von um að bera mætti kennsl á mennina og benda á hugs- anlega aðstoðarmenn þeirra. Lögregla fékk ábendingu um að mennirnir fjórir hefðu leigt hús fáeinum kílómetrum frá væntanlegum skotmörkum. Líberíumenn ganga að kjörborðinu George Weah frambjóðandi í forsetakosningunum í Líberíu greiðir atkvæði í Monrovíu í gær en hann er talinn einna sigurstranglegastur af þeim 22 sem eru í framboði. Líberfumenn gengu að kjörborðinu í gær í fyrstu þing- og forsetakosn- ingum í landinu síðan borgarastríð- inu lauk árið 2003. Langar biðraðir mynduðust við kjörstaði og á einum þeirra voru fyrstu kjósendur mættir sex tímum áður en hann var opnað- ur. „Við þurfum að fá forseta sem getur séð okkur fyrir því sem okkur vanhagar um. Við höfum ekkert raf- magn, ekki hreint neysluvatn, enga heilsugæslu,“ sagði Joseph Parm- ilnee, rúmlega fertugur rfkisstarfs- maður. Alls 22 frambjóðendur eru til emb- ættisins sem er það valdamesta í landinu. Líbería er enn í sárum eftir að borgarastríði sem stóð nær sleitu- laust í 14 ár lauk með friðarsamning- um í ágúst árið 2003. Bráðabirgða- ríkisstjórn skipulagði kosningarnar og 15.000 friðargæsluliðar á vegum Sameinuðu þjóðanna sjá um að allt fari fram í friði og spekt. Mikið starf framundan Frambjóðendur lofa því að tryggja frið í landinu, endurbyggja vatnsveitu ríkisins og raforkuver jafnframt því að skapa ný störf en minna en fjórðungur þjóðarinnar hefur atvinnu. Engar skoðanakannanir hafa ver- ið gerðar en margir trúa því að hinn fertugi George Weah beri sigur úr býtum í kosningunum. Weah ólst upp í fátækrahverfi í Monroviuborg en varð síðar heimsfrægur knatt- spyrnumaður og fyrirmynd margra líberískra ungmenna. Gagnrýnend- ur Weahs telja hann skorta þá mennt- un og stjórnunarreynslu sem þarf til að hafa stjórn á þriggja milljóna þjóð Líberíu. Ellen Johnson-Sirleaf sem er 66 ára og fyrrverandi stjórn- málamaður hefur einnig notið mik- illa vinsælda og eru kosningafundir hennar oftar en ekki fjölmennir. Um leið og Líberíumenn kjósa sér forseta kjósa þeir 30 fulltrúa í öld- ungadeild þingsins og 64 þingmenn. Um 400 erlendir eftirlitsmenn og 900 innlendir starfsmenn fylgdust með framkvæmd kosninganna í gær. Landamæri opnuð fyrir Pílagríma Palestínskur lögregluþjónn athugar vegabréf fólks á landamærastöð á Gasasvæðinu. Egyptar og Palestínumenn opn- uðu landamæri sín í sólarhring í gær til að gera hundruðum pílagríma kleift að ferðast frá Gasaströnd til hinnar helgu borgar Mekka í Sádí-Arabíu. Landamærin eru opnuð í tilefni af Ramadan, föstumán- uði múslima. tsraelsmenn lokuðu landamærunum áður en þeir yfirgáfu Gasasvæðið í síðasta mánuði og þjóðirnar eiga enn eftir að komast að samkomulagi um hvernig haga skuli málum á landamærunum. Israelar vilja hafa umsjón með öryggismálum við landamæra- stöðvar en Palestínumenn vilja full yfirráð yfir landamærun- um. Árla morguns í gær höfðu að minnsta kosti 400 Palestínu- menn þegar nýtt sér tækifærið og farið yfir til Egyptalands og fleiri biðu vegabréfsskoð- unar við landamærastöðvar. PRJÓNANÁMSKEIÐ (Diza edf Ingólfsstræti 6 sími 561-4000 Prjónanámskeið fyrir unglinga Kennari Ásdís Loftsdóttir fatahönnuður Kennt veröur á miðvikudögum og laugardögum Upplýsingar í síma 561-4000 á opnunartíma verslunarinnar Jarðskjálftinn í Suður-Asíu: Fólk er enn að finnast á lífi Fólk er enn að finnast á lífi eftir jarð- skjálftann í Suður-Asíu á laugardag. Drengur á unglingsaldri fannst á lífi í húsarústum í borginni Balakot í Pakistan í gær, 78 tímum eftir að jarðkjálftinn jafnaði nánast borgina við jörðu. Þá fundu björgunarsveit- ir í Islamabad 75 ára konu og 55 ára dóttur hennar á lffi um 80 tímum eftir að þær grófust í rústum fjöl- býlishúss í borginni. Mæðgurnar virtust hafa sloppið án alvarlegra meiðsla. Úrkoma tefur neyðarflug Miklar rigningar og haglél töfðu neyðarflug á hamfarasvæðunum í gær og sums staðar kom til ryskinga vegna matarúthlutunar. Tugir þyrla voru reiðubúnar til að flytja hjálp- argögn á flugvelli nálægt Islambad, Ibúar I borginni Muzaffarabad I pakistanska hluta Kasmír bíöa eftir matvælaaðstoð yfirvalda. höfuðborg landsins, í gær en kom- ust ekki á loft. Veðurhamurinn kom einnig f veg fyrir að björgunarsveit- ir á jörðu niðri gætu sinnt starfi sínu sem skyldi. Enn hefur ekki verið unnt að koma neyðaraðstoð til afskekktra þorpa. Að minnsta kosti 42.000 hafa fundist látnir eftir hamfarirnar í Pakistan, Afganistan og á Indlandi. Mustek DVD PL408H 8" TFT skjár, breiðtjalds (16:9) Tengist sjónvarpi með AV tengingu Stereo hátalarar Tvö stereo tengi fyrir heyrnatól Lítll og handhæg fjarstýring S' Rafhlöðuending 2.7klst S-Video, AV inn/út Þyngd: 950gr. Mustek DVD PL407H 7" TFT skjár, breiðtjalds (16:9) Tengist sjónvarpi með AV tengingu Stereo hátalarar Tvö stereo tengi fyrir heyrnatól Lftil og handhæg fjarstýring Rafhlöðuending 2.7klst S-Video, AV bm/út Þyngd: 950gr. DVD, DVD+/- R/RW, CD, CD-R/RW, (SJVCD, MP3, | Kodak Picture CD & JPEG f l I I I DVD, DVD+/- R/RW, CD, CD-R/RW, (S)VCD, MP3, Kodak Picture CD & JPEG I I tækni SÍÐUMÚLA 37 - SÍMI 510 6000 - WWW.SVAR.IS

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.