blaðið - 12.10.2005, Page 22
22 I HEIMILI
MIÐVIKUDAGUR 12. OKTÓBER 2005 bla6Í6
Berðu dúk á borðið þitt
Dúkar eru hið mestaprýði og úrvalið affallegum dúkum er mikið
Kynslóðaskipting hefur orðið í notkun borðdúka síðustu ár. Á árum áður var mikill metnaður lagður í dúka og þá eyddu húsmæður gjarnan löngum stundum í að hekla, sauma og
bródera sem fallegustu dúkana sem voru síðan hin mesta húsprýði. Það er tvennt sem gæti spilað inn í þessa þróun. Annars vegar aukin þátttaka kvenna á vinnumarkaði - þær hafa
engan tíma til að bródera dúka þegar allur tíminn fer í framann og barnauppeldið. Hins vegar vegna þess að borð eru mörg hver þannig í dag að þau njóta sín best án dúks. Falleg út-
skorin viðarborð eins og finnast á nánast öðru hverju heimili í dag kalla á það að vera nakin - til sýnis fyrir gesti og heimilisfólk. Enn eru þó margir sem vilja dúk á sitt borð. Þá er það
sérstaklega fyrir jólin og önnur hátíðleg tækifæri sem borðið fær að skarta dúkum enda gefa dúkar oft á tíðum fallegan hátíðarbrag. Þá hefur það færst í vöxt að fólk kaupi dúka í stað
þess að sitja heima og sauma - þó að auðvitað sé til einstaka húsmóðir, nú eða húsfaðir, sem ennþá dundar sér við að búa til dýrindis borðdúka með hinum ýmsu aðferðum.
Klassiskir dúkar úr versluninni Borð fyrir tvo sem sóma sér vel á hvaða
heimili sem er. Kremaður og hvltur litur á alls staðar við.
Renningarnir vinœlastir
,Það sem aðallega fer núna eru renn-
ingarnir. Þeir fara í raun meira en
dúkarnir,“ segir Laila Björnsdótt-
ir, verslunarstjóri í Borð fyrir tvo í
Kringlunni. Laila segist sjá meira af
dúkum fyrir hátíðarnar og þá fara
stórir dúkar, allt að fjögurra metra
langir, því oft er mikið um veislu-
höld yfir hátíðir. Laila merkir til
dæmis mikla aukningu á dúkasölu
fyrir fermingarnar. „Tíðarandinn er
nú þannig að fólk leyfir borðunum
að njóta sín. Renningarnir eru til í
öllum litum og eru reyndar mikið í
tísku. Yfir hátíðir er fólk kannski að
kaupa dúka sem við erum með yfir-
leitt í hvítum lit sem alltaf er klass-
ískt eða í svona hörlit. Svo eru þessir
renningar keyptir til að leggja yfir,“
segir Laila. Eins og áður sagði eru
renningarnir til í öllum litum og
jafnvel útsaumaðir og mynstraðir.
Allt til innpökkunar!
GRÆNN
MARKAÐUR
Eingöngu sala til fyrirtækja.
Opiðfrá kl. 08.00-16.00.
Róttarhálsi 2-110 Rvk - Slmi: 535-8500 - Netfang. info@flora.is
Dúkar með sál
I versluninni Fríðu frænku við Vest-
urgötu svífa gamlir andar yfir vötn-
um. Þar er hægt að fá alls kyns fal-
lega antíkhluti sem jafnvel hafa átt
marga eigendur og hefðu fróðlega
sögu að segja gætu þeir sagt frá.
Arna í Fríðu frænku segir að alltaf
sé góð sala í dúkunum. „Ég tek eftir
því að margir kaupa dúka til að hafa
í sumarbústöðum, það vill hafa fal-
lega útsaumaða dúka sem passa við
stemmninguna í bústöðunum,“ seg-
ir Arna. Hún segir aðallega konur
á miðjum aldri koma við og kaupa
sér dúk og að hún merki ekki sér-
staklega mun á eftirspurn í Fríðu
frænku milli árstíða, dúkar séu vara
I Fríöu frænku eru glæsilegir dúkar sem eiga þaö sameiginlegt aö eiga sér langa sögu að
baki. Vandaður útsaumur og fallegir, hlýir litir.
sem alltaf gangi. Það er ekki seinna eldhús- eða borðstofuborðið. Svo
vænna en að kíkja í aðra hvora þess- má alltaf fara í vefnaðarvörubúð
ara búða eða aðrar sem selja dúka og spreyta sig á handavinnunni,
og skoða úrvalið sem er í boði núna bródera eða hekla dúk fyrir jólin.
og finna fallega dúka fyrir stofu-,
Kertaljós lýsir upp dimm vetrarkvöld
Rómantískir og fág-
aðir kertastjakar
Það er fátt rómantískara en kertaljós á dimmu vetrarkvöldi. Ljúfur og fallegur loginn glæðir heimilið
hlýleika auk þess sem kertaljósið fyllir hjartað af von og trú í vondum heimi. Ef eitthvað eins fallegt og
kertalogi er til þá hlýtur heimurinn að vera fullur óvæntra uppákoma. Ekki er það verra ef ylmjúku logarnir
sitja á fallegum kertastjaka. Það gerir vonarglætuna bara betri. Blaðið fann nokkra flotta kertastjaka sem
myndu prýða hvert heimili.
Sérstaklega flott og skemmtileg Rosent-
hal kerti. Reyndar eru þau þaö flott að
það er vart hægt að kveikja á þeim en
sem beturfer brenna þau hægt. Stærra
kertið er 37 cm og kostar 3970 krónur en
það minna er 28 cm og kostar 1890 krón-
ur. Bæði kertin fást i Lif og list I Smáralind.
Töff glerkertastjaki sem er bæði vetrar-
legur og heillandi. Coach House stjakinn
er virðulegur og hentar þvl velflestum
heimilum. Stjakinn kostar 6900 krónur
og fæst I Debenhams.
i
Tignarlegur og fallegur kertastjaki sem
prýðir hvort sem er á gólfi eða borði.
Stjakinn er silfurlitaður og 73 cm á hæð
en hægt er að fá fleiri stærðir. Stjakinn
fæst I Blómahönnun I Listhúsinu, Laugar-
dal og kostar 12500 krónur.
Gamaldags og heillandi Coach house
kertastjaki sem fyllir hugann af róman-
tískum hugleiðingum og ætlunum. Stjak-
inn getur ekki annað en fyllt hvert hjarta
gleði og fortíðarþrá. Þessi fallegi stjaki
fæst i Debenhams og kostar 5900 krónur
Fágaður kertastjaki sem er einkar smekk-
legur. Stjakinn er úr sandblásnu stáli og
gleri sem passar vel saman. Svona vel
útlítandi stjaki passar allsstaðar og við
allt. Hann fæst í Lif og list i Smáralind og
kostar4190krónur.