blaðið


blaðið - 31.10.2005, Qupperneq 3

blaðið - 31.10.2005, Qupperneq 3
blaðið MÁNUDAGUR 31. OKTÓBER 2005 INNLENDAR FRÉTTIR I 3 Ólafur F. vill skilyrða sölu á hlut Reykjavíkur í Landsvirkjun Vill að ábyrgöum Reykvíkinga verði aflétt „Ég vil að að borgarstjórn Reykja- víkur geri það að skilyrði fyrir sölu á 44,5% hlut Reykjavikur í Landsvirkj- un að ábyrgðum Reykvikinga vegna lántaka Landsvirkjunar verði aflétt segir Ólafur F. Magnússon, borgar- fulltrúi Frjálslynda flokksins, en hann mun flytja tillögu þessa efnis á næsta borgarstjórnarfundi. I grein- argerð með tillögunni segist Ólafur hvað eftir annað hafa varað við því að Reykvíkingar tækju á sig um 65% ábyrgð vegna Kárahnjúkavirkjunar og að ábyrgðirnar gætu hvílt á borg- arbúum til frambúðar jafnvel þótt borgin seldi hlut sinn í Landsvirkj- un eða að fyrirtækið yrði einkavætt. „Það má alls ekki gerast að borgar- búar selji hlut sinn í Landsvirkjun en haldi síðan áfram að bera ábyrgð á lántöku fyrirtækisins vegna fram- kvæmdar sem var pólitísk í eðli sínu en ekki fjárhagslega hagkvæm. Þeir sem kaupa Landsvirkjun verða að yf- irtaka ábyrgð lánanna líka,“ segir Ól- afur sem segist auk þess vera á móti einkavæðingu raforkufyrirtækja. „Ég er ekki mótfallinn því að borgin selji hlut sinn til ríkisins en ég mun verða á móti því ef ríkið ákveður siðan að einkavæða fyrirtækið því þá munu borgarbúar fá að kynnast mun hærra orkuverði en þeir eru vanir.“ Næsti borgarstjórnarfundur er á morgun. — Verð frá 2.270.000 kr. Við óskum Passat-eigendum til hamingju. Ykkur hinum bjóðum við að koma og kynnast kostum hans af eigin raun. Aus Liebe zum Automobil Umboðsmenn um land allt: Höldur hf., Akureyri, sími 461 6020 • HEKLA, Borgamesi, simi 437 2100 • HEKLA, ísafiröi, sími 456 4666 I HEKLA, Laugavegi 174, slmi 590 5000 HEKLA, Reyðarfiröi, sími 470 5100 • HEKLA, Reykjanesbæ, slmi 420 5000 • HEKLA, Selfossi, slmi 482 1416 | www.hekla.is, hekla@hekla.is Laugar 80 ára afmæli skólahalds 1 gær var haldin afmælishátíð á Laugum í tilefni þess að 80 ár eru liðin frá því að skólahald hófst á staðnum. Formleg dagskrá var í til- efni dagsins þar sem Ölafur Ragnar Grímsson, forseti Islands, Valgerður Sverrisdóttir, viðskipta- og iðnaðar- ráðherra, og Jón Kristjánsson, heil- brigðisráðherra, fluttu ávörp ásamt fleirum en dagskráin var þéttskipuð glæsilegum atriðum. Sýningar hafa verið settar upp um sögu skólans og voru veitingar i boði. Um kvöld- ið hélt svo hljómsveitin Mannakorn tónleika.

x

blaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.