blaðið - 02.11.2005, Blaðsíða 38
38IFÓLK
MIÐVIKUDAGUR 2. NÓVEMBER 2005 blaðið
TALAÐ UM
VEÐRIÐ
Smáborgarinn er ansi klofinn persónu- 1
leiki þegar kemur að veðrinu hér á Is- :
landi. Að þessu leyti er hann alveg eins
og íslenskt veður: Óútreiknanlegur og
fullurafmótsögnum.Hannhefurlöng- i
um haldið því fram að hann þrffist illa
í kulda og trekki, en samt er hann heill-
aður af óveðri. Smáborgarinn er því
eins konar öfgamaður í veðri. Hann
vill annað hvort brakandi sól, hita og
logn, eða storm, hríðarbyl og kulda.
Þegar hann er staddur í einhverju
útlandinu þar sem 35 stiga hiti lam-
ar alla er hann sprækur og neitar að
kveikja á loftræstingunni til að finna
almennilega fyrir hitanum. Það sama
er uppi á teningnum þegar hann er
svo heppinn að lenda í alvöru óveðri,
en þá vill Smáborgarinn helst fara út í
labbitúrtil að upplifa veðrið betur. Það
er eitthvað svo notaleg tilhugsun að
við mannkynið séum enn ekki búin að
finna út hvernig við getum haft áhrif
á veður. Veður er alltaf á sínum eigin
forsendum, það verður ekki keypt og
því ekki mútað. Það er ekki með kost- I
unaraðila, það er ekki útreiknanlegt :
nema að litlum hluta og því er með
engu móti hægt að breyta. Veðrið er
alls ekki á valdi mannsins og það er ekk-
ert nema gott um það að segja. Þess
vegna er það ef til vill svona heillandi.
Það besta sem Smáborgarinn veit er j
að vera veðurtepptur einhvers staðar.
Þá skapast óskipulagt og óundirbúið
millibilsástand sem ekki er hægt að
nýta í neitt gáfulegt. Fundir frestast,
verkefni eru sett í frost og fólk verður :
að sitja, bíða, drekka mikið kaffi og
passa sig á að hlusta á veðurfréttir sem
breytast svo eins og vindáttin.
Það er bara eitt sem er skemmtilegra
en að vera veðurtepptur einhvers stað-
ar og það er að vera veðurtepptur ein-
hvers staðar og svo verður rafmagns-
laust. Þá fyrst skapast glundroði og
hamagangur, Fólk rýkur til og finnur
helling af kertum og myrkrið skapar
allt öðruvísi stemmningu milli manna.
Fólk fer að tala um persónulegri hluti
því það er jú að ganga í gegnum
erfiðar aðstæður og það þjappar
mannskapnum saman. Því miður er
rafmagnsleysi orðið allt of sjaldgæft
með tækniframförum og betri raforku-
verum um iand allt. Engum hefur þó
enn tekist að taka óveðrið af dagskrá
með tækniframförum og vonar Smá-
borgarinn innilega að slíkt muni aldr-
ei gerast. Hann bíður spenntur inni I
hlýju eldhúsi sínu eftir næsta óveðri
og er meira að segja með kerti og
eldfæri á vísum stað uppi í skáp ef ske
kynni að rafmagnið færi nú líka.
HVAÐ FINNST ÞÉR?
Örn Árnason, leikari og „fyrrverandi forscetisráðherra“
Hvað finnst þér um kaup-
réttarsamninga stjórn-
enda KB banka?
„Það er alvega borðleggjandi að ég er í vitlausum bransa. Ég hefði auðvitað
átt að fara í viðskiptafræðina og kaupa mér hlut í KB banka. Ég dauðsé
eftir því að hafa ekki gert það á sínum tíma. En verður maður ekki bara
hræddur þegar maður á svona mikinn pening? Ég held að ég myndi ekki
höndla ábyrgðina sem fylgir því. Allir alltaf að hringja í mann og biðja um
pening og svona. Ég er afskaplega sáttur með mitt.“ Örn segist ekki hafa
hugleitt að storma niður í banka og taka út inneign sína. „Þarf þá ekki að
vera eitthvað til? En annars er þetta allt svo svipað. Er þetta ekki bara sami
grautur í sömu skál? Það skiptir engu máli hvar þetta er geymt held ég.“
Madonna segir Gwen
Stefani hermikráku
Söngkonan Madonna segir Gwen Stefani vera hermikráku og að hún hafi hermt
eftir sér aftur og aftur. Hún segir að þær vinni mikið með sama fólkinu og
að hún steli hugmyndum frá sér. „Hún giftist Breta,
og hugsar mikið um tísku eins og ég en mér er nokk- _
Húnersætog hæfileikarík.“ . / *
er ljóshærð
uð sama.
Fröken brjósta-
skora Hollywood
Jessica Simpson hefur verið nefnd sú sem hefur bestu brjóstaskor-
una í Hollywood. Jessica var hæst í skoðanakönnun í Touch Weekly
Magazine. Fleiri sem voru á topp tíu listanum voru Carmen Electra,
Mariah Carey og Halle Berry. „Jessica er með fullkomið par og setur
mælikvarða fyrir glæsileg brjóstvar sagt í tímaritinu.
Bruce hrifinn af
Halle Berry
Bruce Willis hefur verið giftur Demi Moore og orðaður við nokkrar stjörnur í Tinseltown.
Nú hefur hann hins vegar viðurkennt að hann vilji hefja alvöru samband við Halle Berry og
breyta sambandinu úr vinskap í ástarsamband. Bruce og Halle voru nágrannar og munu
fljóttlega leika saman í mynd. Bruce var vanur að hlaupa í kringum Halle og reyna
við hana þegar þau bjuggu nálægt hvort öðru og var vonsvikinn þegar Halle
flutti í burtu. En Halle virðist líka ákaflega hrifin af Bruce þó ekki sé nema
vinnulega séð. Hún fór til Bruce og bað hann um að leika með sér i mynd-
inni Perfect Stranger og lét hann fá handritið. Bruce hefur viðurkennt að
hann sé hrifinn af Halle en hún sagði: „Maður skal aldrei segja aldrei en
að flytja í burtu hjálpaði ekki til við rómantíkina."
Björn Ingi Hrafnsson:
„Ég vakti athygli á stefnubreytingu
frambjóðenda Sjálfstæðisflokksins
að því er varðar hugmyndir um
eyjabyggð á Sundunum á dögunum
og í kjölfarið hefur nokkuð verið
fjallað um málið í fjölmiðlum.
Athygli vekur að nú virðast báð-
ir frambjóðendurnir sem keppast
um oddvitasætið á lista sjálfstæðis-
manna vera komnir á flótta undan
eigin hugmyndum. Þegar þær voru
kynntar í maí var því slegið fram
sem stórfrétt og fullyrt að Sjálfstæð-
isflokkurinn hefði tekið frumkvæði
í skipulagsumræðunni. Hvergi var
gefið þá í skyn að um væri að ræða
einhverja dýra framtíðarmúsík sem
ekki ætti að koma til sögunnar fyrr
en eftir áratugi."
http://www.bjorningi.is/
„Ég minnist þess að fyrir síðustu
alþingiskosningar gerðum við fram-
sóknarmenn könnun á auglýsinga-
verðum helstu fjölmiðla, enda
mikilvægt að nýta takmarkaða fjár-
muni sem best. Okkar niðurstaða
var sú að auglýsingar í sjónvarpi
og útvarpi væru alls ekki dýrari
en dagblaðaauglýsingar og í mörg-
um tilfellum hagstæðari miðað við
auglýsingagildið innan ákveðinna
aldurshópa.
Var þá eitthvað ólýðræðislegt að
auglýsa með sem hagkvæmustum
hætti? - Auðvitað ekki. Allir sjá að
eitthvað tal um að banna auglýsing-
ar í ljósvakamiðlum er marklaust
ef allt er vaðandi í auglýsingum
alls staðar annars staðar; í dagblöð-
um, á flettiskiltum og svo framveg-
is. Þetta er einfaldlega fylgifiskur
lýðræðisins og ef vilji er til þess að
halda prófkjör er ljóst að frambjóð-
endur verða með einhverjum hætti
að koma sjálfum sér á framfæri. Og
ein leið til þess eru auglýsingar. Og
eins og sést hefur hjá sjálfstæðis-
mönnum í borginni undanfarnar
vikur, getur slíkt greinilega verið
afar kostnaðarsamt og ekki fyrir
hvern sem er að fjármagna slíkt.“
http://www.bjorningi.is/
„Ég er búin að margsegja þér að okkur vantar nýja dýnu "
HEYRST HEFUR...
Lítið álit Halldórs Ásgríms-
sonar á
Pálma Gests-
syni leikara,
sem tilnefndur
hefur verið til
Eddu-verðlauna
fyrir túlkun á
forsætisráðherr-
anum, hefur vak-
ið mikla athygli. Halldór sagði
í laugardagsþætti á Talstöðinni
að Pálmi hefði aldrei haft fyr-
ir að heilsa honum eða kynna
sér karakterinn. Eitthvað virð-
ist ráðherranum hafa förlast
því til er mynd af þeim félög-
um kampakátum, honum og
Pálma í gervinu, sem tekin var
á tröppum Stjórnarráðsins...
09Mb Rðstoðar-
r ••maðurHall-
dórs, Björn Ingi
Hrafnsson, fer
mikinn þessa
daganaþóttlágt
fari. Björn Ingi
er talinn einn
mesti spunadoktor íslandssög-
unnar og hefur marga sigra
unnið í þágu annarra. Nú snýst
barátta hans um eigin frama og
hann er sagður hafa gert banda-
lag við Alfreð Þorsteinsson um
að standa næstur honum á lista
Framsóknar til borgarstjórnar.
Stjórnmálafræðingar, sérhæfð-
ir í spuna, telja sumir hverjir
augljóst að Björn Ingi ætli sér
efsta sætið og Alfreð út í ystu
myrkur...
BjörnBjarna-
son fagnar
nýrri skoðana-
könnun sem
bendir til þess
að Sjálfstæðis-
flokkurinn nái
hreinum meiri-
hluta í borginni. Jafnframt not-
ar hann tækifærið til að skjóta
föstum skotum að Ingibjörgu
Sólrúnu Gísladóttur. „Hvað
skyldi Ingibjörg Sólrún gera
næst til að auka fylgið? Hún hef-
ur spilað út nýrri skattastefnu
upp á sitt eindæmi, án þess að
stuðningurinn vaxi. Nú síðast
kynnti hún nýja sjávarútvegs-
stefnu upp á sitt eindæmi. Hvað
gerir hún næst? Leggur hún til
að össur verði formaður að
nýju?“ spyr Björn Bjarnason á
heimasíðu sinni.
Heimilda-
m e n n
Blaðsins inn-
an 365 segja
að það sé síður
en svo rétt að
samstarfið í
íslandi í dag
sé ekki eins og best verður á
kosið, eins og gefið var í skyn
í þessum dálki í gær. Þvert á
móti gangi það afar vel og að
mikill hugur sé í fólki í harðri
samkeppni. Bent er á að ísland
í dag þurfi að sætta sig við mun
minni mannskap en samkeppn-
isaðilinn Kastljósið, bæði hvað
varðar umsjónarmenn og tækni-
menn. Þrátt fyrir það hafi pró-
grammið styrkst til muna, sem
er svo sannarlega rétt.