blaðið - 14.11.2005, Side 22

blaðið - 14.11.2005, Side 22
30 I ÍPRÓTTIR MÁNUDAGUR 14. NÓVEMBER 2005 blaöÍA Valsmenn úrleik Valsmenn eru fallnir úr Evrópukeppni félagsliða í handbolta þrátt fyrir að hafa unnið sænska liðið Skövde með tveggja marka mun, 24:22, í Laugardalshöll. Sví- arnir unnu hins vegar fyrri leikinn með sjö marka mun, 35:28, þannig að samanlögð markatala þeirra er betri. Baldvin Þorsteinsson og Mo- hamed Loutufi voru marka- hæstir í liði Vals í gær með 5 mörk hvor. Pálmar Péturs- son stóð sig vel í markinu en hann varði 19 skot í leiknum. Evrópukeppnin: Haukartöp- uðuáítalíu Haukar eru úr leik í meistara- deild Evrópu í handbolta, en hðið tapaði í gær fyrir ítalska liðinu Merano 31:27. Staðan var 17:12 í hálfleik, ftalska liðinu í vil. Leikurinn var úrslitaleikur um þriðja sætið í riðlinum sem hefði veitt keppnisrétt í EHF keppninni. Haukarnir voru und- ir nær allan leikinn, en um miðj- an seinni hálfleik náðu þeir að jafna leikinn 23:23. Italarnir voru sterkari á lokasprettinum. Jón Karl Helgason skoraði fiest mörk Hauka í gær, eða 7 talsins. GLUCOSAMINE & CHONDROITIN EXTRA STERK LIÐAMÓT GÓÐ HEILSA-GULLI BETRI Englendingar ánægðir með sigurinn á Argentínu Sven Göran Eriksson, landsliðsþjálf- ari Englands í knattspyrnu, segir að frammistaða liðsins í landsleiknum gegn Argentínu á laugardag hafi verið frábær, ekki síst vegna þess að Argentínumenn hafi teflt fram öll- um sínum skærustu stjörnum. Það var Michael Owen sem stal senunni í leiknum en tvö mörk frá honum á sfðustu fjórum mínútum leiksins tryggðu Englendingum 3-2 sigur. Það var Hernan Crespo sem skoraði fyrsta mark leiksins á 34. mínútu eft- ir að fjölmörg marktækifæri höfðu farið í súginn og þar af hafði eitt mark verið dæmt af honum. Það tók Englendinga þó aðeins fimm mín- útur að jafna leikinn og það gerði Wayne Rooney eftir sendingu frá David Beckham. Staðan var því jöfn í hálfleik 1-1. Sama spenna var í síðari hálfleik og i þeim fyrri. Þannig átti Frank Lampard tvö skot rétt framhjá marki Argentínumanna áður en þeir síðarnefndu náðu aftur foryst- unni með skallamarki frá Walter Samuel sem Paul Robinson náði ekki að verja. Englendingar gáfust þó ekki upp og Beckham og Lamp- ard áttu skot rétt framhjá áður en Michael Owen greip til sinna ráða á lokamínútunum og tryggði Englend- ingum sigurinn eins og áður sagði. Frá leik Englands og Argentínu Cole til Real Madrid Ashley Cole, bakvörður Arsenal, er á leið til spænska stórliðsins Real Madrid í sumar fyrir um 8 milljónir punda, eða um 1 milljarð króna, að sögn breska blaðsins Sunday Mirr- or. Cole, sem jafnframt er vinstri bakvörður enska landsliðsins, hefur verið fjarri góðu gamni að undan- förnu vegna fótbrots, en hann mun vera með klásúlu í samningi sínum við Arsenal sem heimilar honum að skipta um félag. Cole, sem er 24 ára, framlengdi samning sinn við Arsenal í sumar um tvö ár en hann komst í fréttirnar fyrir nokkru þegar hann átti í leynilegum viðræð- um við Chelsea. Þegar þær viðræður komust upp var hann sektaður um 70 þúsund pund og samskipti Arsen- al og Chelsea hafa verið stirð allar götur siðan. Real Madrid mun líta á Ashley Cole sem arftaka brasilíska lands- Knattspyrnuúrslit Arnarog helgarinnar Ránarmeð Leikir um laus sæti á HM -fyrri leikur stórleik Noregur-Tékkland 0-1 Sviss-Tyrkland 2-0 Arnar Þór Viðarsson átti mjög Úrugvæ - Ástralía 1-0 góðan leik með Lokeren á Spánn - Slóvakía 5-1 móti Sprimont í belgísku bikarkeppninni á laugardags- kvöld. Hann skoraði sigurmark Vináttulandsleikir Lokeren sem sigraði 2-1 í leiknum. Sprimont komst yfir Portúgal - Króatía 2-0 í leiluium en náði ekki að Argentína - England 2-3 íylgja góðri byrjun eftir í síðari S. - Kórea - Svíþjóð 2-2 hálfleik. Þá kom Rúnar Krist- insson inn á og var allt í öllu Finnland - Eistland 2-2 í leik Lokeren. Goran Drulic Holland -Italía 1-3 jafnaði leikinn fyrir Lokeren Hv. Rússland - Lettland 3-1 á 57. mínútu og nokkrum mínútum síðar skoraði Arnar Frakkland - Þýskaland 0-0 sigurmarkið dýrmæta sem Búlgaría - Georgía 6-2 tryggði Lokeren sæti í 16 liða Lichtenstein - Makedónía 1-2 úrslitum bikarkeppninnar. Skotland - Bandaríkin 1-1 Ashley Cole liðsmannsins Roberto Carlos, sem hefur átt frábæran feril hjá Real Madrid. Fyrir hjá liðinu eru tveir Englendingar, David Beckham og Jonathan Woodgate, en Michael Own yfirgaf félagið í sumar og gekk til liðs við Newcastle. EÍISHI '| B O LT I N Splunkunýr spurningaþáttur um fótbolta, fótbolta og meiri fótbolta. SPARK er óhefðbundinn spurningaþáttur um fótbolta sem stjórnað er af Stefáni Pálssyni sem jafnframt er höfundur spurninga. Honum til aðstoðar er stuöboltinn Þórhallur Dan, knattspyrnukappi með meiru. Sýndur á SKIÁEINUM og Enska Boltanum á föstudögum, kl. 20.00. © SKJÁR EINN Laugardaga kl. 22.30 • Sunnudaga kl. 22.30 • Föstudaga kl. 19.30

x

blaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.