blaðið - 14.11.2005, Page 28
36 I DAGSKRÁ
MÁNUDAGUR 14. NÓVEMBER 2005 blaöiö
HVAÐSEGJA
STJÖRfJURNAR?
Steingeit
(22. desember-19. janúar)
fjölskyldumeðlimur sem þú hefur ekki séð eða
heyrt í mjög lengi mun hafa samband og samræð-
urnar sannfæra þig um að þið verðið að hittast.
Annað ykkar verður að leggja á sig ferðalag til aö
koma í heimsókn.
Vatnsberi
(20. janúar-18. febrúar)
Þaö er fundur á dagskrá hjá þér og skiptir engu
hvort hannervinnutengdureðaá persónulegu nót-
unum, hann mun ganga vel. Þú slærð f gegn.
w ‘d m f>7f
ÞAÐ ER ALLTAF EITT-
HVAÐ í FRÉTTUM
Andrés Magnússon
Næsta föstudag hefur Nýja fréttastöðin (NFS)
göngu sína, en hún verður allsherjarfréttaveita
frá morgni og langt fram á kvöld. Þar munu frétt-
irnar streyma út líkt og menn þekkja af stöðvum
á borð við CNN og SKY, nema hvað íslenskar frétt-
ir verða í fyrirrúmi (og það er alltaf eitthvað í frétt-
um, eins og Denni hafði að einkunnarorðum).
Hér er um feykilega metnaðarfullt verkefni að
ræða, sem getur hæglega breytt íslenskri blaða-
mennsku verulega. Við þekkjum hvernig það
umhverfi hefur tekið breytingum í stökkum og
yfirleitt gerist það með nýjum fjölmiðlum. DB
breytti þannig blaðamarkaðnum, svo þess sést
enn stað, Helgarpósturinn (fyrri) sömuleiðis og
varla þarf að fjölyrða um áhrif Fréttablaðsins.
Ein mesta breytingin var samt með þeim hætti
að fæstir muna eftir henni.
Það var þegar Bylgjan fór í loftið. Þar var
nefnilega ekki aðeins leikinn Elton John dag-
inn út og inn, heldur var talsverður metnaður í
dagskrárgerðinni. Aðalnýmælið var þó að flutt-
ar voru fréttir á klukkustundarfresti. Þær voru
ekki langar eða ítarlegar, en þær voru sagðar
tíðar en menn höfðu áður átt að venjast og fólk
fékk á tilfinninguna að þær bærust jafnóðar og
þær gerðust, en ekki í gær eins og verið hafði á
flestum miðlum fram að því. Þessi nálgun á frétt-
irnar var önnur, en um leið var nándin miklu
meiri, bæði í tíma og rúmi.
Núna þykir það sjálfsögð krafa að fá fréttirnar
ekki seinna en strax, en auk útvarpsstöðvanna
höfum við fréttavefi Morgunblaðsins, Vísis og
RÚV. Bráðum höfum við líka heila sjónvarpsstöð
í þessu.
Er nóg af fréttum til þess að mala um daginn
lon og daginn don? Það gæti meira en hugsast.
Verður nóg af áhorfendum? Ekki alveg jafnvíst.
Getur þetta staðið undir sér? Ég er efins, en
aðstandendurnir eru borubrattir og vasar Baugs
eru djúpir. Mun þetta breyta íslenskri fjölmiðlun
á einni nóttu? Sjáum til, en ég bíð a.m.k spenntur
við skjáinn, föstudaginn 18. nóvember.
Fiskar
(19.febrúar-2ð. mars)
Venjulega þarf ekkert að snúa upp á handlegginn
á þértil aðpína þig til aðfara aö versla, sérstaklega
þegar þú þarft að kaupa gjafir. Þetta á enn meira
við í dag. Vandaðu samt valið og passaðu að eyða
ekki um efni fram.
Hrútur
(21. mars-19. apríl)
Manstu þegar þú varst unglingur og tókst meö
þér heim einhvern úr skólanum gagngert til að
hneyksla foreldrana og láta þá vita að þú færir
ekki eftir neinum reglum? Þú ert byrjaður/byrjuð
á þessu hátterni aftur.
©Naut
(20. april-20. mai)
Ef hún/hann er óvenjuleg/ur ófyrirsjáanleg/ur og
örugglega siðasta manneskjan sem vinir og fjöld-
skylda geta séð þig fyrir sér með ert þú heilluð/heill-
aður og kynnir hana/hann fyrir öllum.
©Tvíburar
(21. maí-21. júni)
Ertu enn að reyna að giska á hvað aðrir gera svo
þú getir breytt samkvæmt því? Hættu þvi og gerðu
það sem þú vilt. Þú hefur smá tíma fyrir þig núna
og eyddu honum skynsamlega.
®Krabbi
(22. júni-22. júlí)
Gleymdu vinnu, skyldum, ábyrgð og öllu sem er
ekki gaman. Þú hefur verið mjög upptekin/nn og
stressu ö/stressaöu r upp á síðkastið og þú þarfnast
tíma til að leika þér. Ekki fá samviskubit yfir því.
®Ljón
(23. júlí- 22. ágúst)
Úvæntar tilkynningar, skyndilegar heimsóknir og
breytingar á síðustu mínútum, þetta er allt að ger-
ast Þú elskar líka svona lif og fjör en ekki ofkeyra
þér.
«\ Meyja
(23.ágúst-22. september)
Þú hefur verið dapur/döpur, með fortíðarþrá og
hreinlega þunglynd/ur upp á siðkastið. En nú taka
við betri tímar og þú verður uppteknari af ástrið-
um. Einbeittu þér að þeim og reyndu lika að koma
fjármálunum I lag.
®Vog
(23. september-23. október)
Þú ert full/ur af mótsögnum þegar kemur að til-
flnningum núna, alla vega á yfirborðinu. Það er
langbest að vera hreinskilin/n við sjálfan sig og
aðra núna og þá verður allt léttara.
Sporðdreki
(24. október-21. nóvember)
Guð hjálpi öllum sem reyna að stoppa þig i því sem
þú hefur ákveðið að gera núna. Þú ert samt full
skapstór þegar kemur að smávægilegum málum
og ættir að spara orkuna fyrir önnur stærri - eins
og til dæmís ástarmálin.
Bogmaður
(22. nóvember-21. desember)
Gamall vinur sem býr ekki í nánasta nágrenni hefur
ekki haft samband lengi. Gefðu honum tíma. Þeg-
ar þú ert úrkula vonar fínniði tíma til að hittast og
spjalla og endurnýja vinskapinn.
SJONVARPSDAGSKRA
SJÓNVARPIÐ
16.40 Helgarsportið
17.05 Leiðarljós
17.50 Táknmálsfréttir
18.00 Myndasafnið
18.01 Gurra grís (28:52)
18.06 Kóalabræður (41:52)
18.17 Pósturinn Páll (11:13)
18.30 Váboði (3:13)
19.00 Fréttir, íþróttir og veður
19.35 Kastljós
20.30 Átta einfaldar reglur (59:76)
20.55 Listin mótar heiminn (4:5) Bresk-
ur heimildamyndaflokkur. Á hverju
ári fara sjö milljarðar manna að sjá
nýjustu bíómyndirnar. ( þessum
þætti er sagt frá því hvernig öflug-
asti frásagnarmiðill sem menn hafa
komið sér upp, kvikmyndin, nýtir
sér tækni sem varð til meðal lista-
manna í fornöld.
22.00 Tíufréttir
22.25 Karníval (7:12)
23.20 Spaugstofan
23.45 Austfjarðatröllið Þáttur um rót-
gróna aflraunakeppni á Austfjörð-
um sem krafta- og galdramaðurinn
Njáll Torfason stendur fyrir árlega.
Keppt var í 10 greinum á 6 stöðum:
Egilsstöðum, Seyðisfirði, Vopna-
firði, Fáskrúðsfirði, Stöðvarfirði og
Breiðdalsvík. Meðal keppenda voru
nokkrir af sterkustu mönnum lands-
ins. Um dagskrárgerð sáu Ásgrímur
Ingi Arngrímsson og Hjalti Stefáns-
son.e.
00.30 Kastljós
20.20 Dagskrárlok
SIRKUS
18.30 FréttirStöðvar2
19.00 The Cut (11:13)
20.00 Friends4(i8:24)
20.30 Fashion Television (3:34)
21.00 Veggfóður
22.00 The Cut (12:13)
22.45 David Letterman
23.30 Weeds (6:10)
00.05 Friends4(i8:24)
STÖÐ2
06:58 fsland í bftið
09:00 BoldandtheBeautiful
09:20 (ffnuformÍ2005
09:35 Oprah Winfrey
10:20 ísland í bftið
12:20 Neighbours
12:45 (fínuformi2oo5
13:00 Fresh Prince of Bel Air (13:25).
13:25 Stealing Harvard Glæpsamleg
gamanmynd. Aðalhlutverk: Jason
Lee, Tom Green, Leslie Mann. Leik-
stjóri: Bruce McCulloch. 2002. Leyfð
öllum aldurshópum.
14:45 0sbournes3(i:io)
15:10 Derren Brown - Trick of the
Mind (e)
16:00 Barnatími Stöðvar 2
17:45 Bold and the Beautiful
18:05 Neighbours
19:00 ísland í dag
19:35 The Simpsons (9:23)
20:00 Strákarnir
20:30 Wife Swap (6:12)
21:15 YouAreWhatYouEat(s:i7)
21:40 SixFeetUnder(3:i2)
22:30 Most Haunted (10:20). Bönnuð
börnum.
23:15 Afterlife (1:6) Þú velur ekki að
sjá hina framliðnu, þeir velja þig.
Með aðalhlutverkin í þáttunum
fara tveir af vinsælustu leikurum
í bresku sjónvarpi nú um mundir;
Andrew Lincoln sem lék m.a. í This
Life-þáttunum vinsælu og kvik-
myndinni Love Actually og Alison
Mundy sem lék ÍThe Full Monty og
myndum Mike Leighs Veru Drake
og Naked. Bönnuð börnum.
00:05 Oyenstikker(Dragonflies) Norsk
verðlaunamynd. Aðalhlutverk:
Mikael Persbrandt, Maria Bonnevie,
Kim Bodnia. Leikstjóri: Marius Holst.
2001. Bönnuð börnum.
01:55 The Shrink Is In Rómantísk gaman-
mynd. Bönnuðbörnum.
03:20 Fréttir og fsland í dag
04:25 ísland í bítið
06:25 Tónlistarmyndbönd frá Popp
TíVf
SKJÁR 1
17:55 Cheers-8. þáttaröð
18:20 Popppunktur(e)
19:20 Þak yfir höfuðið (e)
19:30 Allt í drasli (e)
20:00 TheO.C.
21:00 Survivor Guatemala
22:00 C.S.I.
22:55 Sex and the City -1. þáttaröð
23:25 Jay Leno
00:10 Boston Legal (e)
01:00 Cheers-8. þáttaröð(e)
01:25 Þak yfir höfuðið (e)
01:35 Óstöðvandi tónlist
SÝN
17:50 Ameríski fótboltinn (Miami -New England)
20:00 UEFA Champions League
20:30 Strákarnir í Celtic
21:05 Maradona Hann er elskaður frá
Buenos Aires til Napóli'. Diego Armando Maradona var besti knatt- spyrnumaður heims. Hann leiddi Argentínumenn til sigurs á HM í Mexíkó 1986 en átta árum síðar var
hann rekinn frá HM í Bandaríkjun- um vegna ólöglegar lyfjanotkunar. Hér er fjallað um leið hans á topp- inn og líka hraða niðurleið hans á botninn. Maradona er enn (frétt-
unum en baráttu hans við eiturlyfja- fíkn ætlar aldrei að Ijúka.
22:00 Olíssport
22:30 Stumpthe Schwab
23:00 Noregur-Tékkland
ENSKIBOLTINN
18:00 Að leikslokum (e)
19:00 Man. City - Aston Villa frá 31.10
21:00 Að leikslokum (e) Snorri Már Skúlason fer með stækkunargler á leiki helgarinnar með sparkfræð- ingunum Willum Þór Þórssyni og GuðmundiTorfasyni.
22:00 Middlesbrough - Man. Utd frá 29.10
00:00 Dagskrárlok
STÖÐ2BÍÓ
06:00 FoylesWar2.
08:00 Get Over It
10:00 The Guru
12:00 Just Married Rómantísk gaman-
mynd. Aðalhlutverk: Ashton Kutc-
her, Brittany Murphy, Christian
Kane, David Moscow. Leikstjóri:
Shawn Levy. 2003. Leyfð öllum ald-
urshópum.
14:00 Get Over It Rómantísk gaman-
mynd. Aðalhlutverk: Kirsten Dunst,
Ben Foster, Mila Kunis, Martin
Short. Leikstjóri: Tommy O'Haver.
2001. Leyfð öllum aldurshópum.
16:00 The Guru Rómantísk gamanmynd.
Aðalhlutverk: Heather Graham, Ma-
risa Tomei, Jimi Mistry. Leikstjóri:
Daisy von Scherler Mayer. 2002.
Leyfð öllum aldurshópum.
18:00 JustMarried
20:00 Foyle's War 2 Bresk sakamála-
mynd. Aðalhlutverk: Michale Kitc-
hen, Anthony Howell, Honeysuckle
Weeks. Leikstjóri: Anthony Horo-
witz. 2002. Lítið hrædd.
22:00 Paycheck Hörkuspennandi framtíð-
armynd sem vakti verðskuldaða at-
hygli. Michael Jenningsertölvusnill-
ingur og mjög eftirsóttur á því sviði.
Hann tekur að sér umdeilt verkefni
gegn ráði samstarfsmanna og fær
það heldur betur i bakið. Allar upp-
lýsingar um verkið eru þurrkaðar úr
minni hans að því loknu en þar með
eraðeins hálfsagan sögð. Áðalhlut-
verk: Ben Affleck, Aaron Eckhart,
Uma Thurman. Leikstjóri: John
Woo. 2003. Bönnuð börnum.
00:00 American Outlaws Vestri á létt-
um nótum. Aðalhlutverk: Colin Farr-
ell, Scott Caan, Ali Larter. Leikstjóri:
Les Mayfield. 2001. Stranglega
bönnuð börnum.
02:00 Rush Hour 2 Hasargrínmynd af
bestu gerð. Aðalhlutverk: Jackie
Chan, Chris Tucker, John Lone, Ziyi
Zhang. Leikstjóri: Brett Ratner.
200i.Bönnuðbörnum.
04:00 Paycheck Hörkuspennandi fram-
tíðarmynd. Aðalhlutverk: Ben Af-
fleck, Aaron Eckhart, Uma Thurman.
Leikstjóri: John Woo. 2003. Bönnuð
börnum.
RÁS1 92,4 / 93,5 • RÁS 2 90,1 / 99,9 • Kiss FM 89,5 • XFM 91,9 • Bylgjan 98,9 • FM 95,7 • X-ið 97,7 • Útvarp saga 103,3 • Talstöðin 90,9
Johnny ver sína
fyrrverandi
Johnny Depp hefur varið fyrrver-
andi kærustu sína, Kate Moss, og
segir hana hafa verið ásakaða um
kókaínneyslu á ósanngjarnan hátt.
Að sögn Daily Mirror hefur hann
sakað fólk í tískugeiranum fyrir að
hafa makað á Kate drullu. „Kate
ætti að fá að lifa sínu lífi eins og hún
sjálf kýs og það hefur verið mjög
ósanngjarnt hvernig komið er fram
við hana. Hún er mjög gáfuð stúlka
og það er fáránlegt hvernig farið er
með hana. Eins og allir þá óska ég
henni og barninu hennar alls hins
besta og nú er kominn tími til að
hún sé látin í friði.“ Depp og Moss
voru í sambandi í fjögur ár, til árs-
ins 1998.