blaðið - 25.11.2005, Side 4
4 I INNLENDAR FRÉTTIR
FÖSTUDAGUR 25. NÓVEMBER 2005 bla6iö
mjöllfrigg
Dreifing:
BéBé Vöruhús ehf
Sími 512-3000
hreiníega sterkari
Lyfsalar
Upplýsa ekki um ódýrari lyf
ASÍ telur lyfsala ekki gœta hagsmunum neytenda. Lyfsalar vísa þessum ásökunum á bug.
AS( segir lyfsala ekki alltaf bjóða viðskiptavinum sínum upp á ódýrari samheitalyf.
íslandsbanki
Kaupir norskt
verðbréfa-
fyrirtæki
fslandsbanki hefur keypt
norska verðbréfaíyrirtaekið
Norse Securities ASA. Með því
opnast starfsemi bankans á
norska verðbréfamarkaðnum
sem hefur, að sögn Bjarna
Ármannssonar, forstjóra fs-
landsbanka, verið stefna hans í
nokkurn tima. í tilkynningu frá
bankanum í gær segir að Norse
búi yfir góðum viðskiptamanna-
grunni, öflugum stjórnendum
og hæfileikaríku starfsfólki.
Hjá Norse starfa tæplega
50 starfsmenn og er gert ráð
fyrir að tekjur fyrirtækisins
verði rúmlega 1,2 milij-
arður króna á þessu ári.
„Kaup íslandsbanka á Norse
skapar bankanum stöðu
á verðbréfamarkaðnum í
Noregi“ segir í tiikynningu
frá íslandsbanka í gær.
Lyfsalar benda viðskiptavinum
sínum ekki á ódýrari kost af sam-
bæriiegu lyfi þrátt fyrir þá skyldu
sem hvílir á þeim að upplýsa neyt-
endur um ódýrari samheitalyf. Þetta
kemur fram í könnun Alþýðusam-
bands fslands (ASf) á mótsögnum í
þróun lyfjaverðs.
Skortur á upplýsingum
í könnun ASI var gerður saman-
burður á meðalverði á mígrenis-
lyfinu Imigran og verkjalyfinu
Voltaren Rapid í apríl og nóvember-
mánuði á þessu ári. Þar kemur fram
að þrátt fyrir að heildarverð lyfj-
anna hafi lækkað talsvert á milli
þessara tveggja verðkannana hækk-
aði meðalverð á Imigran á sama
tíma til neytenda. Astæða hækk-
unar er fyrst og fremst rakin til þess
að í millitiðinni kom inn nýtt sam-
heitalyf, Imigran Radis, sem er ódýr-
ara en frumlyfið Imigran. Þetta olli
því að þátttaka Tryggingastofnunar
ríkisins (TR) í lyfjaverði lækkaði í
kaupum á Imigran þar sem útreikn-
ingar TR miðast alltaf við ódýrasta
lyfið á markaðinum. í könnuninni
kom fram að fáir lyfsalar upplýstu
viðskiptavini sína um ódýrari sam-
heitalyf þrátt fyrir að þeim sé skylt
að gera það í þeim tilvikum þar sem
verðmunur er meiri en sem nemur
5%. Segir ennfremur í könnuninni
að þetta veki upp spurningar um
hvort aðrir hagsmunir ráði þarna
ferðinni en hagsmunir sjúklings.
Kannast ekki við þetta
Hrund Rudólfsdóttur, framkvæmda-
stjóri Lyf og heilsu, kannast ekki
við það að lyfsalar á hennar vegum
upplýsi ekki um ódýrari lyf. Hún
segir það þvert á móti vera hags-
muni fyrirtækisins að geta boðið
viðskiptavinum upp á ódýrari
vörur. „Það eru okkar hagsmunir
að geta boðið sömu vöru fyrir lægra
verð og þar sem við erum á mjög
erfiðum samkeppnismarkaði segir
það sig sjálft að ef þú getur boðið við-
skiptavinum betur þá hlýtur þú að
fara eftir því.“ Hrund segir lækna í
sumum tilvikum R-merkja lyfseðla
sem gerir lyfsölum það óheimilt að
bjóða annað lyf. Þetta sé ákvörðun
læknis sem gæti byggst á því að
í sumum samheitalyfjum geta
Blaðið/Fríkki
komið fram aukaverkanir á meðan
sjúklingar venjast lyfinu. Þá segir
hún fyrirtækið nýlega hafa tekið í
notkun tölvukerfi sem auðveldar lyf-
sölum að fá upplýsingar um ódýrari
samheitalyf. „Við vorum einmitt að
láta breyta tölvukerfinu hjá okkur
til þess að auðveldara væri að sjá
ódýrari kosti. Þegar lyfjapöntun er
afgreidd koma nýju samheitalyfin
upp á skjánum sem annar kostur og
lyfsali getur því strax spurt viðskipta-
vin hvort hann vilji það frekar,“ segir
Hrund og bætir við að reynslan sýni
að aðeins í hluta tilfella kjósi við-
skiptavinir samheitalyfið. ■
Mannanöfn
Jón og
Gunna vln-
sælust
Jón og Gunna eru ennþá al-
gengustu eiginnöfnin á íslandi
samkvæmt samantekt Hagstof-
unnar um nafngiftir íslendinga
árið 2004. Um 3,8% karla í land-
inu bera nafnið Jón en um 3,6%
kvenna bera nafnið Guðrún.
Biblíunöfn vinsæl
Samkvæmt samantektinni
hefur þó nokkuð dregið úr
tíðni gamalgróinna nafna og
þess í stað komin tískunöfn á
borð við Birta og Aron. Þannig
hétu 23,5% allra karla á landinu
Jón árið 1703 og á sama tíma
báru um 19,7% allra kvenna
nafnið Guðrún. 1 manntali frá
árinu 1901 báru um 9,6% allra
karla nafnið Jón og um 10,5%
kvenna nafnið Guðrún og ljóst
að verulega hefur dregið úr
tíðni þessara nafna. Þá kemur
einnig fram í samantektinni að
biblíunöfn verða sífellt vinsælli
hér á landi t.d. nöfn eins og
Daníel, Davíð, Rakel og Sara.
Tískunöfn
Tiskunöfn eru líka byrjuð að
ýta í burtu vinsælum nöfnum
á borð við Guðmundur og
Sigríður. Þannig hefur Guð-
mundsnafnið verið næst á eftir
Jónsnafninu um aldaraðir en
sé horft til drengja á aldrinu o
til 4 ára er nafnið nú í 15. sæti.
I sama aldurshópi stúlkna er
nafnið Sigríður nú í 31. sæti
en var lengi vel í öðru sæti.
Þá hafa vinsældir tvínefna
aukist jafnt og þétt á síðustu
áratugum og í dag bera um
55,5% landsmanna tvö eigin-
nöfn. Algengustu tvínöfnin í
dag í hefld eru Jón Þór og Anna
María en meðal þeirra yngstu
eru tvínöfnin Andri Snær og
Eva María langvinsælust.
SKRIFSTOFUGARÐAR
NETLA
I_________NETHYL_____________I
Fyrir lítil fyrirtæki og einyrkja
Frábær skrifstofuaðstaða á góðu verði
Eigum aðeins eitt laust herbergi eftir.
Aðeins 32.500 + vsk með húsgögnum.
Innifalið m.a þráðlaust internet, hiti,
rafmagn, ræsting í sameign,
aðgangur að fundarherbergi ofl.
Nánari upplýsingar gefur Gunnar í síma 664-6550
Netla- Nethyl 2, 110 Reykjavík
ofélin kðrna med
Jélakðrtunum
...skoöaöu jólakortin á
www.myndval.is og veldu
kort, sendu okkur myndina og
textann sem þú villt hafa
og við sjáum um að klára
jólakortin fyrir þig
...einnig getur þú komið
með mynd og texta
til okkar í Mjóddina
] -39 kort. 145kr./stk.
40 kort+ 135kr./stk.
umslag fylgir, lágmarkspöntun lOstk.
Álfabakka 14 - 557 4070
myndval@myndval.is
húshjálpin
og húsið ilmar
af hreinlæti