blaðið - 25.11.2005, Blaðsíða 6
6 I IWWLEMDÆR FRÉTTIR
FÖSTUDAGUR 25. NÓVEMBER 2005 blaöiö
Þingmaður og
ráðherra unnu fitustríðið
Yfirburðastaða RÚV
Átta af tíu vinsœlustu sjónvarpsþáttunum
eru hjá Sjónvarpinu
Frá verðlaunaathöfninni í Sporthúsinu. Frá vinstri talið ReynirTraustason, sem fékk
silfurverðlaun, Linda Pétursdóttir, formaður dómnefndar, Guðni Ágústsson, heiðursverð-
launahafi, og Sigurður Kári Kristjánsson, alþingismaður, sem bar sigur úr býtum.
Sigurður Kári Kristjánsson,
alþingismaður, hlaut fyrstu verð-
laun eftir að hafa náð bestum ár-
angri í heilsuátaki sem tímaritið
Mannlíf og heilsukeðjan Iceland
Spa and Fitness hafa staðið fyrir
síðan í sumar. Alls tóku sjö
manns með einkaþjálfurum þátt
í átakinu sem stóð frá 1. júlí til 1.
nóvember. Sigurður Kári hefur
náð að helminga fitu líkama
síns og er nú í svipuðu formi og
afreksmaður i íþróttum. Hann
fór úr 22 prósentum í n prósent.
Svava Svavarsdóttir, einkaþjálfari,
hlaut verðlaun fyrir handleiðslu
sína.
Dómnefnd Lindu Pétursdóttur,
stofnanda Iceland Spa, úrskurð-
aði að Reynir Traustason, ritstjóri
Mannlífs, hefði hafnað í öðru sæti
en hann missti 17 kíló á tímabilinu
með hjálp einkaþjálfara síns, Kol-
brúnar Pálínu Helgadóttur.
Þriðja sætið hreppti Guðbjörg
Einarsdóttir sem átti sér þann
draum að öðlast nægan styrk til að
komast í Lögregluskólann. Þetta
tókst henni með aðstoð þjálfara síns,
Jóhanns Inga Stefánssonar, og hún
flaug inn skólann.
Guðni Ágústson fékk heiðursverð-
laun fyrir það áræði að stíga fram
fyrir þjóð sína og taka þátt í átak-
inu og boða heilbrigðari lífshætti.
Guðni léttist um tæp átta kíló og
ummál ráðherrans hefur minnkað
um 41 sentímetra. Guðni flutti
þakkarávarp þar sem hann upp-
lýsti að innri fita hans hefði vikið
og hann væri nú kraftmeiri til allra
verka, jafnt heima sem heiman. I
þakkarávarpi í lok athafnarinnar
sem fram fór í Sporthúsinu sagðist
Guðni myndi halda áfram í átaki
sínu og hvetja alla til þess að sjá við
offituvandanum. ■
Spaugstofan er vinsælasti þátturinn í íslensku sjónvarpi samkvæmt áhorfs-
könnun Gallup. Áhorf á þáttinn mælist nú 52,5%. Fréttir RÚV eru í öðru
sæti og mælist áhorf 45,4%. Kastljósið kemur síðan í þriðja sæti með 38,1%
og Kallakaffi er skammt undan með 37,5%. Fjórði vinsælasti þátturinn í
íslensku sjónvarpi er Örninn á RÚV með 32% áhorf og í fimmta sæti eru
fréttir Stöðvar 2 með 30,5%. Idol stjörnuleit kemur síðan með 28,3%. Hjá Skjá
1 mælist CSI með 22% og íslenski bachelorinn með 20,6%. Þá má geta þess
að Ástarfleyið á Sirkus mældist með 6,6% áhorf. Könnunin var gerð áður en
Nýja fréttastöðin, NFS, fór í loftið og því er hún ekki mæld í þessari könnun.
Hér að neðan er listi yfir vinsælustu þættina.
Spaugstofan
Fréttir, íþróttir veður
Kastljós
Kallakaffi
Örninn
Fréttir Stöðvar 2
Idol Stjörnuleit
Útog suður
Allir dansa mambó
Tíufréttir
52,5%
45,4%
38,1%
37,5%
32,0
30,5%
28,3%
26,1%
24,2%
24,2%
9 neðan
af tórmum, parketvinnu o.fl.
Sagarblöö til aö saga jórn.
RAFVER HF
V«rfcf»ri fyrlr Iðnaðarmann
SKEIFAN 3E-F - 108 REYKJAVIK
SÍMI 581 2333 / 581 2415
RAFVER. RAFVER.IS - WWW.RAFVER.IS
ns;'\
‘Siátna & Jtyggvagotn S, 101 Key^javi^
_-----------------------S. 511 2272
'L'í'1 i:M helgab í
Ertu ekki þreyttur / preytt á
aðborða alltaf <tama matinn
kíktu á okkur á elraco.úi
Nýr daLuabar opið til 03.00
m
clraco.is
Lestur
dagblaða minnkar
Morgundreifing á laugardagsblaði Blaðsins
mœlist velfyrir.
Lestur dagblaða dregst saman, sam-
kvæmt könnun Gallup sem birt var
í gær. Þannig mælist meðallestur
Morgunblaðsins 46,1% á landinu
öllu, en var 51% í síðustu könnun.
Lestur Fréttablaðsins fer úr 67,6% í
64,1% og lestur Blaðsins minnkar úr
32,2% í 27,4%. Lestur DV eykst hins
vegar aðeins, fer úr 16,7% í 17,9% á
landsvísu. Lestur Blaðsins á höfuð-
borgarsvæðinu mælist um 40%.
Nýtt laugardagsblað Blaðsins, sem
dreift er að morgni dags, mælist
afar vel fyrir og mælist lestur þess
46,1% á höfuðborgarsvæðinu, á móti
48,2% hjá Morgunblaðinu og 67,4%
hjá Fréttablaðinu. Mikil frídreifing
var hjá DV í könnunarvikunni og
mældist hún 8,7% og skýrir það auk-
inn lestur á því blaði. Frídreifing hjá
Morgunblaðinu mældist 5,8%. Fjöldi
fólks í úrtakinu hjá Gallup var 1.531
og var nettó svarhlutfall 57,8%. ■
Skipulagsmál
Vilja halda
í slippinn
Sjálfstæðismennn eru tilbúnir
að endurskoða fyrirhugaðan
flutning slippsins frá Reykja-
vík líkt og gert er ráð fyrir í
deiliskipulagi gamla hafnar-
svæðisins. Þetta kom fram á
íúndi fulltrúa borgarstjórnar-
flokks Sjálfstæðisflokksins með
útvegsmönnum í Reykjavík.Á
fúndinum lýstu útvegsmenn
áhyggjum sínum vegna flutn-
ings slippsins og telja það muni
hafa víðtæk áhrif á atvinnulíf
á svæðinu. Þá telja þeir einnig
að þeir muni frekar nýta sér
þjónustu slippsins í Hafnarfirði
heldur en á Grundartanga
þangað sem flytja á slippinn.
Gengi krónunnar
Lækkun
framundan
Gengi íslensku krónunnar
mun lækka verulega á næstu
mánuðum ef spá Islandsbanka
mun ganga eftir. I spá grein-
ingardeildar bankans segir að
gert sé ráð fyrir að gengisvísi-
talan verði komin í 113 stig
eftir tólf mánuði sem er um
8% lægra en núverandi gildi.
Mosfellsbær:
Ný íþrótta-
miðstöð
Mosfellsbær og fyrirtækið
Nýsis hf. undirrituðu í
gær samning um samstarf
um byggingu og rekstur
íþróttamiðstöðvarinnar
Lækjarhlíð. Samningurinn nær
til 30 ára og mun Mosfellsbær
greiða Nýsis árlega leigu
á samningstímanum.