blaðið - 25.11.2005, Qupperneq 21
blaöið FÖSTUDAGUR 25. NÓVEMBER 2005
TÓMSTUNDIR I 21
Tómstundir
hafa mikið
forvarnargildi
Mikilvœgt að finna
hvaða tómstundir henta
hverjum og einum
„Rannsóknir hafa sýnt að krakkar
sem stunda íþróttir undir stjórn
ábyrgra aðila eru ólíklegri tú
að leiðast út í áfengisneyslu
og reykingar,“ segir Þráinn
Hafsteinsson, ffístundaráðgjafi í
þjónustumiðstöðinni í Mjódd.
Hlutverk Þráins er að stuðla að
bættu íþrótta- og tómstundastarfi
í Breiðholti og auka félagsauðinn
í hverfinu. Þráinn segir einnig
að því oftar sem íþróttir séu
stundaðar í viku því minni
líkur séu á að börn og unglingar
leiðist út í áfengisneyslu.„Það er
orðið minna um að böm leiki
sér skipulega án eftirlits eins og
áður tíðkaðist og undir þeim
aðstæðum er líka hætta á að þau
leiðist út í óæskilega hegðun.
Krökkum, sem stunda tóm-
stundir utan skóla, gengur yfirleitt
vel í skóla og má leiða líkum að
því að iðkun tómstunda geri
það að verkum að böm læri að
skipuleggja tíma sinn betur. Þá tel
ég að krakkar læri betur að það
er samhengi miUi ástundunar
og árangurs og að þú uppskerð
eins og þú sáir,“ segir Þráinn
Þráinn segir rannsóknir hafa
sýnt að mest þátttaka í íþróttum
er hjá 10-12 ára börnum en eftir
það minnkar hiin. „Ég tel íþrótta-
hreyfinguna ekki hafa boðið upp
á nægilega fjölbreytta möguleika
fýrir eldri böm. Böm sem stunda
íþróttir en hafa ekki náð nægjan-
legum árangri til að keppa á
mótum gefast upp og finna ekki
tilganginn með iðkuninni," segir
Þráinn og bætir við að þá sé
ákveðin hætta á að þau leiðist út í
miður æskilega hegðun.„Keppnir
henta ekki öllum en félagsleg
tengsl em ekki síður ávúiningur
af því að stunda íþróttir.ljSegir
Þráinn. Hami segir kosUiað
við tómstundaiðkun vera'aðra
ástæðu þess að sumir krakkar
eiga ekki kost á því að stunda
þær.„Það er mín skoðun að hið
opinbera ætti að koma meira
inn í og niðurgreiða tómstundir
fyrir börn og unglinga, ekki síst
í ljósi rannsókna sem sýna að
tómstundaiðkun hefur mikið
forvarnargildi fyrir áfengisvanda-
mál en ekki síður fyrir félagslega
einangrun. Það er eðlilegt að
börn sem em félagslega ein-
angmð séu hrædd við að prófa
tómstundir og því mikilvægt
að foreldrar ræði vel við börnin
áður en lagt er af stað og fylgi
þeim jafnvel í fyrstu tímana. Á
hverju vori kemur út bæklingur
ffá ÍTR og þar geta foreldrar séð
hvað er 1 boði fyrir bömin. Ég
tel mikilvægt að foreldrar setjist
niður með börnum sínum og fari
í gegnum hvað þau hafi áhuga
á að stunda,“ segir Þráiim.
hugrun.sigurjonsdottir@vbl.is
BlaiiO/Frikkl
Þráinn Hafsteinsson, frfstundaráð-
gjafi
Fyrrum íslandsmeistari í samkvœmisdansi
Byrjaði að œfa dans sex ára gömul
„Ég hef æft samkvæmisdansa frá því
að ég var 6 ára,“ segir Þóra Björg Sig-
urðardóttir, fyrrum Islandsmeistari
í samkvæmisdönsum. Þóra náði
einnig mjög góðum árangri í dans-
keppni í Blackpool árið 2003.
„Ég hef alltaf æft dans í Dansskóla
Jóns Péturs og Köru. Foreldrar mínir
æfðu dans og þannig kviknaði áhugi
minn á íþróttinni. Það hefur gefið
mér ótrúlega mikið að æfa dans og
ég get ekki ímyndað mér lífið án
þess,“ segir Þóra.
Þóra hefur einnig lært á píanó og
söng en segist samt alltaf hafa haft
nægan tíma fyrir skólann. „Ég held
að með því að vera í tómstundum
hafi ég lært að skipuleggja tima
minn betur. Núna er ég á fyrsta ári
í Verslunarskóla Islands og æfi sam-
kvæmisdansa með frjálsri aðferð.
Gallin er sá að dansherrar á mínum
aldri eru ekki á hverju strái og nú
vantar mig dansherra," segir Þóra
og bætir við að strákar hætti í dansi
í efstu bekkjum grunnskóla. Þóra
segir dansinn mjög góða líkams-
rækt sem hafi skilað sér í góðu þoli
í íþróttum.
Þess má geta að Gísli, yngri bróðir
Þóru, æfir einnig samkvæmisdansa.
Ingibjörg Sigurþórsdóttir, móðir
Þóru, hefur æft samkvæmisdansa
í mörg ár og segir tómstundaiðkun
efla sjálfstraust barna og unglinga.
„Við foreldrar Þóru höfum gefið
okkur mikinn tíma til að fylgja
börnum okkar eftir í dansinum og
sjáum ekki eftir þeim tíma,“ segir
Ingibjörg. Hún segir áberandi hve
samskipti kynjanna eru fumlaus
og eðlileg hjá krökkum sem stunda
dans og segir það eflaust stafa af því
mikla samstarfi sem þau þurfa að
hafa við hitt kynið í dansinum.
Hugrun.sigurjonsdottir@vbl. is
fTONASTOrflS
Magnarar
Spider 15 wött kr. 17.900-
Spider 30 wött kr. 24.900-
Spider II 112 75wött kr.39.900-
Spider II 210 120 wött kr.44.900-
Spider II 212 150 wött kr.49.900-
Spider II 75 wött Head kr.25.900-
Spider II 150 wött Head kr. 25.900-
Box
Spider II Cabinet 412 kr.47.900-
Spider II Cabinet HD75 412 kr.44.900
Tónastöðin • Skipholti 50d • Reykjavík • sími: 552 1185 • www.tonastodin.is