blaðið - 25.11.2005, Síða 24
24 I GÆLUDÝR
FÖSTUDAGUR 25. NÓVEMBER 2005 blaöiö
Hátískufötfyrir hunda
Hundum líður betur í hlýjum peysum
Sumum finnst heldur skrýtið að
klæða hunda í föt en þetta er víst
framtíðin. Hundum verður kalt
rétt eins og mannfólkinu og þurfa
því hlý og góð föt. Ekki er verra
að þau séu stórglæsileg. Theo-
dóra E. Smáradóttir veit af þessu
og hefur því hannað flott föt á
hunda undanfarin ár. Hönnun
hennar er seld í löndum víðs
vegar um heim og fyrirtæki Theo-
dóru og Sigurðar Jónssonar, Theo,
fékk Nýsköpunarverðlaunin í
fyrradag.
Þessi jakki slær án efa í gegn enda sérstak-
lega glæsilegur.
Theodóra segist vera himinlifandi
yfir verðlaununum enda gefi þau
henni kraft til að halda áfram. Hug-
myndina af hundafatnaðinum fékk
hún þegar hundinum hennar, Lúlla,
var alltaf kalt. „Ég saumaði á hann
flíspeysu sem vakti svona rosalega
lukku. Fólk var farið að stoppa okkur
úti á götu og vildi svona peysu, síðan
vatt þetta upp á sig. Lúlla leið betur
í peysunni því þó að smáhundar séu
loðnir þá er alltof kalt hérna fyrir þá.
Fyrir jólin 2002 byrjaði ég að sauma
hundaföt fyrir fólk eftir máli. Fyrir
jólin 2003 fórum við á sýningu í
Svíþjóð og saumuðum alveg helling
fyrir það. Það gekk svo rosalega vel
að við sáum ekki fram á það að ég
æti verið að sauma hérna heima.
g hannaði því bara fötin, sendi þau
út og svo er þetta framleitt erlendis."
Stórir hundar þurfa líka föt
Á íslandi má fá fötin frá Theo í Iðu
og Dýraríkinu. Auk þess verður net-
verslun opnuð fljótlega og Theodóra
viðurkennir fúslega að það sé allt á
fullu þessa dagana. „I dag eru um
ellefu manns sem koma að fyrirtæk-
inu. Við erum að selja vörurnar á
öllum Norðurlöndunum, víðs vegar
um Evrópu og í Bandaríkjunum.
Þetta er búið að stækka hratt. Við
fórum á sýningu í Chicago í október
og slógum í gegn. Þeir voru rosalega
hrifnir af flíkunum. Við höfum
verið með fjórar stærðir hingað til
en það er búið að biðja mikið um
föt á stóru hundana og nú erum við
með sjö stærðir. Þó hundar séu stórir
þá eru þeir svo snöggir að feldurinn
ver þá ekki fyrir kuldanum. Það er
mjög sniðugt að setja hunda sem
eru mjög loðnir og með mikinn feld
í vindgalla til að hlífa feldinum við
bleytunni, rigningunni og snjónum
sem festist í hárunum. Þá er hundur-
inn bara tekinn úr gallanum þegar
f)t»_ . J
':öufu(\U\r
futaifisk.M'y'
PROFORI
HUNDA OG KATTAFOÐUR
PROFORMANCE - dýranna vegna
rðufntjlfrr
J ftilaifWkn-r
Bleikargróf 15 Rvk * Hafnarstræti 17 Rvk
Hfj Skólabraut 37 Akranesi • Hrannargötu 2 Ísafírðí
Kaupangur Akureyri • Eyrarvegi 35 Selfossi
IPROFormance
PC r PRODUCTS INC
NUTRO - 30% AFSLÁTTUR
NUTRO ÞURRFÓÐUR FYRIR HUNDA OG
KETTI í HÆSTA GÆÐAFLOKKI.
30% AFSLÁTTUR AF ÖLLUM VÖRUM
TOKYO opið
gæludýravörur mán-fös. 10-18
Hjallahraun 4 Lau. 10-16
Hafnarfirði s.565-8444 Sun 12-16
Theodóra E. Smáradóttir segir að hundar þurfi góð og falleg föt til að þeim verði ekki kalt.
hann kemur inn í stað þess að hann
þurfi að fara í bað eða bíða eftir að
snjórinn bráðni. Þetta er líka oft
óþægilegt fyrir þá því snjórinn togar
í feldinn."
Þarf að gæta þess að
hundar séu ekki heftir
Theodóra lærði almenna hönnun
en hefur dundað sér við saumaskap
síðan hún var lítil. Amma hennar
kenndi henni að sauma og aðstoð-
aði hana fram eftir aldri. Theodóra
segist alls ekki eiga erfitt með að
finna hugmyndir að nýjum flíkum.
„Þvert á móti. Ég er með fullan haus
af hugmyndum. Þetta er rosalega
gaman. Þar sem við eigum hunda
sjálf þá sjáum við hvað hentar og
það er búið að breyta hverjum galla
mörgum sinnum til að hundunum
líði vel og að þeir séu ekki heftir."
Tækifærisföt eins og
skokkar og smekkbuxur
Theodóra segir að það hafi alls ekki
vakið furðu að hún sé að hanna föt
fyrir hunda. „Ég hef fengið meiri-
háttar viðbrögð við fatnaðinum. Það
hrósa þessu allir og taka mjög vel
í þetta. Sumum finnst reyndar að
hundar eigi helst að vera úti í kofa
en þeir sem eiga hunda vita alveg að
þeir þurfa á fötum að halda. Þetta er
kannski meira hjá fólki sem finnst
hundar bara vera hundar. Fólk var
mjög fegið, áður voru fötin meira
ábreiður en ekki var hugsað mikið
um útlitið. En þessi föt eru bæði til
að hlífa hundunum við bleytunni
og kuldanum og líka tækifærisföt
eins og smekkbuxur, bolir, skokkar
og fínni föt.“ Theodóra segir að
báðir hundarnir hennar séu oftast
í fötum. „Alltaf þegar þeir fara út.
Þeir eru ekki í fötum þegar þeir eru
heima. Nala er tveggja ára og henni
finnst æðislegt að vera í fötum. Þau
hjálpa til við að fara í fötin. Það er
eins og hún viti að hún er voða fín
þegar hún er komin í fínt pils.“
svanhvit@vbl.is
Dýraland.is
Dýzin tala á Dýralandi
Ætli þessi dúlla eigi heimasíðu á Dýraland.is
Það er löngu orðið hversdagslegt að þetta leið til að koma hugsunum og
rita hugsanir og dagleg mál í dagbók- skoðunum á framfæri. A Dýraland.
arformi á Internetinu. Margir eiga is eiga blessuð dýrin líka athvarf
sínaeiginbloggsíðuogfyrirmargaer en þar eru hýstar tugir heimasíðna
þar sem eigendur blogga fyrir hönd
dýra sinna. Heimasíðurnar eru eins
misjafnar og þær eru margar, sumir
leggja orð í munn dýranna á meðan
aðrir láta sér nægja að tjá hugsanir
sínar í garð dýrsins. Ljóst er að fjöldi
Islendinga á gæludýr sem þeim þykir
mjög vænt um.
Vefurinn nýst betur en búist var við
Sigríður Guðmundsdóttir, Þór Sig-
urðsson og Ingi Gauti Ragnarsson
eru eigendur Dýralands en auk þess
reka þau Barnaland.is. Ingi Gauti
segir að hugmyndin af Dýralandi
hafi í raun komið vegna þess hve
margir voru með síður fyrir dýrin
sín inni á Barnalandi. Dýraland var
stofnað í október 2004. „Vefurinn
hefur í raun nýst meira en við bjugg-
umst við. Þetta var hálfgert tilrauna-
verkefni fyrst. Það er fullt af fólki
sem er með heimasíður hjá okkur
en ég er ekki með fjöldann á hreinu,“
segir Ingi sem sjálfur á engin dýr.
Dagbók Parísar
„Nú er ég orðinn 8 mánaða. Hélt uppá
það með því að fara f heimsókn til
bestu ömmu I heimi, sem átti einmitt
afmæli í gær eins og ég. Amma gaf mér
harðfisk, nammi namm. Svo var Max þar
í heimsókn, 3 ára labrador. Við skemmt-
um okkur konunglega saman. Hlupum
hring eftir hring, stofan, eldhúsið,
gangurinn, stofan eldhúsið, gangurinn,
það eru svo skemmtileg hús þar sem
hægt er að hlaupa í stóra hringi gegn-
um herbergin. Max kenndi mér aftur að
pissa og kúka inni, ég var alveg búinn
að gleyma að það væri hægt. Nú geri
ég það heima líka, mömmu og pabba
til mikilia skaprauna. I dag átti svo afi
afmæli, sko afi I Hafnarfirði. Ég var nú
bara sofandi þegar mamma skaust I
heimsókn til hans, ég kyssi hann næst
þegar við mamma röltum til hans. Svo á
Brynjar afmæli á föstudaginn og Arnar
á mánudag. Þvílíkar afmælisveislur. Ég
fæ bara vatn f munninn. Ég var annars
lasinn um daginn, fékk niðurgang og
gubbaði. Mamma gaf mér hrísgrjón að
borða með örlitlum humar f - nammm
nammm namm. Nú fæ ég loksins góðan
mat. Mamma komst að þvf að ég elska
hrfsgrjón svo nú blandar hún hrísgrjón-
um við matinn minn og það hverfur
ALLT úr skálinni minni. Jæja, ég verð
að fara að horfa á leikinn, áfram ManU.
Kveðja frá Paris."
http://www.dyraland.is/dyr/33986/vef-
bok