blaðið - 25.11.2005, Side 28
28 I MENNING
FÖSTUDAGUR 25. NÓVEMBER 2005 blaöiö
Manneskjur
eru ólíkindatól
1 fylgd með fullorðnum, fyrsta
skáldsaga leikkonunnar Stein-
unnar Olínu Þorsteinsdóttur, hef-
ur vakið nokkra athygli enda fín
frumraun. „Ég hef lítið skrifað
áður, utan það sem ég skrifaði
ásamt Margréti Örnólfsdótturþeg-
ar ég stjórnaði skemmtiþættinum
Milli himins og jarðar í sjónvarp-
inu. Það voru helst „grínsketsar“
fyrir leikarahópinn sem vann
með okkur. Þar utan hef ég skrif-
að fyrir skemmtiþáttinn Stelpurn-
ar á Stöð 2 í vetur. Þá er það held
ég upptalið,” segir Steinunn Ólína
aðspurð hvort hún hafi áður feng-
ist við skriftir og jafnvel átt hand-
rit í skúffum.
Þú átt greinilega auðvelt með að
skrifa og hefur góðan stíl. Kemur
þessi stíll auðveldlega til þín eða
kostar hann áreynslu?
„Það var engin áreynsla að skrifa.
Þvert á móti fannst mér það
fremur auðvelt en umfram allt
ánægjulegt. Auðvitað var ég oft í
vafa um eitt og annað en ég naut
þess atlætis að geta borið hluti
undir fólk sem ég treysti og get
tekið mark á. Stíllinn kom frekar
svona af sjálfu sér. Bókin er brota-
kennd, stuttar frásagnir sem eru
eins og hendingar og þar af leið-
andi varð stíllinn kannski svolítið
knappur. Það eru stuttar setning-
ar sem kveikja af sér aðrar stuttar
setningar."
99.................
Maður leggur sig
fram við eitthvað og
vonar að það skili
sér. Það er tímasóun
að hugsa ofmikið um
útkomuna, þá verður
manni ekkert úr verki."
Bókinni hefur verið vel tekið.
Varstu hrœdd við gagnrýni?
„Ekki hrædd beinlinis en
auðvitað full eftirvæntingar.
Hvað veit maður um það hvern-
ig hlutum er tekið? í leikhúsinu
er enn ekki búið að finna upp þá
formúlu sem ábyrgist það að fólk
vilji koma í leikhúsið, þrátt fyrir
að viðkomandi leikrit hafi gengið
vel annars staðar í heiminum. Um
svona hluti er ekki hægt velta vöng-
um yfir fyrirfram. Maður leggur
sig fram við eitthvað og vonar að
það skili sér. Það er tímasóun að
hugsa of mikið um útkomuna, þá
verður manni ekkert úr verki.“
Truflar það þig að einhverjir les-
endur eru í leit að fyrirmyndum að
persónum þegar þeir lesa bókina?
„Ef þessi bók hefði komið út í
milljónasamfélagi, hefði þessi um-
ræða aldrei átt sér stað.
Það hefði enginn haft áhuga á
því. Smæð okkar gerir það að verk-
um að við viljum þekkja náungann
til hlítar ef þess er nokkur kostur.
Sumir hafa viljað kannast við einn
og annan í þessari bók og það er
bara af hinu góða ef fólki finnst
ég lýsa fólki sem það þekkir. Þá
hefur mér kannski tekist að lýsa
broti af því samfélagi sem við lif-
um og hrærumst í. En um beinar
fyrirmyndir er ekki að ræða heldur
eru þetta kannski fyrst og fremst
lýsingar á samskiptum ólíkra per-
sóna og þeirra ólíku eiginleikum.
Mannfólkið er svo skemmtilegt.
Manneskjur eru ólíkindatól.“
Hvencer kemur nœsta bók?
„Þegar ég er tilbúin. Ég er byrjuð
að skrifa meira. Hvað það verður
er ekki alveg ljóst á þessu stigi
málsins. En það er skáldsaga af
allt öðrum toga.“
Steinunn Ólína. Skáldkonan sést hér þar
sem hún áritaði bók sína í Bókabúð Máls
og menningar.
; lgrlvjm ,
SOLUMENN
ÓSKAST
Vegna aukinna umsvifa óskar
Blaðið eftir sölumönnum í
fulla vinnu.
Um er að ræða skemmtilegt
starf hjá fyrirtæki í örum
vexti með skemmtilegu
fólki. Góðir tekjumögu-
leikar fyrir gott fólk.
Blaöiö
Bæjarlind 14-16
201 Kópavogur
Umsóknir sendist á atvinna@vbl.is
★★★
Stefnuljós - Hermann Stefánsson
Óvenjulegt
stefnuljós
Stefnuljós er fyrsta skáldsaga rit-
höfundarins Hermanns Stefáns-
sonar en áður hefur hann sent
frá sér smásagnasafnið Níu
þjófalyklar. 1 bókinni segir frá
Guðjóni Ólafssyni, rithöfundi,
sem kemst að því að eigin-
kona hans og mágur eiga í
ástarsambandi. í verkinu
er einnig að finna sögu
inni í sögunni þar sem
segir frá Gregori sem er
uppi í fjarlægri framtið
á íslandi. Þessar sögur
spinnast saman í
verkinu sem í heild
er þó frekar látlaust.
Segja má að hér
séu all venjulegar
persónur settar inn í
hverdagslegar og í sumum tilvik-
um óvenjulegar aðstæður. f þessu
liggur augljóslega meginstyrkur
Hermanns enda voru margar
lýsingarnar kostulegar og bráð-
fyndnar. Einnig var athyglisvert að
sjá hvernig hann brýtur upp hefð-
bundið frásagnarformið þar sem
jafnvel sögumaður kemur með
innslag úr sínu eigin lífi og einnig
komu myndbirtingar á aðalsögu-
hetjum skemmtilega á óvart. Þetta
skapar tilraunakennt andrúmsloft
sem gefur bókinni hressilegan
og jafnframt nýstárlegan blæ. En
undir niðri er grafalvarleg saga
með þó kæruleysislegum undir-
tóni þar sem ýmis vandamál og
umræðuefni samtímans
ber á góma. Það er hins vegar
skortur á krafti í framvindu sög-
unnar sem einhvern veginn flýtur
bara áfram og skilur ekki nógu
mikið eftir að lestri loknum. Það
er helst í vangaveltum sögupersón
unnar Guðjóns þar sem frásagn-
argleðin fer á flug en inn á milli
dettur sagan sjálf hreinlega niður.
hoskuldur@vbl.is
Stefnuljós eftir Hermann Stefánsson
útg. Bjartur Rvk 2005