blaðið - 25.11.2005, Blaðsíða 38

blaðið - 25.11.2005, Blaðsíða 38
38 I FÓLK FÖSTUDAGURW 25. NÓVEMBER 2005 blaöiö SUM BÖRW KVÍÐA FYRIR JÓLUNUM Smáborgarinn er farinn að hlakka til jól- anna. Enda var það ekki seinna en (fyrra- dag sem hann dröslaðist með nýtt jólatré upp í íbúð sina. Tilhlökkunln er því mlkil enda fyrsti í aðventu framundan. Smá- borgarinn ætlar einmitt að nýta þá helgi til að þrífa almennilega svo hægt verði að fylla íbúðina af jólaskrauti innan skamms. há verður Smáborgarinn glaður enda lífg- ar það svo upp á þessa dimmu daga i desember. En um leið og Smáborgarinn veltir sér upp úr tilhlökkun sinni hugsar hann til þess með kvíða í hjarta að tugir ef ekki þúsundir barna bera ekki sömutil- hlökkun > brjósti. Það eru ótrúlega mörg börn í okkar litla samfélagi sem kvíða fyrir jólunum, hátíð barnannna. Þessi börn búa til dæmis við alkóhólisma, vímu- efnaneyslu eða önnur vandamál sem ná jafnvel hámarki um jólahátíðina. Þótt hátíðin sé tileinkuð friði og börnum þá er hún Ifka veldur hún oft stressi og peninga- eyðslu. Slíkt verður oft til að foreldrar eða forráðamenn smakka ótæpilega á jóla- rauðvininu sem á að vera í sósunni. Sósan situr eftir bragðlaus og þurr, en mamm- an og pabbinn eru blaut og málglöð. Þó að barn sem býr á heimili alkóhólista sé vant því að foreldrarnir séu fullir þá veld- ur það eflaust meiri kvíði ef þau eru ölv- uð á aðfangadag. Börn hafa svo gaman af þessum degi og oft er tilhlökkun allt árið eftir þessum eina gjafadegi. Vonbrigðin verða því ennþá meiri ef dagurinn er ekki fullkominn. Þetta er grimmur veruleiki sem margir lifa i og Smáborgarinn fær sting i hjartað þegar hann hugsar til þess að börn muni sitja úti í horni á aðfanga- dag. Barnið er með kvíða í brjósti og heyr- ir köll og partílæti foreldranna. Gjafirnar voru opnaður stuttu áður en barnið upp- lifði enga gleði þeirra vegna heldur óskar sér einungis þess að foreldrarnir sofni sem fyrst og að næsti dagur risi upp með þeirri von um að bráðum muni eitthvað breytast. Bráðum mun barnið verða full- orðið og þarf ekki að lifa við þetta ástand. Bráðum munu mamma og pabbi verða eins og þau voru, hamingjusöm og edrú. Bráðum...bráðum... bráðum.... HVAÐ FINNST ÞÉR? Össur Skarphéðinsson, þingmaður Samfylkingarinnar Hvað finnst þér um fjarveru ráð- herra við fjárlagaumræðuna? „Mér finnst algjörlega fráleitt að ráðherrar séu ekki viðstaddir á mikilvæg- asta degi þingsins, þegar í reynd er verið að taka meginákvarðanir um fjár- lög. I sumum tilvikum kunna að koma upp ákveðnar aðstæður þannig að hægt sé að verja það. Ég á hins vegar ekki orð yfir þeirri ósvífni mennta- málaráðherra sem að fer með þann málaflokk sem er jafnan mest ræddur fyrir utan heilbrigðismálin við fjárlög, það er að segja menntamálin. Það er svo ótrúlegt að komast að því að ráðherrann skuli velja einmitt fjárlaga- umræðuna til þess að þvælast á ómerkilega ráðstefnu í annarri heimsálfu. Hún stillir það svo af að hún á ekki að koma til landsins fyrr en daginn eftir að umræðu lýkur. Það er deginum ljósara að hún er að flýja umræð- una enda er hún með flest stóru málin í uppnámi. Þetta eru vinnubrögð sem eru sannarlega ekki til eftirdæmis.“ Felicity um lystarstolið Felicity Huffman hefur sagt frá því að hún hafi verið með lystarstol og bú- limíu á unglingsárum sínum. Stjarnan úr Desperate Housewives segir að maðurinn hennar, William H. Macy, hafi hjálpað henni að ná sér. Þegar hún var rúmlega tvítug hafi hún verið mjög létt og of veikburða til að fara út að skokka og hafi hún þá leitað sér aðstoðar. 1 dag trúir hún því varla að hún sé ein mest kynæsandi kona í sjónvarpi. „Ég var með átröskun í nokkurn tíma og hataði líkama minn. Mér fannst ég aldrei nógu mjó og aldrei með nógu stór brjóst. Ég kastaði oft upp og valdi mér mat til að borða sem auðvelt væri að æla aftur. Líklega hef ég alltaf haft 40 ára líkama og nú þegar ég hef loks náð þeim tímapunkti er ég nokkuð ánægð.“ Calista segir frá öllu Calista Flockhart varð afskaplega fræg fyrir að leika Ally McBeal en á tímabili var hún jafnvel frægari fyrir það hversu grönn hún 1 var orðin. Nú eru hins vegar fimm ár síðan þáttunum lauk og I Calista er orðin miklu hraustlegri. I nýlegu viðtali við Grazia j sagði hin 41 árs gamla leikkona frá því að langir vinnudagar, j enginn tími til að fara í líkamsrækt og sjálfskipað bann við | skyndibita hafi haft þessi slæmu áhrif á líkamsþyngd hennar. Hún tók sérlega nærri sér þegar slúðurblöðin kenndu henni «j um að aðrar leikkonur þáttanna tóku að grenna sig og léttast. m En í dag blómstrar Calista, sem er í sambandi með Harrison p Ford sem er 22 árum eldri en hún. Þau hittust á Emmy-verð- r laununum árið 2002 þegar hún hellti óvart rauðvíni yfir hann. Hún er nýkomin úr leikhléi og leikur nú í hryllingsmyndinni Fragile og nýtur móðurhlutverksins í botn, en hún á fjögurra ára ættleiddan son sem heitir Liam. Prodigy stœrsta nafnið á Isle of Wight Hljómsveitin Prodigy mun vera stærsta nafnið á fyrsta kvöldi Isle of Wight-hátíðarinnar á næsta ári. Tónlistarhátíðin er hald- in helgina 9. til 11. júní í Seaclose Park í Newport. Næsta hátíð verður sú fimmta í röðinni eftir að hún var endurvakin árið 2002. Þátttaka fleiri hljómsveita verður staðfest og tilkynnt um á næstu vikum. eftir Jim Unger „Annars hugsaði ég til þess eftir fyr- irspurnatímann að það væri eins gott að ég spurði Björn ekki í ein- hverjum hálfkæringi út í það hvort það ætti að stofna sérstaka riddara- sveit í Skagafirði í ljósi þess að það er landsmót þar næsta sumar. Það er aldrei að vita nema Björn hefði gripið þessa hugmynd á lofti. Það væri í anda þess að dómsmálaráð- herra vill hafa víkingasveit í hverj- um landsfjórðungi. Grínlaust þá er orðið löngu tímabært að dómsmála- ráðherra útskýri þessa hundruða milljóna útþennslu á sérsveitum lögreglunnar, sérstaklega ef hún er á kostnað fjárhags lögregluembætta á landsbyggðinni. Einnig er rétt að hafa í huga að verkefnin eru ekki af stærri gerðinni, þ.e. sveitaböll og hestamannamót." Sigurjón Þórðarson á http://www. althingi.is/sigurjon/safn/002186. html#002i86 ,Ég_er sjálfur uppgefinn á Blair, sem hefur forklúðrað 8 ára valdaskeiði þrátt fyrir sterkan þingmeirihluta. Hann hefur engum raunverulegum umbótum náð í gegn - að því ég fæ best séð. Arfleifð hans er mistökin í írak. Sagan er miskunnarlaus. Þrátt fyrir sterka stöðu hans síðustu árin, f>á verður hans bara minnst fyrir rak, og fyrir að hafa gefið þinginu rangar upplýsingar í tengslum við innrásina." Össur Skarphéðinsson á ht tp:// web.hexia.net/roller/page/ossur// „Þess ber að geta að DV kom til mín í síðustu viku ásamt bréfi um að ég myndi fá blaðið til reynslu í 1 mán- uð mér að kostnaðarlausu. Blaðið kemur aldrei og greinilegt að það fylgir blaðburðarmeistaranum sem ber heldur aldrei út Fréttablaðið til mín. En það er gott að þurfa ekki að fá DV daglega. Fréttablaðið er hins vegar furðulegt blað. Þeir eru með dýrustu auglýsingarnar og ofsalest- ur. Ég fæ þetta blað sjaldannema kannski kl. 11. Það er ekki komið í dag frekar en óumbeðna tilrauna- áskriftin að DV. Ætli margir láti freistast og borgi áskrift að blaði sem aldrei kemur?“ Grímur Atlason á http://www. grimuratlason.hexia.net/ HEYRST HEFUR... Jón og Gunna eru enn algeng- ustu mannanöfn á íslandi samkvæmt Hagstofunni og kemur það vart á óvart. Yngra fólkið virðist hins vegar fara í aðrar áttir þegar kemur að nöfnum og þar má nefna tísku- nöfn eins og Birta og Aron sem njóta mikilla vinsælda um þess- ar mundir. Væntanlega mun þetta síðan breytast á næstu árum og áratugum þegar nýj- ar tískubylgjur fara yfir land- ið. Önnur tískubylgja er skíra börn tveimur nöfnum - núna ber rúmlega helmingur barna tvö eiginnöfn en fyrr á öldum heyrði slíkt til undantekninga. Líklegast var ein merkileg- asta frétt gærdagsins á bak- síðu Morgunblaðsins. Þar kom fram að ígildi 15 sykurmola er í einni hrís- mjólk, en hún er ekki síst vinsæl hjá börnum. Aðrar mjólk- urvörur, eins og skyr.is, abt mjólk og jógúrt koma ekki neitt sérstaklega vel út í þessari könnun. Þannig var ígildi um 7 sykurmola í þessum vörum ef þær voru með einhvers kon- ar bragði. Þetta hlýtur að vera áfall fyrir marga foreldra sem hafa keypt þessar vörur í þeirri trú að þær væru ekkert nema hollustan. Samskipti vinaþjóðanna á íslandi og í Mónakó hefur verið nokkuð til umræðu und- anfarna daga vegna nærveru íslensku forsetahjónanna, frú Dorritar og herra Ólafs Ragn- ars Grímssonar, við innsetn- ingu Alberts fursta í embættið. Gárungarnir segja að skýringar forsetans á heimsókninni séu þó fyrirsláttur einn, honum hafi runnið blóðið til skyldunn- ar, þar sem ættarnafn furstafjöl- skylduhnar sé Grimaldi. Tengsl- in milli smáþjóðanna eru þó síður en svo ný af nálinni, en eins og kunnugt er kvæntist afa- bróðir furstans Þuríði Þorbjarn- ardóttur á Bakkastíg snemma á 3. áratug síðustu aldar. Grace Kelly furstynja kom jafnframt hingað til lands og tókst vin- skapur með henni og frú Vig- dísi Finnbogadóttur forseta. Þá er vart hægt að efast um einlægan áhuga Alberts fursta á íslandi, en þýskt slúðurblað vildi sem kunnugt er spyrða hann við Þóreyju Eddu Elís- dóttur um árið. Ekki má heldur gleyma hinu, að Albert hefur nokkrum sinnum heimsótt Island og í þeim heimsóknum brást ekki að hann sást í fylgd sumra af glæsilegustu kven- kostum þjóðarinnar... Búið er að spá talsverðri aukningu í jólaverslun frá síðasta ári en kaupmenn hafa nú orð- ið varir við að fólk sé seinna á ferð- inni en áður - þ.e.a.s. að jólaverslunin fari seinna af stað en síðast. Þannig eru verslanir ennþá hálftómar í miðri viku á meðan ágætis um- ferð hefur verið um helgar. Það virðist því vera augnablikshlé á kaupæði landans, en það verð- ur varla lengi. Það er ennþá mánuður til jóla og það er orð- ið spurning um daga hvenær dansinn um gullkálfinn fer af stað fyrir alvöru... Hann ætlar bara ekki að venjast nýja hártoppnum.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.