blaðið - 29.11.2005, Side 17
blaðið ÞRIÐJUDAGUR 29. NÓVEMBER 2005
ÝMISLEGT I 25
/ /orm dn
likams-
rœktar
Góður árangur af
Bailine vaxtamótun-
armeðferð
„í Bailine meðferðinni notum við
rafleiðni til að örva vöðva,“ segir
Jakobína Flosadóttir, Bailine með-
ferðarfræðingur, og bætir við að
meðferðin grenni, styrki og móti
líkamann. „Þessi vaxtarmótunar-
meðferð er vinsæl á Norðurlönd-
unum en ég tók Bailine námið í Dan-
mörku. Það eru ýmsir möguleikar
með þetta meðferðarform en það
virkar vel fyrir konur sem eru að
jafna sig eftir barnsburð eða eiga
einhverra hluta vegna erfitt með
að stunda hefðbundna líkamsrækt.
Vaxtamótunarmeðferðin er líka
góð aðferð fyrir konur sem vilja
koma sér í gott form á skömmum
tíma. Meðferðin er þríþætt og sam-
anstendur af andlegri og líkamlegri
þjálfun ásamt leiðbeiningum um
mataræði. Á meðan á meðferðinni
stendur liggja konurnar í klefa og
hafa það gott á meðan tækin vinna
á líkama þeirra en rafleiðnin gerir
það að verkum að vöðvarnir herpast
saman og slaka á til skiptis," segir
Jakobína. Hún segir hluta meðferð-
arinnar vera hvatningu, fræðslu og
slökun og býðst konum að hlusta
á þessar ráðlegginar á meðan þær
liggja í klefunum.
Jakobína segir einstaklings-
bundið hvað konur þurfi marga
tíma en yfirleitt er árangur mæl-
anlegur eftir fimm tíma meðferð.
„Áður en konur hefja meðferð bíðst
þeim frír prufutími, fitumæling og
vaxtargreining. Hægt er að leggja
áherslu á maga, rass eða hvaða
líkamshluta sem konan vill leggja
áherslu á. Þá býð ég konum upp á
leiðbeiningar um mataræði ef þær
vilja grenna sig en ég náði sjálf mjög
góðum árangri með Bailine og réttu
mataræði. Ég mæli með vaxtamót-
unarmeðferðinni fyrir allar konur
sem vilja koma sér í form fyrir jólin
og hafa lítinn tíma til að fara í rækt-
ina,“ segir Jakobína og bætir við
að engar aukaverkanir séu þekktar
af vaxtamótunarmeðferðinni. Jak-
obína og Sveinbjörg, sem starfar
með henni hjá Bailine, eru báðar
heilbrigðismenntaðar.
hugrun.sigurjonsdottir@vbl.is
Jakoblna Flosadóttir og Sveinbjörg Lúð-
víksdóttir hjá Bailine.
Strákarfá líka átröskun
Átröskun hefur áhrif
samskipti kynjanna
,Strákar eru 5-10% þeirra sem fá át-
röskun (anorexíu) og einkennin eru
svipuð hjá þeim og stelpum sem
glíma við sjúkdóminn,“ segir Margrét
Gísladóttir, geðhjúkrunarfræðingur
og einn eigandi Prismu sem er með-
ferðarúrræði fyrir fólk með átröskun.
Margrét segir það einnig heyra til
útlitsvanda þegar strákum fmnst
þeir ekki vera nægilega vöðvastæltir.
.Þessir strákar eiga líka erindi í Prismu
ásamt fólki í yfirþyngd. Allt er þetta
hluti af ákveðinni þráhyggju um lík-
amann og hvernig hann eigi að líta út,“
segir Margrét. Hún segir félagslega
einangrun oft vera fylgifisk átrösk-
unar og segir að fólk haldið þessum
sjúkdómi eiga erfitt með að borða á
almannafæri. „Einangrun getur líka
komið af því að líkamsrækt tekur mik-
inn tíma frá fólki og fer lífið þá að snú-
ast um áhyggjur af mat og útliti," segir
Margrét.
„Átröskun hefur áhrif á samskipti
kynjanna hjá fólki í mikilli undir-
þyngd sem missa gjarnan áhuga á
kynlífi. Þá hefur átröskun líka áhrif á
þroska og hún hægir á andlegum og lík-
amlegum þroska hjá fólki. Þegar fólk
nær eðlilegri þyngd aftur heldur þrosk-
inn áfram,“ segir Margrét. Á Prismu
koma ungmenni með átröskun í við-
töl einu sinni í viku og einnig er unnið
í hópum. Prisma hefur verið starfrækt
í rúmt ár en þar starfa listmeðferða
fræðingur, næringafræðingur og
annar geðhjúkrunarffæðingur ásamt
Margréti. Margrét áætlar að um 20-30
manns séu í viðtölum þar núna.
hugrun.sigurjonsdottir@vbl.is
Jólin til þín
POSTURIN N
*
• Með okkur fer sendingin þín alla leið
heim að dyrum.
• Öflugt og öruggt dreifikerfi okkar tryggir
að sendingin þín kemst í réttar hendur
á réttum tíma, innanlands eða utan.
• Á www.postur.is finnurðu nýjustu heimilis-
föng vina og vandamanna. Þú getur safnað
þeim saman í möppu og þau uppfærast
sjálfkrafa.
• Finndu pósthúsið næst þér á www.postur.is
• Komdu tímanlega til okkar með jólakortin
og jólapakkana.
Við erum þar sem þú ert. með 13 afgreiðslustaði
og yfir 130 póstkassa á höfuðborgarsvæðinu og
75 afgreiðslustaði á landsbyggðinni.
www.postur.is
ÍSWSSS