blaðið - 05.12.2005, Síða 2
2 I IWWLEWDAR FRÉTTIR
MÁNUDAGUR 5. DESEMBER 2005 blclöiö
Alþingi:
Umdeilt tóbaksvarnarfrumvarp
lagt fram á Alþingi
/ samrœmi við óskir starfsmanna hótel-og veitingahúsa. Skerðing á eignarétti og atvinnu-
frelsi segir Sigurður Kári Kristjánsson, alþingismaður.
Tóbaksreykingar verða óheimilar á
veitinga- og skemmtistöðum frá og
með í. júní árið 2007 ef frumvarp
heilbrigðis- og tryggingamálaráð-
herra um breytingar á tóbaksvarn-
arlögum verður samþykkt á Alþingi.
Veitingahúsamenn eru almennt
ánægðir með þessi lög og telja að
þetta muni verða framfaraskref
fyrir veitingahúsarekstur á Islandi.
Viðbúið að einhverjir
lendi í erfiðleikum
Meginmarkmið frumvarpsins er að
vernda þá starfsmenn sem vinna
á veitingahúsum og þeim stöðum
þar sem reykingar eru nú leyfðar.
Vísað er i frumvarpinu til gildandi
vinnuverndarlaga og þeirra vísinda-
legu sannana sem liggja fyrir um
heilsuskaða og dauðsföll af völdum
óbeinna reykinga. Að sögn Ernu
Hauksdóttur, framkvæmdastjóra
Samtaka ferðaþjónustunnar, eru
lögin í fullkomnu samræmi við sam-
þykktir aðalfundar starfsmanna
hótel- og veitingahúsa frá apríl sl.
þar sem því var beint til ríkisstjórn-
arinnar að hún setji lög sem banni
reykingar á veitingahúsum frá og
með júní 2007. „Markmið laganna
er að starfsfólk veitingastaðanna
búi við það sama og annað starfs-
fólk i þjóðfélaginu, þ.e. að vinna
ekki í óheilnæmu lofti.“ Erna segir
viðbúið að einhverjir veitingastaðir
muni lenda í erfiðleikum vegna nýju
laganna. „Það mun ábyggilega ein-
hvers staðar verða erfitt, við höfum
ekki dregið fjöður yfir það. Þetta er
ekkert grín að standa í þessu. Þetta
verður mörgum erfitt. En menn
vita að þetta er að koma. Þetta er
komið í mörgum löndum í kringum
okkur og þetta er á leiðinni. En við
vildum fá dálitla aðlögun og sérstak-
lega vegna skemmtistaða og vegna
þeirra sem eiga eftir að finna mest
fyrir þessu.“
Gegn eignarétti og atvinnufrelsi
Sigurður Kári Kristjánsson, þing-
maður Sjálfstæðisflokksins, gagn-
rýnir þetta frumvarp og segir það
stríða gegn hugmyndafræði Sjálf-
stæðisflokksins um eignarétt og
atvinnufrelsi. Hann segist þó hafa
samúð með málinu en telur að lögin
séu óþörf. „Ef menn vilja á annað
borð fara þessa leið þá er eðlilegra að
Samtök ferðaþjónustunnar geri það
innan sinna raða. Það þarf ekki sér-
stök lög frá Alþingi til þess að taka
ákvarðanir um þetta.“ Þá bendir Sig-
urður á að í fylgiskjali frumvarpsins
þar sem vísað er til greinargerðar
Lýðheilsustofnunar um skaðsemi
reykinga sé ekki að finna neina rök-
semdarfærslu sem réttlæti takmark-
anir á eignarétti og atvinnufrelsi.
„Ég er þeirra skoðunar að ef menn
ætla sér að grípa til svona aðgerða og
hvort sem að menn eru með því eða
á móti efni frumvarpsins þá verða
takmarkanir á eignarétti og atvinnu-
frelsi fólks ekki rökstuddar með
fullyrðingum sem þar koma fram.
Því er ég á móti þessu frumvarpi og
mun ekki styðja það.“
Austurland
íbúum fjölgar
Ibúum á Austurlandi getur
íjölgað um allt að 2.000 vegna
álversins á Reyðarfirði sam-
kvæmt skýrslu Rannsóknar-
stofu Háskólans á Akureyri. Þá
gerir skýrslan ráð fyrir því að
kvennastörfum muni íjölga
verulega sem muni draga úr
kynjahallanum á svæðinu. Von-
ast er eftir því að heildar-
fjöldi nýrra starfa í kjölfar
tilkomu álversins verði um 880.
Reykingarmönnum verður úthýst af skemmtistöðum borgarinnar ef frumvarpið nær
fram að ganga.
Skýrsla Fjölmiðlavaktarinnar umfjölmiðlaumfjöllun:
Mikill munur á fréttaflutningi helstu
miðla af Baugsmálinu
Fréttablaðið birti í gær umfjöllun
um skýrslu, sem Fjölmiðlavaktin
(FMV) vann um Baugsmálið í fjöl-
miðlum. Skýrslan var boðin fjöl-
miðlum til kaups á 250.000 krónur,
en svo virðist sem Fréttablaðið eitt
hafi keypt hana. Þar kemur fram
að stjórnmálamenn og fjölmiðla-
menn hafi verið ríflega helmingur
þeirra, sem tjáðu sig um málið
á opinberum vettvangi. Á hinn
bóginn fjallar Fréttablaðið lítið
sem ekkert um fréttaflutning fjöl-
miðla, sem var gerð ítarleg grein
fyrir í skýrslunni. Þar mun m.a.
koma fram að mikill munur var á
fréttaflutningi Fréttablaðsins og
Morgunblaðsins af málinu.
FMV skoðaði alla fjölmiðlaum-
fjöllun um Baugsmálið á tímabil-
inu 10. ágúst til 18. október. Skoð-
aðar voru fréttir, aðsendar greinar,
umræðuþættir og hvað annað,
sem viðvék Baugsmálinu.
Mismunandi fjölmiðlaumfjöllun
Samkvæmt heimildum Blaðsins
kemur fram í skýrslu FM V að mun
meira hafi verið um aðsent
efni um Baugsmálið í fjölmiðlum
en tíðkast um önnur fréttamál.
Ekki er tekin afstaða til þess hvort
áhugi hins almenna borgara hafi
verið meiri á þessu máli en gerist
og gengur eða hvort um skipu-
lagða áróðursherferð hafi verið að
ræða, eins og sumir gerðu skóna á
sínum tíma.
Fréttablaðið og Morgunblaðið
birtu mest allra fjölmiðla um
Baugsmálið og var magnið svipað
þegar allt var talið, en
þegar aðsent efni var undan-
skilið hafði Fréttablaðið afger-
andi vinning. Þá er athyglisvert
í vali blaðanna á viðmælendum,
að Morgunblaðið leitaði fremur
til stjórnmálamanna, en Frétta-
blaðið meira til fjölmiðlamanna
af ýmsu tagi. Á ljósvakanum var
mest umfjöllun á fréttastofu RÚV
en fréttastofur Ríkissjónvarpsins
og Stöðvar 2 voru á svipuðu róli.
I umræðuþáttum var á hinn bóg-
inn mest um málið fjallað
í Kastljósi.
Saksóknari gagn-
rýndur mun meir
en sakborningar
Á heildina litið voru miðlar
365, þar sem Baugur fer með
ráðandi hlut, með 46% af
umfjöllun um Baugsmálið.
Þegar umfjöllunin er
greind eftir því hvað í henni
felst kemur i ljós að þar ber
mest á neikvæðum ummælum
um Sjálfstæðisflokkinn (50%)
og embætti Ríkislögreglustjóra
(46,6%). Hins vegar er gagnrýni á
sakborningana í málinu, Baugs-
menn, sáralítil miðað við aðra
hlutaðeigendur eða aðeins 18,6%.
Þetta vekur sérstaka athygli í
ljósi þess að í könnun, sem IMG
Gallup gerði fyrir Fjölmiðlavakt-
ina sögðust 62% svarenda að
fjölmiðlaumfjöllun hefði ráðið
mestu um afstöðu þeirra til
Baugsmálsins.
UVS selt til
Erfðagrein-
ingar?
Öllum starfsmönnum Urðar,
Verðandi, Skuldar (UVS), um
tuttugu talsins, hefur verið sagt
upp störfum frá og með síðustu
mánaðamótum og er það
sagður liður í söluferli fýrirtæk-
isins. Ekki hefur fengist staðfest
hver kaupandinn er og verjast
hlutaðeigendur allra frétta.
Urður, Verðandi, Skuld er
líftæknifyrirtæki, sem sérhæft
hefur sig í krabbameinsrann-
sóknum. Róbert Wessman,
forstjóri Actavis og stjórnar-
formaður UVS, hefur staðfest
að söluferli á því sé hafið,
enda sé rekstur líftæknifyr-
irtækis ekki hluti af kjarna-
starfsemi Actavis. Actavis er
einn stærsti eigandi þess.
Þessi ummæli Róberts hafa
valdið mönnum á markaði
umhugsun, enda fá fyrirtæki
á íslandi með líftækni að
kjarnastarfsemi. Hafa augu
manna því beinst að Islenskri
erfðagreiningu, en þar á bæ
vilja menn hvorki neita því
né játa að fyrirtækið hafi átt
í viðræðum um kaup á UVS.
,/Hlý og
Guðríður Haraldsdóttir, Vikunni
Irski metsöluhöf-
undurinn, Maeve
Binchy, kemur nú út í
fyrsta sinn á íslensku.
Þetta er hennar nýjasta
bók sem gerist i dul-
mögnuðu umhverfi
grísku eyjanna.
Einstaklega hlý og
notaleg saga um ástir
og mannleg örlög.
Bókafélagið Ugla
(3 Heiðskírt (3 Léttskýjað ^ Skýjað ^ Alskýjað ✓ ^ Rlgning, lítilsháttar /// Rigning 9 9 Súld Snjókoma
' 9 ^
Amsterdam 06
Barcelona 13
Berlín 05
Chicago -07
Frankfurt 05
Hamborg 04
Helsinki 0
Kaupmannahöfn 05
London 07
Madrid 09
Mallorka 16
Montreal -04
New York 0
Orlando 15
Osló 02
París 06
Stokkhólmur 03
Þórshöfn 06
Vín 03
Algarve 14
Dublin 06
Glasgow 06
Slydda Snjóél
Skúr
f
n°
€f
o° 0 2°
* ,® f • 1° Á morgun
fi
Veðurhorfur í dag kl: 18.00 • 3” '//z°
Veðursíminn Byggt á upplýsingum frá Veðurstofu íslands 5°