blaðið - 05.12.2005, Síða 4
4 I INNLENDAR FRÉTTIR
MÁNUDAGUR 5. DESEMBER 2005 blaðið
- -
'
R0SS0P0M0D0R0
5 RÉTTA JÓLAMATSEÐILL FRÁ 6 DES.
KR 4800
Skreytt fyrir jólin
BMWFrikki
Landsmenn eru í óöa önn aö koma upp jólaskreytingum enda ekki nema tæpar þrjár
vikur til jóla. Á Bústaðarvegi stendur eflaust eitt þekktasta einbýlishús landsins þegar
kemur aö jólaskreytingum og aö vanda mikið lagt í aö gera þær sem veglegastar.
Halldór Kiljan Laxness:
Afsalaði sér helstu eignum
er honum fór að förlast
I ævisögu Laxness eftir Hannes
Hólmstein Gissurarson er greint
frá því að Nóbelsskáldið gerði kaup-
mála við Auði konu sína er hann tók
að hraka andlega. Afleiðingin var
sú að börn Laxness erfðu hann í mis-
miklum mæli.
Halldór Kiljan Laxness og Auður,
kona hans, gerðu með sér kaupmála í
lok árs 1990, en í honum
voru allar helstu
eignir Nóbel-
skáldsins gerðar
að séreign Auðar.
Afleiðing þessa
var að dætur
þeirra erfðu
helstu eignir hans
nær óskiptar, en
eldri börn Laxness
ekki. Á þessum
tima hafði Halldór
gerst hrumur svo
eftir var tekið og
fjölskylda hans hefur
áður greint frá. Þetta
er meðal þess, sem
fram kemur í síðasta
bindi ævisögu Halldórs
Kiljans Laxness eftir
Hannes Hólmstein Gissurarson, en
það kom út um helgina.
í bókinni er sögð af því fræg
saga er Halldór Kiljan sótti sextugs-
afmæli sonar síns, Einars Kiljans
Laxness, hinn 9. ágúst 1991 og kann-
aðist ekki við fyrri konu sína, Ingi-
björgu Einarsdóttur. Á hinn bóginn
hafi Auður Sveinsdóttir, seinni kona
Laxness, ekki þurft að kvarta, því
rösku hálfu ári áður hafði skáldið
afsalað sér nær öllum eigum sínum
í hendur henni.
Auðurinn til Auðar
Auður Sveinsdóttir gerði kaupmála
við __ Laxness 13. des-
ember 1990, og voru
vottar að réttri dag-
setningu, undir-
skrift og fjárræði
þau Svala Thorl-
acius, hæstarétt-
arlögmaður, og
Ólafur Ragnars-
son, útgefandi í
Vöku-Helgafelli.
Samkvæmt
honumvorusér-
eignir Auðar
fasteignin
Gljúfrasteinn
með lóð og
bílskýli og
allt innbú
á Gljúfra-
steini og einnig
allt innbú á Fálkagötu. Var innbúið
talið nákvæmlega upp, og voru þar
á meðal verðmæt listaverk eftir
Sigurjón Ólafsson, Kjarval, Svavar
Guðnason, Kristján Davíðsson,
Nínu Tryggvadóttur, Þorvald Skúla-
son, Barböru Árnason, Guðmund
Einarsson frá Miðdal og Ásmund
Sveinsson og rússneskir og kín-
verskir dýrgripir ýmsir. Að öðru
leyti skyldi um fjármál þeirra Lax-
ness og Auðar fara eftir almennum
reglum. Kaupmálanum var þinglýst
hjá sýslumanninum í Hafnarfirði 9.
janúar 1991.
Þessi gerningur merkti, að dætur
þeirra Laxness og Auðar erfðu
eignir skáldsins nær óskiptar, en
ekki eldri börn þess, María og Einar.
Sem kunnugt er seldi Auður Lax-
ness ríkinu Gljúfrastein árið 2002
fyrir 66 milljónir króna.
Var allt í lagi?
Sú spurning vaknar hvort Nóbel-
skáldið hafi verið fyllilega sjálfrátt
þegar kaupmálinn var gerður, en
síðustu ár ævi sinnar hrakaði and-
legri heilsu hans mjög. I því sam-
hengi er bent á það, sem fram kemur
í ævisögu Laxness eftir Halldór
Guðmundsson, sem út kom fyrir
tveimur árum, en hún var rituð í
nánu samstarfi við fjölskyldu skálds-
ins, öfugt við ævisagnaritun Hann-
esar Hólmsteins.
Halldór Guðmundsson segir í bók
sinni um Laxness, að síðasta áratug
ævinnar hefði hann borið merki
heilabilunar. „Eftir á að hyggja telur
nánasta fjölskylda hans, að sjúkdóm-
urinn, ef hægt er að kalla hann svo,
hafi hugsanlega byrjað fyrr.“ Hall-
dór segir einnig: „Um og upp úr 1990
varð málstol meira áberandi, hann
vantaði orð, jafnvel algengustu orð.“
Þjóðleg jól í Árbænum
Jólasýning Arbæjarsafns hófst formlega í gær en þar gefst gestum og gangandi tækifæri á aö sjá hvernig jólaundirbúningur var í
gamla daga. I Krambúðinni gafst börnum tækifæri á aö smakka ekta kandís.
Gjöfin
sem vermir
4
PELSINN rfSTl
Kirkjuhvoli • simi 5520160 L-LMJ
Erilsöm helgi hjá lögreglunni I Reykjavík.
Lögreglan:
Fylltu fanga-
geymslurnar
Níu einstaklingar voru handteknir
aðfaranótt sunnudags fyrir að hafa
fíkniefni í fórum sínum. Helgin
var óvenju erilsöm og fylltust fanga-
geymslur lögreglunnar í Reykjavík í
gær þannig að leita þurfti til nærliggj-
andi lögregluumdæma til að finna
pláss fýrir fangana.
Mikið um ölvun
Aðfaranótt laugardags voru sjö teknir
vegna ölvun við akstur. f morgun-
sárið í gær bættust svo fjórir við
þann hóp og voru því alls um ellefu
stútar teknir á höfuðborgarsvæðinu
um helgina. f gærnótt stöðvaði lög-
reglan bíl með fimm ungmennum og
fundust fíkniefni á nokkrum þeirra
en alls þurftu um níu manns að gista
fangageymslur lögreglunnar um
helgina vegna fíkniefna. Að sögn lög-
reglunnar í Reykjavík var almennt
mikið að gera í miðbænum um helg-
ina og mikið um ölvun og óspektir.
Ein alvarleg líkamsárás átti sér stað
aðfaranótt laugardags þegar maður
um þrítugt fannst illa barinn við
bókabúð Máls og menningar á Lauga-
veginum. Tveir menn voru færðir
til yfirheyrslu vegna þessa máls en
það er að sögn lögreglu enn í rann-
sókn. Maðurinn sem fyrir árásinni
varð liggur þungt haldinn í öndun-
arvél á gjörgæsludeild Landspítal-
ans. Öðrum manninum var sleppt
í gærdag en óskað hefur verið eftir
gæsluvarðhaldi hinum. ■