blaðið - 05.12.2005, Side 17
blaöið MÁNUDAGUR 5. DESEMBER 2005
HEXLSA I 25
Allt sem
frunsur
Ég var að horfa á sjónvarpið í gær-
kvöldi og sá þá tvo einstaklinga
með frunsu og datt því í hug að
hafa pistil minn í dag um frunsur.
Frunsur eru ekkert hættulegar
en hvimleiðar og koma einhvern
veginn alltaf á versta tíma. Enda
er meiri hætta á að fá þær þegar
við erum undir miklu álagi.
Hvað eru frunsur?
Frunsur eru mjög algengur sjúk-
dómur af völdum veiru sem nefnist
Herpes simplex. Frunsan er eins
konar klasi af litlum vökvafylltum
blöðrum á bólginni húð. Oft fylgja
frunsunni verkir og eymsli á svæð-
inu. Blöðrurnar opnast og verða
að sári sem síðan grær en skilur
gjarnan eftir sig ör. Frunsur hafa til-
hneigingu til að koma aftur.
Til eru tvær tegundir herpesveir-
unnar sem geta herjað á bæði húð
og slímhúð. Algengari tegundin
(Herpes simplex virus í; HSV-i)
sýkir yfirleitt munn og varir en hin
tegundin (Herpes simplex virus 2;
HSV-2) finnst aðallega umhverfis
kynfæri. Um það bil 80% fullorð-
inna hafa mótefni gegn HSV-i veir-
unni í blóði og u.þ.h. 25% hafa mót-
efni gegn HSV-2 veirunni.
Orsökin
Herpesveiran notar taugagreinar til
að flytja sig frá ysta lagi húðarinnar
til taugarótanna þar sem hún dvelur
óvirk þar til eitthvað verður til þess
að hún verður virk aftur og skríður
upp á yfirborðið. Ef ofnæmiskerfið
er undir álagi, t.d. af völdum kvefs,
mikils sólarljóss eða kulda, getur
veiran orðið virk aftur. Þá skríður
hún fram taugagreinina, undir yfir-
borð húðarinnar og myndar frunsu.
Frunsur smitast eingöngu við
snertingu s.s. við kossa eða kynlíf.
Fyrstu frunsurnar myndast oft fyrir
3-5 ára aldur.
Einkennin
• Sýkingin er einstaklingsbundin.
Sumir fá engin eða væg einkenni.
Hjá börnum getur sýkingin lýst sér
sem sármyndun í slímhúð munn-
hols og koks (gingivo stomatitis
herpetica acuta) sem getur valdið
vanlíðan og hita.
• Einni til þremur vikum eftir fyrsta
smit myndast frunsa sem grær á
nokkrum vikum.
• Fyrsta einkenni frunsu er óþægi-
leg, stingandi og ertandi tilfinning í
húðinni. Eftir stuttan tíma myndast
vökvafylltar blöðrur í húðinni. Ein-
kennandi er hrúður sem myndast á
sárinu og dettur yfirleitt af eftir 8-10
daga.
. Smithætta er meðan vessar úr
frunsunni eða sárið er opið.
• Þótt mótefni hafi verið myndað
gegn veirunni Herpes simplex eru
20% líkur á að frunsu verði vart
síðar.
Greining
Sjúkrasagan og útlit útbrotanna
eru helsta greiningartækið. Hægt
er að greina veiruna með stroki úr
frunsusárinu.
Hvað ber að forðast?
• Að sárið sýkist af bakteríum.
• Að sýkingin breiðist til augnanna,
getur valdið blindu.
• Ef barnaexem er fyrir er hætta á
að frunsurnar breiðist um mikinn
hluta líkamans. Það er þó mjög
sjaldgæft.
• Alvarlegar frunsusýkingar geta
verið merki um undirliggjandi sjúk-
dóm sem veikir ónæmiskerfið, t.d.
lungnabólgu eða alnæmi.
Batahorfur
Það er mjög einstaklingsbundið
hvernig herpesveirusýkingin hegðar
sér. Sumir fá sjaldan eða aldrei
þú vildir vita um
frunsur en aðrir fá þær oft. Það já-
kvæða er að tiðni frunsusýkinga
lækkar yfirleitt með aldrinum.
Hvað er hægt að gera?
• Handþvottur er mjög mikilvægur
eftir snertingu við varir eða sýkt
svæði. Herpesveiranþrífst alls staðar
á líkamanum, einnig á fingrum og
kynfærum.
• Mikilvægt er að kroppa ekki í fruns-
una. Við það getur hún breiðst út og
þá eykst hættan á bakteríusýkingu.
• Almennt heilbrigði, fjölbreytt fæði,
hreyfing og nægur svefn styrkir
ónæmiskerfi líkamans.
• Einstaklingsbundið er hvaða kring-
umstæður leiða til frunsumyndunar.
Sumir fá frunsur vegna sólarljóss,
tíðablæðinga eða hita en enginn
sérstakur orsakavaldur greinist hjá
öðrum.
Meðferðarmöguleikar
Til eru nokkrar gerðir lyfja til að
bera á útvortis, mörg þeirra er hægt
að fá án lyfseðils i næsta apóteki.
Þessi lyf geta stytt líftíma fruns-
unnar, því fyrr sem meðferð hefst
því meiri líkur eru til þess að takist
að stytta líftimann. I erfiðum og
tíðum tilfellum er hægt að gefa lyf
í töfluformi en það verður læknir
að gera. Einstaklingar sem fá oft
frunsu þekkja orðið einkennin og
geta því frekar brugðist hratt við og
þannig stytt tímann sem það tekur
frunsuna að ganga yfir.
Hafragrautur fyrir örbylgjuofninn
grQ2i
§
&
8 pokar i hverjum pakka.
Auövelt aö taka meö sér
hvertsem er.
Tilbúim á akim 11/1 mínútu
7 Helltu haframjölinu úr pokanum í skál
2. Settu 1,5 dl. af vatni út í (notaðu pokann
undirvatnið - nákvœmlega rétti skammturinn)
3 Tilbúinn í örbylgjuofninum á 2 i/2 mínútu
• Fljótlegt og hollt I morgunmat fyrir skólann • Góð
undirstaða fyrir langan vinnudag • Tilvalið í
hádeginu - engin fyrirhöfn • Þœgilegtog hollt milli mála.