blaðið - 05.12.2005, Qupperneq 30
38IFÓLK
MÁNUDAGUR 5. DESEMBER 2005 blaðiö
PIRRINGUR
DAGSINS
Ertu ekki hress, ertu ekki í stuði? Nei
Smáborgarinn verður að viðurkenna að
hann er ekki hress og sjaldnast í stuði.
Hvað er Ifka málið með allan þennan
hressileika? Það lítur út fyrir að búið sé
að toga normið um eðlilegt geðslag fólks
upp í maníu. Kannski er þetta skýringin
á því hve margir eru greindir þunglyndir.
Það er einfaldlega hætt að gera ráð fyrir
að fólk hafi sin eigin persónueinkenni.
Gísli á Uppsölum er látinn og sennilega
sérvitringshátturinn með honum. Nema
hægt sé að hengja á hann merkimiða og
kalla ódæmigerða einhverfu, tilfinninga-
raskanir eða aðrar klisjur sem geðlæknar
fá greitt fyrir að draga út úr rassgatinu á
sér.
Nú tíðkast að koma út úr skápnum,
með kynhneigð sína, áfengssýki eða
annað sem fólk er að burðast með. Smá-
borgarinn hefur ákveðið að koma út úr
skápnum sem sérvitringur sem skortir
pólitíska rétthugsun. Smáborgaranum
finnst ekkert athugavert við það að
nenna ekki að svara símanum þegar
hann hringir og rífa allt draslið úr sam-
bandi áður en hann fer að sofa, ef hann
nær þá að sofa. Við svefnleysi notar hann
imovane og lexotan við pirringi. Alveg
brilljant lausn á einföldum vandamálum,
það þarf sko ekkert hátæknisjúkrahús til
að lækna hans einföldu kvilla. Smáborgar-
anum finnst líka ósanngjarnt að þurfa að
greiða annarra sjúkrakostnað með skött-
um sfnum og allt sfmabetl er algjört eitur
í hans beinum. Hver er sjálfum sér næstur
er mottó Smáborgarans.
Kannski er Smáborgarinn hálfgerð-
ur skröggur inn við beinið, og þó ekki,
"gleymdu ekki þínum minnsta bróður"
virkar nú ágætlega á Smáborgarann, en
ef Smáborgarinn lendir f því að bjarga
sínum minnsta bróður þá verður það ekki
síst vegna vonar um að fjölmiðlar taki
myndir af honum og hann fái að segja
frá í Kastljósinu, já hver vill ekki sinn
skammt afis mínútna frægð? Ef maðurá
að vera hress er líka mikilvægt að létta á
hjarta sfnu öllum þeim pirringi sem hægt
er að koma fyrir í einum pistli. Sennilega
dugarþað þó ekki einu sinni til. Þetta kall-
ast persónueinkenni og Smáborgarinn er
ánægður með sín rétt eins og fólk erstolt
af börnum sínum, líka þeim sem eru til
vandræða.
HVAÐ FINNST ÞÉR?
Ingibjörg R. Guðmundsdóttir, formaður
Landssambands íslenskra verslunarmanna
Hvað finnst þér um lengingu opn-
unartíma verslana í desember?
„Mér finnst þetta komið út fyrir öll mörk. Þetta er gífurleg opnun. Ég leyfi mér að
efast um það að þetta sé nauðsynlegt, ég held að fólk noti bara tímann öðruvísi.
Mér sýnist t.d. þegar ég fer í búðir á laugardagsmorgni að það sé ekki mikið af
fólki að versla. Þetta er bara gífurlegt álag fyrir fólk sem vinnur þarna. Ég hef
miklar áhyggjur af þessum afgreiðslutíma því varan hlýtur fyrir vikið að verða
bara dýrari. Svo er hægt að spyrja sig að því hvort að fólk versli eitthvað meira ef
búðirnar eru opnar lengur.“
Verslanir lengja opnunartíma sinn í desember. Opið til 22 og sumstaðar lengur.
Will Smith leikur
óánœgða ofurhetju
Will Smith mun leika aðalhlutverkið í mynd um óánægða ofurhetju sem
á í kreppu vegna aldurs síns. Myndin heitir Tonight, He Comes og verð-
ur leikstýrt af Jonathan Mostow. Mun Mostow fresta tveimur verkefnum,
Swiss Family Robinson og Terminator 4, til að ljúka við ofurhetjumyndina.
Columbia Pictures kvikmyndasamsteypan stefnir á að hefja framleiðslu í Los
Angeles næsta sumar. Will Smith var að ljúka við að leika í myndinni The
Pursuit of Happiness sem hann lék í með syni sínum Jaden, og Thandie
Newton, en henni er leikstýrt af Gabrielle Muccino.
Weir leikstýrir Depp
Will Smith mun leika aðalhlutverkið í mynd um óánægða ofurhetju sem á í kreppu vegna
aldurs síns. Myndin heitir Tonight, He Comes og verður leikstýrt af Jonathan Mostow.
Mun Mostow fresta tveimur verkefnum, Swiss Family Robinson og Terminator 4, til
að ljúka við ofurhetjumyndina. Columbia Pictures kvikmyndasamsteypan stefnir á að
hefja framleiðslu í Los Angeles næsta sumar. Will Smith var að ljúka við að leika í mynd-
inni The Pursuit of Happiness sem hann lék í með syni sínum Jaden, og Thandie New-
ton, en henni er leikstýrt af Gabrielle Muccino.
Nýtt andlit
Chanel
Hin þvengmjóa leikkona Selma Blair náði sér í samning við Chanel. Sam-
kvæmt glanstímaritinu Glamour verður hún hið nýja andlit Chanel Visi-
on, og kynnir hátísku í gleraugum. Hún er nú þegar mikill aðdáandi hins
klassíska tískuhúss og af henni hafa birst margar tækifærismyndir í Chan-
el- kjólum, nýjum sem gömlum, og einnig þekkir hún hinn sívinsæla hönnuð
Karl Lagerfeld fjarska vel. Selma kaus einnig Chanel-kjól þegar hún giftist Ahmet
Zappa, syni hins fræga Frank, á síðasta ári. Karl tók meira að segja sjálfur myndirn-
ar fyrir hina nýju gleraugnaherferð. Selma segir: „Ég á mjög gott samband við Karl.
Það er auðvelt að vera mynduð af honum, því mér líður svo vel í kring um hann.
Stundum þegar ég vinn með öðrum ljósmyndurum biðja þeir mig sífellt um að
ganga lengra. En þeir þekkja mig ekki. Með Karli, þá nást fram mínir persónulegu
gallar, hver ég er sem stelpa, ekki sem fyrirsæta.“
eftir Jim Unger
Hins vegar hefði ég verið alveg til
í að hitta Roger Moore - eða bara
sjá hann tilsýndar. Það hefði verið
nóg. Rakst á Össur og Steingrím J.
í bænum í dag, þeir voru á leiðinni
í hádegisverð með Moore ásamt
utanríkismálanefnd. Þangað var
Jónína Bjartmarz líka að skunda.
Hún sagði að hún hefði frekar
viljað snæða með Sean Connery.
Ekki ég. Roger Moore var fyrsta
átrúnaðargoð mitt í sjónvarpi. Þá
lék hann Dýrlinginn, Simon Templ-
ar. Þetta var eiginlega fyrsta þátta-
röðin sem sýnd var í sjónvarpi á
íslandi. Ég var sjö ára. Á þeim ár-
um dreymdi alla stráka á íslandi
um Dýrlingsbíl. En það var ekki til
neitt sjónvarp heima hjá mér, svo
ég lagði á mig að fara alla leið til
frænku minnar á Laufásvegi til að
sjá Dýrlinginn.
Egill Helgason á www.visir.is
Úthringi-æði góðgerðarfélaga
Rétt fyrir jól renna á menn ýmiss
konar æði. Eitt af þeim er úthringi-
æði góðgerðafélaga. í vikunni hefur
ég fengið fimm slík símtöl en eigin-
maðurinn ekkert, reyndar var í einu
símtalinu spurt eftir öðru hvoru
okkar. Undirrituð hefur unnið við
úthringingar sjálf og veit því hversu
niðurdrepandi það er að fá hrana-
leg og jafnvel dónaleg svör fólks
sem stundum skellir nánast á áður
en úthringjandinn nær að kynna
sig og hvaða málefni hann hringi út
af. Því reynir maður að bíða eftir að
viðkomandi hafi klárað fyrstu setn-
ingu áður en tilkynnt er að númer-
ið sem hringt var í sé bannmerkt í
símaskrá. Fólk biður margfaldlega
afsökunar og lofar að skrá nafnið
manns niður þannig að ekki verði
hringt aftur. Af fenginni reynslu er
vitað að það eru orðin tóm.
Þetta er ekki það eina við slík-
ar hringingar sem getur angrað
mann. Af hverju er bara hringt
í kvenmanninn á heimilinu? Jú,
staðreyndin hlýtur að vera sú að
konur eru miklu líklegri til að gefa
til góðgerðarmála. Körlum er ekki
einu sinni gefið tækifærið. Þetta er
einnig ein af ástæðum þess að und-
irrituð hefur ekki áhuga á að gefa í
símasafnanir.
Guðrún Pálína Ólafsdóttir á
www.deiglan.com
Samkvæmt Röntgen-myndinni
er hún föst í fætinum á þér.
© Jtm Unaor/tílst by Untect Media. 2001
HEYRST HEFUR...
UtvarpSagaheld-
u r
enn áfram
þrátt fyrir
að hinn
duglegi
dagskrár-
gerðarmaður Gústav Níelsson,
sagnfræðingur, hafi gengið úr
rúmi á dögunum og það í miðj-
um þætti. í hans stól hefur sest
ekki minni þungavigtarmaður,
Grétar Mar Jónsson skipstjóri
og varaþingmaður frjálslyndra.
Sagan segir hins vegar að þröngt
sé orðið fyrir dyrum hjá Útvarpi
Sögu, skuldirnar séu þungar og
málaferli fyrrverandi dagskrár-
gerðarmanna yfirvofandi. Nú sé
því róinn lífróður í von um að aug-
lýsingasala fyrir jólin rétti bátinn
af. Arnþrúður Karlsdóttir útvarps-
stjóri á Sögu er sögð vongóð, enda
helsti keppinauturinn nánast
búinn að leggja upp laupana, en
Talstöðin er nú aðeins endurvarp
fyrir Nýju fréttastöðina, NFS...
PegarSamfylkinginvarstofnuð
á sínum tíma gekk ýmislegt á
við að berja saman framboðslista
flokksins, enda þurfti þar að sætta
ólík sjónarmið og gæta jafnvægis
milli flokkanna og flokksbrot-
anna, sem að henni stóðu. Var það
víða gert með uppstillingu eða af-
hólfuðum prófkjörum. 1 kjördæm-
inu Norðurlandi eystra sem svo
hét hafði kratinn Sigbjörn Gunn-
arsson sigur, en það hentaði ekki
flokksskrifstofunni og var ekki
látum linnt fyrr en hann gaf sæti
sitt eftir fyrir alþýðubandalags-
konunni Svanfríði Jónasdóttur
þó hún hafi lotið í lægra haldi í
prófkjörinu. Nú boðar Sigbjörn að
hann hyggist leita fyrir sér í bæj-
arstjórnarpólitíkinni á Akureyri
og er haft fyrir satt að það muni
hann gera undir merkjum Sjálf-
stæðisflokksins. Velta menn því
fyrir sér hvort flótti sé að bresta
á krata innan Samfylkingarinnar,
sem telja að sjónarmið sín hafi al-
gerlega orðið undir eftir að nýr for-
maðuritók við...
Athygli vekur að Georg
Lárusson, forstjóri Land-
helgisgæslunnar, veigrar sér við
því að taka afstöðu til þess hvort
Reykjavíkurflugvöllur verði að
vera áfram 1 Vatnsmýrinni, enda
hæpið að ríkisstarfsmenn blandi
sér í pólitísk álitamál með þeim
hætti. Undirmaður hans, Benóný
Ásgrímsson yfirflugstjóri, kin-
okar sér hins vegar ekki við það
og segir lífsnauðsynlegt að hafa
sjúkraflugvöll við nýja hátækni-
sjúkrahúsið. En hann kemur
ekki auga á hið augljósa í málinu,
sumsé að kannski sé staðsetning
hátæknisjúkrahússins ekki ákjós-
anleg í Þingholtunum...
Stuðnings-
menn Hall-
dórs Ásgríms-
sonar innan
Framsóknar-
flokksins urðu
fyrir miklum
vonbrigðum með könnun Gallups.
Töldu þeir bæði Halldór og Fram-
sókn á mikilli siglingu og töldu
að könnunin myndi sýna það
rækilega. Fylgi Framsóknar sam-
kvæmt Gallup var þó aðeins tæp-
lega n%. Fyrr í haust var talað um
það meðal háttsettra flokksmanna
að Halldór yrði að rífa flokkinn
upp í haust annars yrði farið í að
skipta um formann. Halldór lýsti
hins vegar yfir í Silfri Egils um
síðustu helgi að hann hyggðist
leiða flokkinn í næstu kosningum.
Verði flokkurinn ekki kominn í
betra horf um áramótin er líklegt
að í Framsókn eins og Samfylk-
ingu fari menn bráðum að brýna
kutana.